Bændablaðið - 20.10.2022, Blaðsíða 51

Bændablaðið - 20.10.2022, Blaðsíða 51
51Bændablaðið | Fimmtudagur 20. október 2022 Vinsamlega hafið samband við Björgvin Guðjónsson, búfræðing og löggiltan fasteignasala í síma 510-3500 og 615-1020 eða á netfangið bjorgvin@eignatorg.is Skipholt 50b, 105 Reykjavík Vegna aukinnar eftirspurnar óskum við eftir bújörðum á söluskrá Víkurhvarf 5 Vagnar og stálgrindahús frá WECKMAN Steel STÁLGRINDAHÚS Fjöldi stærða og gerða í boði Stærð palls 2,55 x 8,60 m Verð kr. 1.890.000,- með virðisaukaskatti Weckman flatvagnar / löndunarvagnar RÚLLUVAGNAR – LÖNDUNARVAGNAR Stærð palls 2,55 x 9,0m Vagnar 6,5 - 17 tonn. Verðdæmi: 8 tonn kr. 1.250.000,- með virðisaukaskatti. 12 tonn kr. 1.590.000,- með virðisaukaskatti. STURTUVAGNAR Burðargeta 6,5 – 17 tonn þak og veggstál galvaniserað og litað Bárað• Kantað• Stallað• Fjöldi lita í boði Víkurhvarfi 5 • Kópavogi • Sími 588 1130 hhaukssonehf@simnet.is Víkurhvarf 5 S K E S S U H O R N 2 01 2 Ögurhva fi 8 133 haukur@hhauk son.is 7-18 tonn Stórmerkilegt álit umboðsmanns Á vef umboðsmanns Alþingis var nýlega birt mjög áhugavert og vel rökstutt álit hans þar sem túlkun innviðaráðuneytisins, sem birtist í leiðbeiningum frá 2. júní 2021, er hafnað og hún ekki talin samrýmast lögum. Tilefni leið­ beininga ráðu­ neytisins, var að taka afstöðu til þess misræmis sem gætti milli búfjárhaldslaga nr. 38/2013 og laga um afréttar­ málefni, fjallskil o.fl. nr. 6/1986 varðandi rétt búfjáreigenda að beita fé sínu á annarra manna land og skyldur sveitarstjórna til að bregðast við ágangi búfjár á lönd annarra. Laut túlkun ráðuneytisins m.a að því að forgangsregla réttarheimildafræðinnar, um að yngri lög gangi framar eldri lögum, eigi hér við og eins að gagnálykta mætti út frá friðunarákvæði búfjárhaldslaganna (8. og 9. gr.) að landeigenda væri skylt að þola ágang fjár annarra ef land væri ekki friðað. Til að forðast fræðilega umfjöllun og endalausar tilvitnanir í lög er rétt að draga niðurstöðu umboðsmanns saman í sem styst mál. Hún er á þann veg: að ekki er fallist á það sjónarmið ráðuneytisins að í þessu tilfelli ætti reglan um að yngri lög stæðu eldri lögum framar við. Jafnframt er ályktað að ákvæði í búfjárhaldslögum (yngri lögin) um friðlýsingu, gefi ekki tilefni til að gagnálykta að „umráðamaður lands þurfi að þola heimildarlausa beit búfjár annars manns í landi sínu“, ef ekki er um friðun að ræða, líkt og ráðuneytð hafði gert ráð fyrir. Þvert á móti telur umboðsmaður: „að reglur laga um afréttarmálefni, fjallskil o.fl. væru byggðar á þeim grunnrökum að umráðamaður lands þyrfti ekki að heimila öðrum þau afnot af landinu sem fælust í umgangi og beit búfjár í annarra eigu“ enda væru þau lög „í samræmi við stjórnarskrárverndaða friðhelgi eignaréttarins og styðjist þar að auki við þá aldagömlu grunnreglu að búfjáreigendum sé óheimilt að beita fé sínu leyfislaust á annars manns land.