Fréttablaðið - 11.03.2023, Blaðsíða 56

Fréttablaðið - 11.03.2023, Blaðsíða 56
Ég er því miður sálar- laus, þannig að fyrir mér er þetta einungis gjörningur. Ég fór í einhvers konar ham og vissi ekki að hún myndi birtast en ég fór að finna línur og dagbókarbrot og svo fattaði ég að þetta var Evgenía. Elías Knörr leitaði til hand- anheima við skrif ljóðabók- arinnar Áður en ég breytist og notaðist meðal annars við spíritisma. Hann kveðst þó sjálfur vera sálarlaus. Áður en ég breytist er nýjasta bók ljóðskáldsins Elíasar Knarrar og hans þriðja á íslenskri tungu. Elías er fæddur og uppalinn í Galisíu þar sem hann hóf skáldaferilinn áður en hann f luttist til Íslands fyrir rúmum áratug. Bókinni er lýst sem „svaðilför í ljóðum þar sem höfund- urinn keppist við að bjarga minn- ingum“ en ritunarsaga hennar er einkar áhugaverð. „Þetta er mjög löng og f lókin saga sem á heima í ýmsum víddum raunveruleikans. Það gerðist leiðin- legt atvik sem hafði mjög neikvæð áhrif á rithöfundahóp og mig. Ég þurfti sem sagt að skapa eitthvað til þess að tjá mig á móti og vildi líka fjalla almennt um samfélagið og mismunun,“ segir Elías yfir tebolla í Gröndalshúsi þar sem hann dvelur oft við skriftir. Elías hefur vakið mikla athygli í bókmenntaheiminum fyrir fram- úrstefnuleg ljóð sín en aðferðirnar sem hann notar við að skrifa þau eru ekki síður framúrstefnulegar. „Það sem ég gerði var að nota spíritisma, ég gerði einhvers konar gjörning fyrir sjálfan mig þar sem ég breyttist eða tók þessu verkefni að breytast í „trommumanninn“ sem stígur inn í kirkjugarð sam- félagsins eða tilverunnar, boðar heimsendi og vekur það fólk sem er ekki unnt eða kleift eða leyft að lifa heldur láta sig bara dreyma. Þetta er eins og í apokalypsis eða heims- endabókmenntum alls staðar í heiminum, eða að minnsta kosti í abrahamískum trúarbrögðum, þegar himnar opnast og þau sem voru dáin öðlast eilíft líf, hvort sem það er í helvíti eða í himnaríki,“ segir hann. Leiðsögumaðurinn Gröndal Í ljóðum sínum vekur Elías gjarnan upp raddir ýmissa látinna einstakl- inga, bæði raunverulegra og skáld- aðra. Þeirra á meðal er góðvinur hans, skáldið Benedikt Gröndal, sem lést árið 1907 en þeir Elías eiga sama afmælisdag, 6. október. „Ef Dante notaði Virgil sem leið- sögumann þá notaði ég Bensa. Hann er einhvern veginn alltaf með mér. Eina látna manneskjan sem ég heimsæki er hann, sem er dálítið sorglegt, af því að ég á líka ættingja,“ segir Elías. Þú hefur svolítið verið að ræða við Benedikt í gegnum tíðina? „Já, en ég tala ekki svo mikið við hann lengur. Sem stendur er ég ekki Sálarlaust skáld leitar innblásturs í spíritisma Elías faldi andlit sitt með bókar- kápu Áður en ég breytist er ljósmyndara Fréttablaðsins bar að garði. Fréttablaðið/ Ernir svo tengdur við „svona leiki“. Mér er erfiðara að ná sambandi og fá endurgjöf frá honum.“ Í stað Benedikts steig nýr karakt- er fram sem rödd í skáldskap Elíasar og birtist nú í fyrsta sinn á prenti. „Það er dálítið nýtt í bókinni að það er einungis ein manneskja sem stígur upp úr gröfinni. Af því bækur mínar eru svo sem hlaðnar af mis- munandi röddum. Það eru margir karakterar eða persónur sem koma fram en hér er aðallega ein kona. Hún heitir eða kallast Evgenía sem þýðir „sú vel borna“ á grísku. En þó hún hafi fæðst fullkomin þá er hún svo gölluð að hún á hvergi heima,“ segir hann. Trúir ekki á sálina Eins og Elías nefndi notaðist hann við spíritisma við skrifin í fyrsta skipti en þó ekki spíritisma í þeim skilningi að hann hafi farið á mið- ilsfund eða í andaglas. Slíkt myndi að öllum líkindum ekki gagnast Elíasi því hann trúir nefnilega ekki á sálina. Þorvaldur S. Helgason tsh @frettabladid.is Úr Áður en ég breytist: Á hundrað og þrettán ára af- mæli mínu varð ég loksins að unglingi uppgötvaði að ég væri með skriðjökul í brjóstaskorunni „Ég er því miður sálarlaus, þannig að fyrir mér er þetta einungis gjörn- ingur. Ég fór í einhvers konar ham og vissi ekki að hún myndi birtast en ég fór að finna línur og dagbókar- brot og svo fattaði ég að þetta var Evgenía. Þetta er enn f lóknara og flóknara af því að Evgenía var ein- hvers konar f lakkari sem rakst á persónu hjá sögum sem Nena Han- son, sem er dóttir Michaël Drake, hripaði niður.