Bændablaðið - 20.10.2022, Blaðsíða 18
18 Bændablaðið | Fimmtudagur 20. október 2022
HAGTÖLUR LANDBÚNAÐARINS
MarkaðirJákvæð þróun í nýtingu mannauðs, aðfanga og fjármagns
Samkvæmt tölum Hagstofunnar hefur fjöldi starfandi í landbúnaði og skógrækt fækkað um rúm 11% frá því árið 2008.
Er það þrátt fyrir að fjöldi íbúa landsins hafi hækkað um 17%, þannig að fækkunin sem hlutfall af þjóðinni er enn meiri.
Fækkun sláturdýra á Íslandi hefur einnig verið töluverð á þessu tímabili. Á sama tíma hefur eftirspurn eftir matvælum á
landinu aukist í beinu sambandi við mannfjölda og ferðamannaaukningu.
Þrátt fyrir þessa þróun hafa afköst starfsgreinarinnar ekki minnkað ef horft er á magn framleiddra matvæla ár hvert.
Framleiðsla hefur aukist með betri nýtingu afurða. Kinda- og svínakjötsframleiðsla hefur aukist þrátt fyrir samdrátt i
sláturdýrum og framleiðsla á nautakjöti hefur aukist langt umfram fjölgun nautgripa. Á árunum 2008 til 2021 jókst
kjötframleiðsla á Íslandi um 12,5% og keppist þannig við að halda við í mannfjöldaaukningu sama tímabils.
Framleiðniþróun er því jákvæð í landbúnaði,
sama hvort það er framleiðni vinnuafls eða
betri nýting afurða. Framleiðsla hefur einnig
aukist langt umfram þróun í opinberum
styrkjum til landbúnaðarins. Ef rýnt er í
stuðning ríkisins til landbúnaðarins frá 2008
á föstu verðlagi sést að hann dróst saman
um þriðjung á meðan kjöt-, eggja- og
mjólkurframleiðsla jókst töluvert.
140,9 kr
Evra
144,68 kr
USD
163,36 kr
Pund
324,62 kr
95 okt bensín
324,3 kr
Díesel
21,76 kr
Mjólk (USD/100 pund)
8,55 kr
Korn (USD/sekkur)
21 kr
Kartöflur (EUR/100 kg)
1,271 kr
Ull (AUD/100 kg)
2,16 kr
Ostur (UDS/pund)
7,050 kr
Smjör (EUR/tonn)