Bændablaðið - 20.10.2022, Blaðsíða 14
14 Bændablaðið | Fimmtudagur 20. október 2022
FRÉTTIR
Hvernig er hægt að efla lífræna framleiðslu á Íslandi?:
Ísland langt á eftir nágrannalöndunum
Nýverið samdi Svandís Svavars
dóttir matvælaráðherra við
Environice, Umhverfisráðgjöf
Íslands, um gerð tillagna að
aðgerðaáætlun fyrir eflingu
lífrænnar framleiðslu.
Hér á Íslandi hefur lengi
ríkt stöðnun hvað varðar fjölda
framleiðenda í vottaðri lífrænni
framleiðslu. Íslendingar hafa verið
eftirbátar nágrannaþjóða sinna á
þessu sviði, þar sem stöðugur vöxtur
er í framleiðslu slíkra búvara víðast
hvar. Verkefnisstjóri áætlunarinnar
segir að ein ástæða þess að Ísland
hafi dregist aftur úr sé sú að líklega
hafi skort nokkuð á fjármögnun
fræðslu, rannsókna og þróunar.
Samningurinn er liður í
áherslum stjórnvalda sem birtast
í stjórnarsáttmálanum, en þar eru
tilgreind verkefni með tímasetta
áætlun til eflingar lífrænnar
framleiðslu sem lykilþáttar í að auka
sjálfbærni íslensks landbúnaðar.
Gert er ráð fyrir að tillögum verði
skilað í ársbyrjun 2023.
Margar ástæður fyrir stöðunni
Á undanförnum misserum og
árum hafa verið gerðar allnokkrar
atlögur að því að auka veg vottaðrar
lífrænnar landbúnaðarframleiðslu á
Íslandi, bæði innan stjórnkerfisins og
innan félagskerfis landbúnaðarins,
án sýnilegs mikils árangurs.
Stefán Gíslason, verkefnisstjóri
aðgerðaráætlunarinnar hjá
Environice, segir að of snemmt sé að
fullyrða um ástæðurnar fyrir þessari
staðreynd á þessu stigi, en þær séu
sjálfsagt margar.
„Ég býst við að þessi mynd skýrist
að einhverju marki þegar vinnan við
aðgerðaáætlunina er komin betur
af stað. Eitt af fyrstu skrefunum
í þeirri vinnu er einmitt að ræða
við hagsmunaaðila og ég geri ráð
fyrir að í þeim viðtölum komi fram
mikið af gagnlegum upplýsingum.
En eitt af því sem vitað er fyrir fram
er að í einhverjum tilvikum hefur
eftirspurn eftir fjárstuðningi á borð
við aðlögunarstyrki verið minni en
framboðið. Þetta hljómar ef til vill
einkennilega, en getur meðal annars
stafað af því að stuðningurinn hafi
ekki verið talinn fullnægjandi eða
stuðningstímabilið of stutt.
En þetta gæti líka bent til
að umgjörðin utan um lífræna
framleiðslu á Íslandi sé ekki
nógu sterk að öðru leyti. Ég
ítreka að ég get ekkert fullyrt um
ástæðurnar á þessu stigi, en skortur
á langtímastefnumótun stjórnvalda
um lífræna framleiðslu gæti verið
einn þátturinn. Sömuleiðis gætu
áherslur í menntun eða ráðgjöf innan
landbúnaðargeirans haft eitthvað að
segja. Það er heldur ekki nóg að bjóða
aðlögunarstyrki ef ekki er jafnframt
stutt við rannsóknir og nýsköpun í
greininni. Allt þetta þarf að skoða
í samhengi. Við þetta bætast svo
hugsanlega tæknilegar hindranir á
borð við skort á tilteknum aðföngum
og svo framvegis. Og meðan
framleiðslan er lítil næst heldur ekki
sú hagkvæmni stærðarinnar sem
er að öllum líkindum nauðsynleg
til að innlendar lífrænar vörur séu
samkeppnishæfar í verði.“
Ísland langt á eftir
nágrannalöndunum
Stefán segir að það sé ljóst að Ísland
sé langt á eftir nágrannalöndunum
bæði hvað varðar hlutfall vottaðs
lands annars vegar og í hlutfalli
vottaðra vara hins vegar. „Ég vil
ekki nefna nákvæmar tölur í þessu
sambandi þar sem ég á eftir að rýna
betur í þær.
Tillaga að aðgerðaáætlun þarf
að byggjast á greiningu á núverandi
stöðu og á helstu hindrunum og í
þeirri greiningu verður meðal annars
horft til nágrannalandanna til að fá
samanburð og til að læra af fenginni
reynslu þaðan. Grunnurinn að þessari
vinnu er sú áhersla sem lögð er á
öfluga íslenska matvælaframleiðslu
í stjórnarsáttmála núverandi
ríkisstjórnar. Meðal áhersluverkefna
sem þar eru tilgreind er mótun
heildstæðrar tímasettrar áætlunar
til eflingar lífrænnar framleiðslu.