“ Michaël Drake er ein af persónum Elíasar, dularfullt ljóðskáld fætt ein- hvern tíma á bilinu 1441 til 1841, sem hann holdgerði meðal annars á viðburðum Rauða skáldahússins sem haldnir voru á árunum 2017 til 2019. Er það ekki svolítið þversagna- kennt að stunda spíritisma en trúa ekki á sálina? „Ég fæddist í Nornafirði þannig að ég var ekki í tölvuleikjum þegar ég var unglingur en ég var í spírit- isma, þó að ég tryði ekki á sálina. Af því þetta virkaði og það var rosa- lega spennandi! En þetta er ekkert áhugavert, það væri áhugavert ef einhver myndi stíga fram og segja: Heyrðu, ég þekki þessa Evgeníu!“ Tímaskekkjur og víddaflakk Spurður um hvaðan titill bókar- innar Áður en ég breytist kemur segir Elías hann meðal annars vísa í dauðann og handanheiminn. „Fyrst og fremst af því hún Evgenía er farin, í öllum þeim merk- ingum sem það getur þýtt. Hún er annars staðar og ég vildi ekki að þessi reynsla myndi hverfa.“ Að sögn Elíasar vísa ljóðin einnig í sköpunar- og heimsendasögur og hringlaga eðli tímans. „Þú veist ekki hvar byrjunin er, ég meina síðasta eða næstsíðasta dag- bókarbrotið heitir Byrjun og þegar fyrsta dagbókarbrotinu lýkur þá er sagt „þú færð ekkert/handan við blaðsíðuna!“ Það eru sem sagt tíma- skekkjur í bókinni, ekki bara af því Evgenía er tíma- og víddaflakkari, heldur líka til þess að þetta eigi við fleiri kynslóðir,“ segir Elías. n tsh@frettabladid.is Hallgrímur Helgason opnar sýn- inguna Hópmyndir af sjálfi í Lista- mönnum gallerí á Skúlagötu í dag, laugardag, klukkan 16.00. Sýningin samanstendur af nýleg- um málverkum og teikningum eftir Hallgrím sem eiga það allar sameiginlegt að vera eins konar sjálfsmyndir. Ekki er þó um hefð- bundnar portrettmyndir að ræða heldur sýna verkin þá mismunandi karaktera sem búa innra með lista- manninum og eru því margfaldar sjálfsmyndir, eins og titillinn „Hóp- myndir af sjálfi“ vísar í. „Ég held nú að allir geymi alls konar karaktera og menn eru sér- staklega nú á tímum í alls konar hlutverkum, maður er ábyrgur faðir eina stundina og svo grallari þá næstu. Ég hef lengi glímt við þetta, ég er náttúrlega bæði myndlistarmaður og rithöfundur og það eru stundum árekstrar og sambúðin hefur ekki alltaf gengið vel. Ég hef svona þurft að venjast henni og kannski er það það sem er kveikjan að þessari sýningu,“ segir Hallgrímur. Var það ekki einmitt bandaríska skáldið Walt Whitman sem sagði „I contain multitudes“ eða „Ég rúma mannfjölda“? „Jú, svo er líka mjög skemmtileg tilvitnun í Proust sem mér var bent á þar sem hann segir: „Ég er ekki einn heldur stöðugur straumur alls konar karaktera.“ Spurður um hverja af sínum fjölmörgu karakterum hann hafi dregið fram á málverkunum nefnir Hallgrímur meðal annars föðurinn, lista- manninn, rithöfundinn og baráttumanninn. „Það er þarna alla vega á einni mynd ein- hver gamall pólitískur baráttuhundur, orðinn eineygður og illa farinn. En ég byrja bara með tóman striga og svo sé ég til hvað kemur og reyni að vera opinn fyrir öllu. Svo kannski eftir á setur maður penna í hönd á einhverjum karakter og pensil í hönd annars. Annars er það oft skemmtilegast þegar maður veit ekki alveg hvaða karakter þetta er, þetta er bara eitthvað sem býr innra með manni og fyrst það kom á strig- ann þá hlýtur það að vera hluti af mér,“ segir Hallgrímur. Hallgrímur starfar jöfnum hönd- um sem rithöfundur og myndlistar- maður og vinnur nú að framhaldi á hinum sívinsælu síldarævintýris- bókum sínum, Sextíu kíló af sól- skini og Sextíu kíló af kjaftshöggum, en hann hlaut Íslensku bókmennta- verðlaunin fyrir hvora um sig. „Það er svona meiri pressa í bók- menntabransanum að koma með næstu bók. Ég er sem sagt að vinna í þriðju bindinu af þessum Sextíu kílóa þríleik. Þetta er allt skemmti- legt. Það er voða gaman að vera listamaður og geta gert allan fjand- ann,“ segir Hallgrímur. n Hópmynd af Hallgrími Helgasyni Eitt af málverk- um Hallgríms á sýningunni, Sex- föld sjálfsmynd í firði, akrýl á striga, 2021. Mynd/HallgríMur HElgason Hallgrímur Helgason 36 menning FRÉTTABLAÐIÐ 11. mARS 2023 LAUgARDAgUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.