Bændablaðið - 20.10.2022, Side 51
51Bændablaðið | Fimmtudagur 20. október 2022
Vinsamlega hafið samband við Björgvin Guðjónsson, búfræðing
og löggiltan fasteignasala í síma 510-3500 og 615-1020
eða á netfangið bjorgvin@eignatorg.is
Skipholt 50b, 105 Reykjavík
Vegna aukinnar eftirspurnar óskum
við eftir bújörðum á söluskrá
Víkurhvarf 5
Vagnar og stálgrindahús
frá WECKMAN Steel
STÁLGRINDAHÚS
Fjöldi stærða og gerða í boði
Stærð palls 2,55 x 8,60 m
Verð kr. 1.890.000,- með virðisaukaskatti
Weckman flatvagnar
/ löndunarvagnar
RÚLLUVAGNAR –
LÖNDUNARVAGNAR
Stærð palls 2,55 x 9,0m
Vagnar 6,5 - 17 tonn.
Verðdæmi:
8 tonn kr. 1.250.000,- með virðisaukaskatti.
12 tonn kr. 1.590.000,- með virðisaukaskatti.
STURTUVAGNAR
Burðargeta 6,5 – 17 tonn
þak og veggstál
galvaniserað og litað
Bárað•
Kantað•
Stallað•
Fjöldi lita í boði
Víkurhvarfi 5 • Kópavogi • Sími 588 1130
hhaukssonehf@simnet.is
Víkurhvarf 5
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
2
Ögurhva fi 8 133
haukur@hhauk son.is
7-18 tonn
Stórmerkilegt álit
umboðsmanns
Á vef umboðsmanns Alþingis
var nýlega birt mjög áhugavert
og vel rökstutt álit hans þar sem
túlkun innviðaráðuneytisins, sem
birtist í leiðbeiningum frá 2. júní
2021, er hafnað og hún ekki talin
samrýmast lögum.
Tilefni leið
beininga ráðu
neytisins, var að
taka afstöðu til
þess misræmis
sem gætti milli
búfjárhaldslaga
nr. 38/2013 og
laga um afréttar
málefni, fjallskil
o.fl. nr. 6/1986
varðandi rétt búfjáreigenda að
beita fé sínu á annarra manna land
og skyldur sveitarstjórna til að
bregðast við ágangi búfjár á lönd
annarra. Laut túlkun ráðuneytisins
m.a að því að forgangsregla
réttarheimildafræðinnar, um að
yngri lög gangi framar eldri lögum,
eigi hér við og eins að gagnálykta
mætti út frá friðunarákvæði
búfjárhaldslaganna (8. og 9. gr.) að
landeigenda væri skylt að þola ágang
fjár annarra ef land væri ekki friðað.
Til að forðast fræðilega umfjöllun
og endalausar tilvitnanir í lög er rétt
að draga niðurstöðu umboðsmanns
saman í sem styst mál. Hún er á
þann veg:
að ekki er fallist á það
sjónarmið ráðuneytisins að
í þessu tilfelli ætti reglan
um að yngri lög stæðu eldri
lögum framar við. Jafnframt
er ályktað að ákvæði í
búfjárhaldslögum (yngri
lögin) um friðlýsingu, gefi
ekki tilefni til að gagnálykta
að „umráðamaður lands þurfi
að þola heimildarlausa beit
búfjár annars manns í landi
sínu“, ef ekki er um friðun að
ræða, líkt og ráðuneytð hafði
gert ráð fyrir.
Þvert á móti telur umboðsmaður:
„að reglur laga um
afréttarmálefni, fjallskil
o.fl. væru byggðar á þeim
grunnrökum að umráðamaður
lands þyrfti ekki að heimila
öðrum þau afnot af landinu
sem fælust í umgangi og beit
búfjár í annarra eigu“ enda
væru þau lög „í samræmi
við stjórnarskrárverndaða
friðhelgi eignaréttarins og
styðjist þar að auki við þá
aldagömlu grunnreglu að
búfjáreigendum sé óheimilt
að beita fé sínu leyfislaust á
annars manns land.“
Nú er álit umboðsmanns
ekki lög en í niðurlagi álits síns
beinir hann þeim tilmælum til
innviðaráðuneytisins, að það taki mið
af þeim sjónarmiðum sem hann hefur
borið á borð í áliti sínu. Jafnframt
sendi hann matvælaráðuneytinu og
Sambandi íslenskra sveitarfélaga
álit sitt vegna þeirrar réttaróvissu
sem hann telur ríkja um ýmis atriði
varðandi málaflokkinn.
