Bændablaðið - 20.10.2022, Blaðsíða 36

Bændablaðið - 20.10.2022, Blaðsíða 36
36 Bændablaðið | Fimmtudagur 20. október 2022 HURÐIR Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is • Stuttur afhendingartími • Hágæða íslensk framleiðsla • Val um fjölda lita í RAL-litakerfinu • Vindstyrktar hurðir Bílskúrs- og iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir með gönguhurð Bílskúrshurðir Hurðir í trékarma Tvískiptar hurðir Smíðað eftir máli Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf LÍF&STARF Á málþingi Átjándualdarfélagsins fyrir skömmu var fjallað um landbúnað frá ýmsum hliðum á átjándu öld. Kynnt var áhugaverð sagnfræði, Gamla bændasamfélagið, Fjölskyldan og heimilisbúskapur í byrjum átjándu aldar, Byggðir og búsvæði og sagt frá útgáfu skjala Landsnefndarinnar fyrri 1770 til 1772. Auk þes sem gefin var innsýn í umfjöllun um akuryrkju og jarðrækt í skjölunum. Fyrir áhugafólk um sögu og ekki síst landbúnaðarsögu voru öll erindin athyglisverð. Guðmundur Jónsson, prófessor við Háskóla Íslands, fjallaði um hugtakið „Gamla bændasamfélagið“ og að ólíkt hugmyndum þjóðernisstefnunnar um stéttlaust samfélag hefði verið ríkjandi mikil fastsett stéttaskipting líkt og í öðrum löndum. Guðmundur sagði einnig frá vinnslu nýs gagnagrunns og bókar sem væntanleg er og fjalla um líf þjóðarinnar í upphafi átjándu aldar. Vegferðin til fullorðinsáranna Ólöf Garðarsdóttir, forseti Hugvísindasviðs Háskóla Íslands og prófessor í félagssögu við Háskóla Íslands, flutti erindi sem fjallaði um mannfjölda og íbúaþróun á harðindatímum. Í erindi hennar kom fram að á harðindatímum væri dánartíðni hæst meðal barna og gamalmenna og þeirra sem stóðu neðst í samfélaginu. Í máli Ólafar kom fram að giftingaraldur Íslendinga á átjándu öld verið almennt hærri hér og að margir hefðu þurft að sætta sig við að vera vinnuhjú eða ómaga stóran hluta ævinnar. Byggðir og búsvæði Ingibjörg Jónsdóttir, dósent í landfræði við Háskóla Íslands, flutti erindi um verkefni sem hún hefur unnið að ásamt Óskari Guðmundssyni, doktorsnema í sagnfræði við Háskóla Íslands, þar sem fjallað er um byggðir og búsvæði á landinu snemma á átjándu öld. Sagt var frá sagnfræðilegu landupplýsingakerfi um jarðir, býli og mannfjölda í byrjun átjándu aldar. Fjallað var um búsæld mismunandi svæða og eyðibýli og ólíka búskapar­ hætti eftir landgæðum. Innsýn í akuryrkju og jarðrækt Jóhanna Þ. Guðmundsdóttir, sagn­ fræðingur og skjalavörður á Þjóðskjalasafni Íslands, flutti erindi á málþinginu. Annars vegar sagði hún frá útgáfu skjala Landsnefndarinnar fyrri 1770 til 1771 sem hún vann að ásamt Hrefnu Róbertsdóttur þjóðskjalaverði. Hins vega flutti Jóhanna erindi sem bar heitið Dálítil innsýn í akuryrkju og jarðrækt í skjölum Landsnefndarinnar fyrri. Í máli Jóhönnu kom fram að mikið sé fjallað um akuryrkju og hvers kyns jarðrækt í skjölunum. Í þeim kemur meðal annars fram að gera átti átak í túnrækt með garðhleðslum og þúfnasléttingu, auka skyldi áburðarnotkun og koma upp áveitum. Kornrækt og garðrækt voru sérstaklega til skoðunar, einnig skógnytjar, skógrækt og seljabúskapur. Trú á að hægt væri að rækta korn á landinu var takmörkuð og ekki þótti verjandi að eyða opinberu fé í slíka tilraunastarfsemi. Fleiri höfðu trú á garðrækt en illa gekk að fá vinnufólk til að borða gras, eins og það kallaði kálið, og leit vinnufólkið á kál í matinn sem launalækkun og vildi frekar fá kjötbita og reiða sig á fjallagrösin. Stærsta málið var að gera átak í túnrækt og margir sáu fyrir sér betri tíma ef ræktuð væru tún og garðar hlaðnir, gamlar selstöður teknar í notkun og komið upp heyforðageymslu. Auk þess lagði landsnefndin til að mýrar yrðu ræstar fram, enda sagði Jóhanna greinilegt samkvæmt skýrslunni að landsnefndarmennirnir hafi verið orðnir ansi leiðir á öllum mýrunum á ferð þeirra um Suður­ og Vesturland. /VH Einn fermetri af hör er sænskt verkefni sem hófst árið 2020 og hefur verið að vinda upp á sig. Í dag tekur fjöldi norrænna heimilisiðnaðar­ og búnaðarfélaga þátt í verkefninu auk félaga frá Eistlandi. Heimilisiðnaðarfélagið er fulltrúi verkefnisins hér á landi. Verkefnið snýst um að kynna hör fyrir almenningi og fá fólk til að rækta að minnsta kosti einn fermetra af hör í garðinum, í kassa, á svölunum eða úti í sveit. Verkefnið er upprunnið í Svíþjóð og tilgangurinn með því að kynna fyrir fólki gömul vinnubrögð við línrækt og ­vinnslu og að auka virðingu fyrir línafurðunum. Að sögn Marjöttu Ísberg, miðaldafræðings og áhugakonu um hör, tóku um sextíu manns þátt í verkefninu í ár og sáðu og uppskáru hör. Uppskeran víða umfram væntingar „Við fengum fræ frá Svíþjóð og uppskeran var víða umfram væntingar nema fyrir norðan vegna þess að sumarið þar var of kalt. Bestur var árangurinn í Mosfellsdal en ég var með blett í Fossvogsdal, þar sem áður voru skólagarðar, og náðu plönturnar þar um 120 sentímetra hæð, sem telst mjög gott.“ Marjatta segir að núna hafi allir þátttakendur tekið upp sitt lín og sé með það í þurrkun og velta fyrir sér hvar og hvernig verði hægt að feygja og þurrka það. „Sjálf hef ég notað tímann til að skoða gömul verkfæri og er búin að smíða línbrák og ætla að byrja á línkambi í vikunni.“ Fræ og stuðningur Stefnt er að því að halda verkefninu áfram næsta sumar. Færri komust að en vildu í vor og því um að gera fyrir áhugasama að skrá sig á netfanginu hfi@heimilisidnadur.is. Þátttakendur fá fræ, ráðgjöf og stuðning frá Heimilisiðnaðarfélagi Íslands. Marjatta segist vonast til að næsta haust verði hægt að uppskera hör víðs vegar um landið, feygja og spinna þráð og að á heimasíðunni Fermetri af hör verði skiptst á ráðleggingum og myndum. /VH Línrækt og hörvinnsla: Fermetri af hör Lín með fræbelgjum. Myndir / Marjatta Ísberg Línbrák til hörvinnslu. Málþing um bændamenningu: Innsýn í bændasamfélag átjándu aldar Ísland á miðöldum. Mynd / wikipedia.org Marjatta Ísberg miðaldafræðingur með hörknippi sem hún uppskar í Fossvogsdal í Reykjavík.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.