Mitt verk er að leggja drög að slíkri
áætlun,“ segir Stefán.
Innflutningur stóraukist
Þegar Stefán er spurður út í hvort
hann viti til þess að þróun á hlutfalli
innfluttra lífrænt vottaðra vara
síðustu ára hafi verið skoðuð, segir
hann að erfitt sé að fá yfirlit yfir slíkt.
„Ég hef lengi haft á tilfinningunni að
innflutningur hafi stóraukist í takti
við aukna eftirspurn, en takmörkuð
sundurliðun í tollskrárnúmerum
og hagtölum gerir það erfitt að fá
yfirlit yfir það sem er raunverulega
framleitt og flutt inn.
Við vitum þó alla vega að
innanlandsframleiðslan hefur
lítið aukist síðustu ár, þannig
að ef þessi tilfinning er rétt
fer hlutfall innlendrar vöru á
þessum markaði minnkandi. Það
er öfug þróun miðað við áherslu
ríkisstjórnarinnar á öfluga íslenska
matvælaframleiðslu.“
Í tilkynningunni úr matvæla
ráðuneytinu, þar sem greint var frá
samningnum um aðgerðaáætlunina,
kemur fram að hvatar verði skil
greindir til að auka lífræna ræktun.
Þegar Stefán er spurður út í hvað
átt sé við með þessu orðalagi, segir
hann að þegar talað sé um hvata sé
oftast átt við hagræna hvata.
Þeir geta verið margs konar, en
aðlögunarstuðningur, til nokkurra
ára, og sérstakur stuðningur við
rannsóknir, þróun og kennslu er
það sem fyrst kemur í hugann. En
hér gildir það sama og áður er sagt,
að hugmyndir um leiðir til að styðja
við lífræna framleiðslu ættu að verða
orðnar ögn þroskaðri í lok þessa
verkefnis en þær eru núna á fyrstu
stigum. Til þess er leikurinn gerður.“
/smh
Vottuð lífræn framleiðsla 2012-2021
Ár Vottað land (ha)*
Hlutfall vottaðs
lands í % af
landbúnaðarlandi**
Fjöldi vottaðra
framleiðenda***
2012 20.676 1,38 % 60
2013 22.395 1,49 % 59
2014 22.605 1,51 % 60
2015 24.182 1,61 % 64
2016 22.710 1,51 % 60
2017 20.755 1,38 % 63
2018 22.683 1,51 % 66
2019 19.880 1,33 % 65
2020 21.694 1,45 % 66
2021 22.669 1,51 % 72
*Inniheldur ræktað
land, beitiland og
söfnunarsvæði
villtra jurta á landi.
**Gróið land að 200 m
hæðarlínu – 1.500.000 ha.
***Landbúnaður, vinnsla,
innflutningur.
Heimild: Vottunarstofan Tún
Stefán Gíslason, verkefnisstjóri að
gerðar áætlunarinnar hjá Environice.
Mynd / Aðsend
Á Ósi í Hörgársveit hefur á undanförnum árum verið byggt upp lífrænt vottað
garðyrkjubýli þar sem nú eru seldar lífrænt vottaðar gulrætur, meðal annars.
Vottunarmerki Túns, sem einungis
má nota á vörur sem eru vottaðar.
Sjálfboðaliðar við hreinsunarstörf
Talsvert brotnaði af trjám í
Laugalandsskógi á Þelamörk í
Hörgársveit í norðanáhlaupinu á
dögunum. Þau tepptu umferð um
göngustíga og gátu valdið hættu.
Ingólfur Jóhannsson, fram
kvæmda stjóri Skógræktarfélags
Eyjafjarðar, segir að svo hafi háttað til
að starfsmenn félagsins voru önnum
kafnir við alls kyns verkefni, keppst er
við að grisja frá stígum fyrir veturinn,
byggja upp leiksvæði og einnig er
verið að reisa nýja tjaldskemmu sem
á að hýsa sögunaraðstöðu félagsins
ásamt því að skjóta skjólshúsi yfir
nýja snjótroðarann. Hann verður að
líkindum settur í skip í Þýskalandi í
kringum næstu mánaðamót.
Skógarhjónin og bjargvættirnir
S i g u r ð u r S æ m u n d s s o n ,
stjórnarmaður SE og Ólöf Hörn
Erlingsdóttir, fyrrverandi starfsmaður
félagsins, bönkuðu snarlega upp á hjá
skógræktarfélaginu, fengu lánuð tæki
og tól sem vantaði upp á þeirra eigin
og snöruðu sér svo út á Þelamörkina
til að bjarga þar málum „Við erum
svo sannarlega heppin og mjög
þakklát fyrir þessa aðstoð sem þau
hjónin veittu okkur,“ segir Ingólfur.
/ MÞÞ
Ólöf Hörn Erlendsdóttir lét sitt ekki eftir liggja við hreinsunarstörfin í
skóginum. Mynd / Skógræktarfélag Eyfirðinga