Bændablaðið - 20.10.2022, Blaðsíða 28
28 Bændablaðið | Fimmtudagur 20. október 2022
LÍF&STARF
Lífræn hreinsistöð
• Fyrirferðalítil fullkomin
sambyggð skolphreinsistöð
• Uppfyllir ýtrustu kröfur um
gæði hreinsunar
• Engin rotþró eða siturlögn
25 ára ábyrgð
• Tæming seyru á þriggja til
fimm ára fresti
• Engir hreyfanlegir hlutir
• Stærðir frá 6 – 55 persónueiningar
Tunguhálsi 10 - 110 Reykjavík
Sími 517 2220 - petur@idnver.is
G
ra
fik
a
19
Fyrsti metantraktorinn
– Dráttarvél sem gengur fyrir eldsneyti sem hún framleiðir sjálf
Á morgun, föstudag, fær Sorpa
afhenta nýja New Holland T6.180
dráttarvél sem gengur fyrir
metani. Þessi vél verður notuð á
athafnasvæði Sorpu á Álfsnesi og
mun ganga fyrir orku framleiddri
á staðnum.
Kraftvélar voru með vélina til sýnis
á nýafstaðinni Landbúnaðarsýningu
í Laugardalshöll.
Eiður Guðmundsson, stöðvar
stjóri Gas og jarðgerðarstöðvarinnar
(GAJA) á Álfsnesi, segir dráttar
vélina verða notaða í mörg störf á
athafnasvæðinu. Nú þegar notar
Sorpa traktora og mun þessi leysa
af hólmi elstu vélina þeirra. Fyrir
utan að ganga fyrir öðru eldsneyti en
gengur og gerist er þessi dráttarvél
mjög sambærileg þeim sem þegar
eru á markaðnum.
Helsta verkefni vélarinnar er að
knýja 24 rúmmetra fóðurblandara
sem er nýttur til að brjóta niður
og blanda stoðefnum við lífræna
úrganginn. Blandarinn losar efnið
síðan á færiband sem flytur það inn
í vinnsluna.
Önnur verkefni eru að dreifa sjó
með haugsugu á urðunarstaðinn til
að minnka lykt á sumrin. Á veturna
er hægt að nota vélina í snjómokstur
og hálkuvarnir.
Unnið að orkuskiptum
Eiður hefur lengi fylgst með
þróun þessara mála, en frumgerð
vélarinnar var kynnt árið 2013. Eftir
að hafa verið með dráttarvélarnar
í prófunum undanfarin ár hefur
framleiðandinn fyrst núna boðið
vélarnar í almenna sölu. Aðspurður
hvort fleiri vélar af þessu tagi verði
keyptar þá telur Eiður það líklegt.
„Við endurnýjun munum við að
sjálfsögðu velja metan, að því gefnu
að þetta komi vel út hjá okkur.“
Metan er plássfrekt og því rúmast
minna eldsneyti í þessari vél en í
sambærilegum dísildráttarvélum.
Það mun þó ekki koma að sök þar
sem megnið af því metani sem
búið er til fyrir íslensk farartæki er
framleitt á Álfsnesi.
„Það má segja að þessi dráttarvél
keyri á afurð GAJA sem hún sjálf er
notuð til að framleiða,“ segir Eiður.
Orkusjóður styður við verkefni
sem vinna að orkuskiptum. Eiður
sótti um styrk fyrir hönd Sorpu og
fá þau fimm milljónir upp í kaupverð
vélarinnar. Þó svo að upphæðin sé
ekki stór hluti af verkefninu, þá
segir Eiður að í þessu felist talsverð
viðurkenning. /ÁL
Kraftvélar kynntu nýjan metantraktor á Landbúnaðarsýningunni. New Holland er fyrsti dráttarvélaframleiðandinn
sem setur á markað dráttarvél sem er hönnuð frá grunni til að ganga fyrir metani. Mynd /ÁL
Hafrannsóknastofnun:
Eldvarnarefni
finnast í langreyðum
Í sýnatökum Hafrannsókna-
stofnunar sumarið 2018 voru
tekin sýni úr átta þunguðum
langreyðum og fóstrum.
