Veiðimaðurinn - 01.03.1959, Page 14

Veiðimaðurinn - 01.03.1959, Page 14
staka talan er hjá þér“. „Ég veiddi stærsta laxinn," segi ég. „Já, og þann minnsta,“ segir í'élagi minn. Það var satt, ég hafði veitt iax, sem var ekki nema tæp 2 pund. Endirinn varð sá, að við færum báðir og reyndum að fylla tuginn. En þegar við vorum að tygja okkur af stað fengum við heimsókn, voru það tvær blómarósir úr nágrenninu, og þótti það góð tilbreytni eftir útitleguna við ána. Var nú sezt inn í tjald og allar veiðihugleiðingar látnar bíða. Þegar þær fóru var klukkan að verða 10, og ekki nema einn klukkutími eftir af veiðitímanum. Við vildurn samt gera eina tilraun, renndum í Kvörnina og Blóta, en urðum ekki varir. Svo rölt- um við upp í Strengi. Þar hittum við annan veiðimanninn að sunnanverðu. Hann lá á maganum á brúnni og var að dingla spæni niður í vatnið. Sagðist hann vera búinn að vera þarna í tvo tíma og reyna í báðum strengjunum, en ekki liafa fengið laxinn til að taka, og þó væri nóg af honum. Ekki voru þessar fréttir upp- örfandi. Ég geng upp fyrir brúna, upp i efri strenginn, en félagi minn fór aftur niður með á. Ég beiti og kasta út í strauminn, bíð góða stund, en engin hreyfing. Þetta þýðir ekki neitt, hugsa ég og lyfti stönginni, en þá er fast. Nú, það er þá fósturjörðin á í þetta skipti, verður mér að orði. Það er því betra að fara varlega svo ekki \erði veiðarfæratap ofan á enga veiði. Ég tek þéttingsfast í stöngina og lield henni þannig um stund. Þá fer ég að finna kippi, og lifnáði þá yfir mér, því auðfundið var, að nú var fiskur á og sennilega vænn. Nú var betra að fara varlega, því þessunr fiski þurfti ég að ná á land hvað sem það kostaði. Ég óttaðist mest að rnissa hann niður fvrir brúna, en þá var ég illa settur, því þáð var ekki vætt fyrir brúarstöpulinn að norðanverðu. En laxinn hreyfði sig ekki, bara lá í. Það leið upp undir hálftími þar til ég fór að finna lát á honum, en þá gaf hann sig líka fljótt. Þetta var hængur, 15 punda, aðeins farinn að roðna. Nokkru eftir að ég setti í laxinn varð veiðimann- inunr á brúnni litið við og varð þá svo urn, að hann hankaði upp og fór beina leið heim í veiðihús. Hvort liann hefur haldið að ég væri göldróttur, veit ég ekki. Ég er nefnilega fæddur í Arnar- lirði. Ég fór nú heim að tjaldi ánægður með veiðina. Stuttu síðar kom félagi nrinn neðan frá á. Ég spurði lrvort hann hefði náð í þann sjötugasta. Nei, sagði lrann lreldur dauflega, en varð um leið litið á laxinn. „O, hvert í logandi. Hvar fékkstu þennan?“ Ég sagði honum það. „Stóð ég mig ekki vel“, sagði ég? Hann hélt nú það. Þar með endaði ein skemrntilegasta veiðiferð, setrr ég ltef farið í Haukadalsá. B. R. G. Sjón er sögu ríkari. KONA nokkur, sem aldrei hafði snert á veiði- stöng, var að leggja af stað í veiðiferð með manni sínum. Vihkoxiá hennar i næsta húsi, sem líka var gift yeiðimanni, sá þegar þau voru að fara, og kom út á tröppurnar og kallaði til liennar: „Færðu nú ekki nóg af veiðisögunum hjá hon- urii, þótt þú sért ckki að fara með honum í ferð- irnar,- og hlusta á þá þar?“ „Jú, ég er búinn að fá nóg af þeim fyrir löngu, og meira en það. En nú ætlá ég að sjá staðreynd- irnar með eigin augum, og vita hvort liann talar þá ekki minna um þetta við mig í veturi" 10 VWÐIMAÐURINN

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.