Veiðimaðurinn - 01.03.1959, Side 28

Veiðimaðurinn - 01.03.1959, Side 28
máli skipti að fylgjast vel með því. Mest- ar voru líkurnar, þegar nýir silungar voru að koma. Þeir vöruðu sig ekki eins vel og hinir, sem voru orðnir heima- vanir. Iðulega kom það fyrir, að ekkert bit fékkst klukkutímum saman, en þraut- seigjan var þar fyrsta boðorðið, svo ekki var gefizt upp; enda varð endirinn oft sá, að bústinn silungur fórnaði lífinu hin- um þrautgóða veiðimanni. Þegar silungurinn kom að bryggjunni, reið mjög á að vera búinn að koma agninu fyrir við niðurfallið. Það voru taugaæsandi augnablik, þegar þeir komu og nörtuðu í beituna! Þá gilti að vera rólegur, og kippa ekki í. Þó silungurinn tæki beituna! og hristi hana til, en sleppti henni svo aftur, þá kom hann oftast á ný, svo framarlega sem ekki var kippt í. Margan silunginn missti drengurinn vegna þess að hann var of veiðibráður. Þegar silungurinn saug beituna fór eins og rafstraumur um færið, og þá fór hjart- að að slá ört. Hraðara o°r hraðara sló o hjartað, eftir því sem silungurinn kjams- aði fastar. Og þegar beitan hvarf, þá kippti karl í. Stundum var allt laust, og þá var bitið á jaxlinn, halað upp og beitt á ný. Eða þá að fastur lifandi þungi tók á móti. Þá hófst hinn óhjákvæmilegi leik- þáttur, æsandi og spennandi. Færið var rakið niður á bryggjuna og endinn bund- inn í buxnahaldið, því einu sinni gaf hann allt á enda og missti færið og sil- unginn þar með. Þá var farið inn til mömmu og grátið lengi dags yfir örlög- um silungsins, með færið í munninum. Margs var að gæta með silung á færi, því þeir áttu það til að synda kringum bryggjustaurana og rífa þannig úr sér. En furðanlega tókst oftast að koma þeim upp í fjöruna. Ef þeir vorn mjög stórir var stundum kallað á hjálp. Sá stærsti, sem drengurinn fékk á bryggjunni, var rúm átta pund, og þá var hann montinn. Eitt sumarið fékk hann um eitt hundrað silunga á færið sitt. Einn var sá óvinur, sem margan óleik- inn gerði og það var marhnúturinn. Þessi viðbjóðslegi fiskur, sem ekkert er nema ginið. Hann var alltaf að ásælast beituna. Iðulega var færið ekki komið í botn þeg- ar hann var búinn að magagleypa. Þegar ekkert var um silung tók maður sig stund- um til og veiddi marhnút, aðeins til að fækka þeim, svo þeir gerðu minni miska, þegar silungnrinn kæmi. En allt kom fyrir ekki, nóg virtist vera til af ófreskj- unni, og alltaf beit hún á, þegar sízt skyldi. Ég á margar sárblíðar og ljúfar endur- minningar frá þessum áhyggjulitlu æsku- dögum, tengdar bryggjunni og glamp- andi silungum. Þá strax hafði gripið mig hin djúpa þrá eftir þessum fagra fiski. Þessi þrá var að vísu að sumu leyti tengd nokkurs kon- ar metnaði. Að fiska mest var auðvitað takmarkið, en samt var eitthvað annað, sem kallaði. Eitthvað, sem ég ekki vissi þá hvað var, hvorki háð drápgirni né metnaði. Því þegar ég var sendur á sveita- bæ eitt sumarið, þá sótti ég á bryggjuna bæði fast og títt. Hjólaði jafnvel stundum í matartímum, en það var um 15—20 mínútna ferðalag, miðað við mesta hraða. Það er líklega óhætt að geta þess núna, eftir svo mörg ár, að einstöku sinnum skauzt ég á bryggjuna eftir að hafa rekið kýrnar í hagann á harða spretti; því allt- 24 Veidimaourinn

x

Veiðimaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.