Veiðimaðurinn - 01.03.1959, Page 30
HJALTI ÞÓRARINSSON:
Hálfdrættingur.
ÉG lofaði Hieini veiðifélaga mínum,
að ég skyldi bæta við stuttri veiðisögu
frá síðastliðnu sumri. Ég hefi lent í ýmsu
einkennilegu á veiðiferðum, en veiðisög-
ur segi ég mjög ógjarna, þar sem ég veit,
að margir trúa þeim vart. Atvik það,
sem hér greinir frá, gerðist 27. júlí s.l.,
eða tæpri viku eftir atburð þann, sem
Hreinn lýsti. Ég var þennan dag að veið-
um í I.axá á Ásum. Veður var fremur
svalt og skúraleiðingar. Veiðifélagi minn,
þennan dag, var F.inar Þorkelsson, verk-
fræðingur. hað var komi'ð nokkuð fram
yfir hádegi og nálgaðist mjög sá tírni, að
áin skyldi livíld. Veiði hafði verið ágæt
um morguninn, og höfðum við félagarn-
ir fengið samtals f5 laxa.
Við vorum staddir skammt frá Laxár-
brú og eru þar margir og góðir veiðistað-
ir og örskammt á milli þeirra. Við áttum
eftir að reyna í neðsta veiðistaðnum á
þessu svæði, sem heitir Klapparhylur.
Einar var staðháttunr ókunnugri og
hugðist ég því miðla honum af reynslu
minni. Við vorum staddir sunnan meg-
in árinnar. Þegar ég hafði skýrt Einari
frá ,,hernaðarieyndarmálum“ staðarins,
óð liann yfir ána, nokkru neðan við hyl-
inn, því að norðan megin árinnar er mun
betra að athafna sig við veiði í þessum
inn, og silunginn rétt hjá, og sneru þeir
hausum saman, en rétt í því fór laxinn af
og hvarf sjónum okkar — og laxinn höfð-
um við séð, allir þrír. En þegar Hjaiti
dregur inn, er ca. 2ja punda silungur á
önglinum og er hér um bil dauður. Stóð
önguliinn í kjafti hans me'ð odd og agnúa
út úr tálknopinu og „riftingur" af tálkni
sást koniið út úr á sama stað.
Á liverju hékk laxinn? Mín tilgáta er
sú, að laxinn hafi verið á önglinum og
silungurinn hafi þræðst, upp á línuna við
ólætin í laxinum og þess vegna hafi ég
séð þá báða á í einu með nokkru milli-
bili.
Það munu Jiafa liðið um 15 mínútur
frá því laxinn „tók“ og þar til við vorum
komnir á land — og enginn vafi er á því,
að laxinn var á allan þann tíma, enda
liéit ég sjálfur á stönginni, rneðan Hjalti
óð í land úr bátnum, og fann þá mjög
greinilega átök laxins.
Sennilega hefur silungurinn teki'ð
fyrst — öngullinn staðið djúpt og út um
táknopið, og þar hetir laxinn fest sig.
Kræktist laxinn á?
Tók laxinn silunginn allan og krækt-
ist, þannig á?
Tók laxinn maðk og öngul, sem stóð
út úr tálknopi siiungsins og festi sig þann-
ig á?
Ilver veit!
26
Veiðim aðurin n