Full ástæða er til að draga upp
hugsanlegar sviðsmyndir í kjölfar
álits umboðsmanns. Í fyrsta lagi,
og líklegasta, er að ekkert breytist
í fyrstu. Stjórnsýslan situr við sinn
keip og sveitarstjórnir, og lögregla
eftir atvikum, gera ekkert með
álitið þegar einstakir landeigendur
fara fram á við yfirvöld að þau
smali ágangsfé.
Slíkt sinnuleysi mun nær
örugglega kalla á málaferli þar sem
landeigendum verður nauðugur sá
kostur að stefna sínu sveitarfélagi.
Það verður þá dómstóla að fallast
á, eða synja, þeirri túlkun sem
fram kemur í áliti umboðsmanns
og landeigendur munu augljóslega
byggja sinn málflutning á. Fallist
íslenskir dómstólar ekki á rökin sem
fram koma í áliti umboðsmanns má
telja fullvíst að málum verði vísað til
Mannréttindadómstóls Evrópu enda
ekki aðeins um túlkun á stjórnarskrá
landsins að ræða heldur einnig
Mannréttindasáttmálanum.
Önnur sviðsmynd gæti verið sú
að innviðaráðuneytið brjóti odd af
oflæti sínu og breyti leiðbeiningum
sínum til samræmis við álit
umboðsmanns. Þá er á hinn bóginn
mögulegt að sveitarfélögin höfði
mál enda ljóst að hvorki þau né
lögreglan hefur áhuga né getu til að
fara dag eftir dag og smala sama
fénu jafnvel þó þeim sé heimilt að
senda eigenda fjárins reikning vegna
verksins. Niðurstaðan er í reynd sú
sama og í sviðsmynd eitt. Dómsmál
þvælast í kerfinu um nokkurra ára
skeið og á endanum koma hirtingar
frá Strassborg og niðurlægð íslensk
stjórnvöld breyta á endanum lögum
í þá veru sem álit umboðsmanns
byggir á.
Þriðja sviðsmyndin, og sú
æskilegasta, er að sjálfsögðu sú
að löggjafinn grípi strax inn í og
endurskoði nær alla löggjöf um
búfjárhald og færi til tíðaranda
dagsins í dag. Eðlilegast er að
fella þegar á yfirstandandi þingi
út greinar nr. 8 og 9 í lögum nr.
38/2013 um búfjárhald (greinar
um friðun afmarkaðra landsvæða).
Slík lagabreyting auðveldaði mjög
allt framhald máls enda hafa þessar
greinar verið hreinn bastarður í
lögunum nú um tuttugu ára skeið.
Hafa verður í huga að núverandi
lagasetning miðast við allt aðrar
aðstæður en nú eru í þjóðfélaginu
hvað búsetu og atvinnuhætti varðar,
rétt eins og umboðsmaður bendir á í
niðurlagi álits síns, og ber að fagna
skilningi hans á þeim breytingum.
Ég vil því leyfa mér að hvetja
sauðfjárbændur og sveitar
stjórnarmenn til að kynna sér vel
álit umboðsmanns Alþingis og velta
vandlega fyrir sér næstu skrefum í
þessu máli.
Stefán Tryggva- og Sigríðarson
þúsundþjalasmiður.
Sefán Tryggva-
og Sigríðarson.
Stefán Tryggva- og Sigríðarson hvetur sauðfjárbændur til að kynna sér álit umboðsmanns Alþingis en það fjallar
um misræmi milli búfjárhaldslaga og laga um afréttarmálefni.
Þá er á hinn bóginn mögulegt að
sveitarfélögin höfði mál enda ljóst að hvorki
þau né lögreglan hefur áhuga né getu til að fara
dag eftir dag og smala saman fénu, jafnvel þó
þeim sé heimilt að senda eiganda fjárins reikning
vegna verksins.“