Fréttablaðið - 11.03.2023, Blaðsíða 50
Ég held að þetta séu
orðnir allavega 1.900
fundir.
Merkisatburðir | 11. mars
Þetta gerðist | | 11. mars 1985
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN
Allur arður af þjónustunni rennur til reksturs kirkjugarðanna
Útfararþjónusta í yfir 70 ár
Við tökum vel á móti ástvinum
í hlýlegu og fallegu umhverfi
Sólarhringsvakt: 581 3300 & 565 5892
Komum til aðstandenda og ræðum skipulag sé þess óskað
Sverrir Einarsson
S: 896 8242
Jón G. Bjarnason
S: 793 4455
Jóhanna
Eiríksdóttir
Útfararstofa Íslands
www.utforin.is w Auðbrekku 1, Kópavogi
Útfararstofa Hafnarfjarðar
www.utfararstofa.is w Dofrahellu 9b, Hafnarfirði
1922 mahatma Gandhi fangelsaður fyrir borgaralega
óhlýðni.
1941 Línuveiðarinn Fróði verður fyrir árás þýsks kafbáts
suður af Vestmannaeyjum. Fimm sjómenn farast í
árásinni.
1984 Vélbáturinn Hellisey frá Vestmannaeyjum sekkur
og farast allir nema einn maður, Guðlaugur Frið-
þórsson, sem synti alla leið í land, um fimm kíló-
metra langa leið.
1985 mikhail Gorbatsjov verður leiðtogi sovétríkjanna.
1985 mohamed al-Fayed kaupir verslunina Harrods.
1993 Kr-klúbburinn er stofnaður í reykjavík.
1995 sænski íshokkíleikmaðurinn Peter Karlsson er
myrtur af nýnasista í Västerås.
2004 sprengjutilræði er framið í farþegalest í madrid.
190 manns farast.
2005 Nintendo Ds-leikjatölvan er gefin út í Evrópu.
2006 Íslandsbanki breytir nafni sínu í Glitnir banki hf.
2006 slobodan milošević, fyrrverandi forseti Júgóslavíu,
finnst látinn í fangaklefa sínum hjá stríðsglæpa-
dómstól sameinuðu þjóðanna í Haag í Hollandi.
2011 Jarðskjálfti upp á 9,1 stig skekur norðausturströnd
Japans og veldur gífurlegri flóðbylgju í kjölfarið. að
minnsta kosti 15.641 manns farast. Kjarnorkuverið
í Fukushima eyðileggst og veldur nokkurri geisla-
mengun.
mikhail Gorbatsjov átti glæstan
stjórnmálaferil að baki þegar hann
varð forseti sovétríkjanna. Hann gekk
í kommúnistaflokkinn 1952, ári áður
en hann kvæntist raisu maximovnu
og fór fyrir sendinefnd sovétríkjanna í
Belgíu 1972-1974. Hann varð svo aðal-
ritari flokksins við dauða Konstantíns
Tsjernenko 11. mars 1985 og beitti
ýmsum aðferðum til að lappa upp á
ímynd flokksins.
Hann sendi ekki sovéskar herdeildir
til að kveða niður frelsisbaráttu íbúa
mið-Evrópu 1989 og meinaði ekki
þýsku ríkjunum sameiningu 1990.
Gorbatsjov barðist gegn sundrungu
sovétríkjanna 1990 og var settur í
stofufangelsi af harðlínumönnum í
ágúst ári síðar. Hann sagði af sér emb-
ætti 25. desember 1991 og varð þar
með síðasti leiðtogi sovétríkjanna. n
Gorbatsjov leiðtogi Sovétríkjanna
Karlaklúbburinn hélt upp á fjöru-
tíu ára afmæli sitt í gærkvöldi, en
hópurinn hefur hist á fimmtu-
dögum og fengið sér hádegisverð
frá árinu 1983 og örsjaldan misst
úr fund.
jonthor@frettabladid.is
Fjörutíu ára afmæliskvöldverður Karla-
klúbbsins fór fram í gær, en í félaginu eru
þeir: Guðvarður Gíslason, Guðmundur
Örn Jóhannsson, Viktor Urbancic, Reynir
Kristinsson, Árni Rúdolf Rúdolfsson,
Friðrik Halldórsson, Sigfús Sverrisson,
Örn Arnarson, Bjarni Brandsson, Björn
Skaptason og Eyjólfur Kristjánsson,
betur þekktur sem Eyfi, en hann rakti
sögu félagsins í samtali við Fréttablaðið.
Í raun varð klúbburinn til árið 1981,
en vikulegir hádegisverðir hófust ekki
fyrr en 1983. Eyjólfur segir að í gegnum
tíðina hafi fjöldi matsölustaða orðið
fyrir valinu.
Þeir hafi byrjað á Brauðbæ, þar sem
nú er Snaps, en þeir hafa einnig verið
duglegir að fara á staði á borð við Kol,
Jónatan Livingston Máv, Apótekið og La
Prima Vera. Karlaklúbbsmennirnir hitt-
ust á þeim síðastnefnda í gærkvöldi. Um
var að ræða sérstakan hátíðarkvöldverð
og því fengu makar að koma með.
Yfirleitt fá félagarnir sér rétt dagsins,
sem er yfirleitt kjöt- eða fiskréttur. Eyfi
tekur þó sérstaklega fram að einhverjir
í hópnum séu lítið fyrir fiskinn. Síðan
spjalla þeir um liðna viku, daginn og
veginn.
Til að byrja með voru meðlimirnir tíu
talsins, en árið 1991 fékk veitingamaður-
inn Guðvarður Gíslason, einnig þekktur
sem Guffi, að ganga til liðs við þá. „Hann
var svona heiðursgestur. Hann er þó orð-
inn fullgildur meðlimur í dag,“ segir Eyfi.
Að sögn hans hafa margir viljað
ganga í klúbbinn í gegnum tíðina, en
færri komist að en vilja. „Það hafa ýmsir
bankað upp á og viljað vera með, en bara
Guffi hefur fengið það í gegn.“
Eyjólfur segir að frá 1983 hafi klúbb-
urinn örsjaldan misst út hádegisverði,
og það hafi helst verið á meðan heims-
faraldurinn stóð yfir. Að sjálfsögðu hafi
stundum sumir verið uppteknir eða
erlendis, en alltaf mæta einhverjir, hvort
sem þeir eru tveir eða þrír.
„Ég held að við höfum reiknað þetta
út einhvern tímann. Ég held að þetta
séu orðnir allavega 1.900 fundir,“ segir
Eyfi.
„Við vorum 22 eða 23 ára þegar þetta
byrjaði allt saman. Nú erum við allir
komnir á sjötugsaldur. En allir við hesta-
heilsu,“ bætir hann við. n
Ýmsir bankað upp á en bara
einn einasti fengið að vera með
Félagar í Karlaklúbbnum enn kampakátir eins og sjá má á þessari mynd sem tekin var í gærkvöldi. Fréttablaðið/anton brink
30 tímamót FRÉTTABLAÐIÐ 11. mARS 2023
LaUGaRDaGUR