“ Nú er álit umboðsmanns ekki lög en í niðurlagi álits síns beinir hann þeim tilmælum til innviðaráðuneytisins, að það taki mið af þeim sjónarmiðum sem hann hefur borið á borð í áliti sínu. Jafnframt sendi hann matvælaráðuneytinu og Sambandi íslenskra sveitarfélaga álit sitt vegna þeirrar réttaróvissu sem hann telur ríkja um ýmis atriði varðandi málaflokkinn. Full ástæða er til að draga upp hugsanlegar sviðsmyndir í kjölfar álits umboðsmanns. Í fyrsta lagi, og líklegasta, er að ekkert breytist í fyrstu. Stjórnsýslan situr við sinn keip og sveitarstjórnir, og lögregla eftir atvikum, gera ekkert með álitið þegar einstakir landeigendur fara fram á við yfirvöld að þau smali ágangsfé. Slíkt sinnuleysi mun nær örugglega kalla á málaferli þar sem landeigendum verður nauðugur sá kostur að stefna sínu sveitarfélagi. Það verður þá dómstóla að fallast á, eða synja, þeirri túlkun sem fram kemur í áliti umboðsmanns og landeigendur munu augljóslega byggja sinn málflutning á. Fallist íslenskir dómstólar ekki á rökin sem fram koma í áliti umboðsmanns má telja fullvíst að málum verði vísað til Mannréttindadómstóls Evrópu enda ekki aðeins um túlkun á stjórnarskrá landsins að ræða heldur einnig Mannréttindasáttmálanum. Önnur sviðsmynd gæti verið sú að innviðaráðuneytið brjóti odd af oflæti sínu og breyti leiðbeiningum sínum til samræmis við álit umboðsmanns. Þá er á hinn bóginn mögulegt að sveitarfélögin höfði mál enda ljóst að hvorki þau né lögreglan hefur áhuga né getu til að fara dag eftir dag og smala sama fénu jafnvel þó þeim sé heimilt að senda eigenda fjárins reikning vegna verksins. Niðurstaðan er í reynd sú sama og í sviðsmynd eitt. Dómsmál þvælast í kerfinu um nokkurra ára skeið og á endanum koma hirtingar frá Strassborg og niðurlægð íslensk stjórnvöld breyta á endanum lögum í þá veru sem álit umboðsmanns byggir á. Þriðja sviðsmyndin, og sú æskilegasta, er að sjálfsögðu sú að löggjafinn grípi strax inn í og endurskoði nær alla löggjöf um búfjárhald og færi til tíðaranda dagsins í dag. Eðlilegast er að fella þegar á yfirstandandi þingi út greinar nr. 8 og 9 í lögum nr. 38/2013 um búfjárhald (greinar um friðun afmarkaðra landsvæða). Slík lagabreyting auðveldaði mjög allt framhald máls enda hafa þessar greinar verið hreinn bastarður í lögunum nú um tuttugu ára skeið. Hafa verður í huga að núverandi lagasetning miðast við allt aðrar aðstæður en nú eru í þjóðfélaginu hvað búsetu og atvinnuhætti varðar, rétt eins og umboðsmaður bendir á í niðurlagi álits síns, og ber að fagna skilningi hans á þeim breytingum. Ég vil því leyfa mér að hvetja sauðfjárbændur og sveitar­ stjórnarmenn til að kynna sér vel álit umboðsmanns Alþingis og velta vandlega fyrir sér næstu skrefum í þessu máli. Stefán Tryggva- og Sigríðarson þúsundþjalasmiður. Sefán Tryggva- og Sigríðarson. Stefán Tryggva- og Sigríðarson hvetur sauðfjárbændur til að kynna sér álit umboðsmanns Alþingis en það fjallar um misræmi milli búfjárhaldslaga og laga um afréttarmálefni. Þá er á hinn bóginn mögulegt að sveitarfélögin höfði mál enda ljóst að hvorki þau né lögreglan hefur áhuga né getu til að fara dag eftir dag og smala saman fénu, jafnvel þó þeim sé heimilt að senda eiganda fjárins reikning vegna verksins.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.