Sýni voru tekin úr spiki
fullorðnu dýranna en úr bakugga
fóstra. Langreyðarnar voru veiddar
á fæðuslóð vestur af landinu.
Í öllum sýnunum fundust uppsöfnuð
eldvarnarefni.
Halógen eldvarnarefni og klór
parafínefni fundust í 87,5% kúnna
og 100% fóstra, á meðan lífrænir
fosfatsesterar fundust í öllum kúm
og fóstrum. Yfirleitt voru styrkir
þessara efna hærri í fóstrum en
kúnum, sem er einkennandi fyrir
þrávirk efni sem safnast fyrir í
lífverum.
Eitruð efni sem valda skaða
Fram kemur á vef Hafrannsókna
stofnunar að eldvarnarefni eru hópur
efna sem notuð eru til að minnka
brennanleika efna í húsgögnum,
raftækjum, byggingarefnum, bílum
og textíl. Lengi vel voru slík efni
aðallega svokölluð brómeruð
eldvarnarefni, en rannsóknir leiddu
í ljós að þau voru eitruð og söfnuðust
fyrir í lífríkinu þar sem þau geta
valdið skaða. Þau geta valdið
hormónaójafnvægi, skjaldkirtils og
lifrarskaða og því voru sum þeirra
bönnuð.
Ný efni sem voru þróuð í staðinn,
virðast einnig vera skaðleg, þó að
áhrif þeirra séu minna þekkt.
Rannsókn á nýju
eldvarnarefnunum
Nýlega var birt í ritinu Environmental
Pollution grein sem ber fyrirsögnina
Transplacental transfer of
plasticizers and flame retardants in
fin whales (Balaenoptera physalus)
from the North Atlantic Ocean.
Einn höfunda er Gísli Víkingsson
heitinn, fyrrverandi sérfræðingur
Hafrannsóknastofnunar.
Rannsóknin tók til þriggja
tegunda þessara nýju eldvarnarefna;
halógen eldvarnarefni, lífrænir
fosfatsestarar og klórparafínefni.
Skoðað var hvort efnin byggðust
upp í langreyðum og hvort þessi
efni bærust milli móður og fósturs.
Þessar niðurstöður sýna að
eldvarnarefni sem notuð eru í dag
berast á milli móður og fósturs í
langreyðum, sem kallar á frekari
rannsóknir á áhrifum þessara efna
á líffræði sjávarspendýra.
/VH
Umhverfismál:
Brasilískur kjúklingur
eyðir Amazon
Nýútkomin skýrsla rekur
hvernig brasilískt kjúklingakjöt
sem stendur breskum neytendum
til boða er fóðrað á maís og soja sem
hægt er að rekja til eyðingar regn-
skóganna í Amazon.
Brasilíska félagið JBS, sem er
stærsta kjötafurðafyrirtæki heims,
flutti umrætt kjúklingakjöt til
Bretlands.
Skýrslan, sem gefin var út
í samvinnu Reporter Brasil og
Ecostorm, var gefin út á fimmtu
daginn í síðustu viku. Þar er sagt
að kerfin sem við búum við í dag
séu ófullkomin þegar kemur að
því að hindra notkun á fóðri af
óstaðfestum uppruna. Guardian
greinir frá.JBS hefur selt mikið
magn kjúklings undir vörumerkinu
Seara til Evrópu, Kína og Mið
Austurlanda. Bretar fluttu inn
kjúkling frá fyrirtækinu fyrir minnst
500 milljónir bandaríkjadala.
Kjötið hefur m.a. verið
keypt af heildsölum, matvæla
framleiðendum og mötuneytum
sem þjóna skólum, sjúkrahúsum,
hjúkrunarheimilum og smásölum.
Þrátt fyrir að JBS neiti öllum
ásökunum, gátu skýrsluhöfundar
rekið soja og maís sem samsteypan
keypti beint til nokkurra stórra
framleiðenda sem ræktuðu þessar
afurðir á landi þar sem regnskógur
hafði verið ruddur. /ÁL
Hægt er að tengja kjúklingakjöt í breskum verslunum við skógareyðingu.
Mynd / Ibamagov