Fréttablaðið - 11.03.2023, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 11.03.2023, Blaðsíða 2
Þetta er afskræming tungumálsins í skjóli rétttrúnaðar. Njörður P. Njarðvík, prófessor emeritus Mótmæltu fjársvelti Stúdentar í Háskóla Íslands efndu í gær til mótmælagöngu frá Háskólatorgi að Ráðherrabústaðnum, þar sem Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra og Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra var afhent samantekt um undirfjármögnun skólans. „Það er tímabært að stjórnvöld sinni lögbundinni skyldu sinni og fjármagni opinbera háskólamenntun sem skyldi,“ segir stúdentaráð HÍ. Fréttablaðið/Ernir Menntaskólinn við Sund hefur lagt af orðið starfs- mannafundur er starfsmenn koma saman. Slíkir fundir kallast starfsfólksfundir. bth@frettabladid.is Skólamál Ákvörðun um að breyta nafni starfsmannafunda í Mennta- skólanum við Sund í starfsfólks- fundi fær misjafnar undirtektir. Hjá MS fengust þær upplýsingar að um væri að ræða sömu breytingu og að tala frekar um öll velkomin í stað þess að ávarpa alla velkomna. Þetta væri gert til þess að engin væru skilin út undan. Skoðanir um málið væru þó skiptar í kennara- liðinu. Njörður P. Njarðvík, prófessor emeritus, lýsir lítilli hrifningu með að orðið starfsmannafundur þyki ekki lengur tækt. „Ég spyr: Eru þá engir starfs- menn lengur við þennan skóla?“ segir Njörður. „Þetta er afskræming tungumálsins í skjóli rétttrúnaðar.“ Í grein sem Njörður ritaði í Frétta- blaðið fyrir stuttu benti hann á að orðið maður er heiti á tegund spendýra og tekur til karlmanna, kvenna, barna, trans fólks og kyn- leysingja. „Þegar við segjum: allir velkomn- ir, tekur það til allra sem tilheyra þessari tegund án vísunar til sér- staks kyns,“ skrifaði Njörður í grein sinni og benti einnig á að á Íslandi gæti kona verið herra ef hún situr í ríkisstjórn. „Ég held að menn þurfi að reyna að átta sig á því hvað orðið maður þýðir.“ Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor emeritus, hafði ekki heyrt af því að stofnanir landsins væru að banna orðið starfsmannafundur. Hann segist styðja breytinguna og skilur rót breytinganna. Málið sé þó ekki alveg einfalt. „Almennt skil ég þessa tilhneig- ingu að fólk reyni að komast hjá því að nota samsetninguna „maður“ af því að orðið tengist karlmönnum óneitanlega mikið í hugum fólks,“ segir Eiríkur. Þá telur hann til bóta í þessu samhengi að orðið starfsfólk sé fullkomlega viðurkennt. Að sögn Eiríks er hins vegar sá galli á gjöf Njarðar að í mörgum tilvikum er ekki til eintöluorð sem leysir af hólmi orðið maður. Hann spyr hvaða orð komi í staðinn fyrir einn starfsmann. Þá sé starfs- mannafundur óneitanlega þjálla orð en starfsfólksfundur. „Það kemur þarna upp svolítið leiðinlegur samhljóðaklasi,“ segir Eiríkur en bendir einnig á að það eigi við um mörg önnur orð. n Umdeild orðalagsbreyting sögð afskræming á íslensku Skiptar skoðanir eru meðal kennara Menntaskólans við Sund um að ekki megi lengur boða til starfsmannafunda. Fréttablaðið/Ernir Vissir þú að fæst á 204 stöðum á höfuðborgarsvæðinu? Kynntu þér dreifinguna á: www.frettabladid.is/stodsidur/dreifing kristinnhaukur@frettabladid.is neytendur Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra segir það gríð- arlegt hagsmunamál fyrir þjóðina að það komist á samningar milli Sjúkratrygginga Íslands og sér- greinalækna. Samningar hafa verið lausir í rúm fjögur ár og læknastofur leggja ógagnsæ komugjöld á sjúklinga vegna mismunar á kostnaði og endurgreiðslu. „Lang varandi samningsleysi og afleiðingar þess er óviðunandi ástand sem bitnar á þeim sem minnst mega sín,“ segir Willum um stöðuna og hvort ríkisstjórnin hafi hvata til að semja. „Það er lögð rík áhersla, bæði hér í ráðuneytinu og í ríkisstjórn, á að ná samningum um þessa mikilvægu þjónustu.“ Willum segir Sjúkratryggingar Íslands hafa samningsumboðið og vera með skýr markmið. „Það eru jákvæð teikn á lofti, Sjúkratryggingar Íslands og Lækna- félag Reykjavíkur eru í virku samtali og ég er bjartsýnn á að yfirstand- andi viðræður leiði til samninga, það þarf að gerast sem fyrst.“ n Rík áhersla á að ná samningum Willum Þór Þórsson, heil- brigðisráðherra gar@frettabladid.is verðlag „Þetta verður bara víta- hringur ef allir halda áfram að hækka,“ segir Eva María Jóhanns- dóttir hjá Dýralæknamiðstöðinni Grafarholti. Þar var verð á þjón- ustunni lækkað um 15 prósent um miðjan febrúar. Eva María segir dýraeigendur hafa tekið þessu útspili afar vel enda leikurinn til þess gerður að hjálpa í erfiðu árferði. Verðskrá á f lestum stöðum sé fáránlega há sem skýrist af launakostnaði. „Ég skil alveg hringinn sem þetta fer en ég held að við eigum að lækka verðið svo f leiri geti komið til að láta sinna dýrunum sínum áður en þau lenda í slæmri stöðu,“ segir Eva María. Dýraspítali vill fá verðbólguna niður Eva María Jóhannsdóttir og tíkin hennar Lóla. Mynd/aðsEnd Aðspurð segir Eva María ekki hafa séð aðra dýraspítala fylgja í kjöl- farið. „Það var reyndar einn sem hringdi í mig og spurði hvað ég væri að gera og af hverju ég væri að þessu en ég hunsaði það bara náttúrlega,“ segir hún og kveðst algjörlega viss um að það hefði áhrif ef fleiri lækka verð. „Það er hundrað prósent.“ n 2 fRéttiR FRÉTTABLAÐIÐ 11. mARs 2023 LAUGARDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.