Fréttablaðið - 11.03.2023, Blaðsíða 40
Við Grandagarð í Vesturhöfn
er að finna skapandi smiðju
sem ber heitið Noztra sem
hefur dregið að sér gesti og
gangandi eins og segull frá
opnun. Þar getur fólk fengið
útrás fyrir leynda sköpunar-
hæfileika sína og fengið að
njóta sín í kyrrð og ró.
sjofn@frettabladid.is
Unnur Knudsen og fjölskylda henn-
ar hafa byggt um Noztru-ævintýrið
ásamt vinahjónum sínum. Unnur
er listhneigð og hefur alla tíð verið
skapandi, full af orku þegar kemur
að hönnun og listsköpun.
Unnur er fædd og uppalin í
vestur- og miðbæ Reykjavíkur.
Hún er stúdent frá Verzlunarskóla
Íslands og þaðan lá leiðin í listnám.
„Ég er alin upp við mikið af fallegri
myndlist í kringum mig, afi og
amma áttu heimili sem var þakið
málverkum og teikningum. Hef
samt ekki hugmynd um af hverju ég
lagði af stað í listnám,“ segir Unnur
og hlær. „Ég lauk námi í textílhönn-
un frá MHÍ og var svo heppin að
vera boðið strax að námi loknu að
verða hluti af Kirsuberjatrénu, sem
er hönnunargallerí á Vesturgötu.
Þar kynntist ég ótrúlega skemmti-
legum og gefandi konum. Að fara
strax eftir nám í að vinna með
skapandi fólki með fjölbreyttar
hugmyndir og ólíkar skoðanir held
ég að hafi gefið mér gott veganesti.“
Unnur byrjaði að kenna mynd-
list við Verzlunarskólann árið 2007
og fór í framhaldi af því í list-
kennslunám við LHÍ. „Ég útskrifast
þaðan með M.Ed. í kennslufræði
listgreina.
Verzlunarskólinn sem vinnu-
staður er einstakur og ég var svo
lánsöm að fá að vera með í því að
móta nýja námsleið við skólann,
Nýsköpunar- og listabraut. Ég hef
kennt þar hönnunar- og listgreinar
síðastliðin ár.“
Eiginmaður Unnar er Þröstur
Leósson og eiga þau samtals fimm
uppkomin börn. „Þau eru öll best
og þótt þau séu jafn ólík og viku-
dagarnir fimm erum við svo heppin
að þau ná vel saman og hafa þau öll,
ásamt tengdabörnum fylgt okkur
inn í Noztru-ævintýrið,“ segir
Unnur og er afar þakklát fyrir hve
samhent fjölskyldan hefur verið í
rekstrinum á Noztru.
Hefur ástríðu fyrir þessu
Unnur hefur mikinn áhuga á
listum og fólki og hvað listiðkun
gerir fyrir fólk og í raun samfélög í
heild.
„Ég trúi því að við höfum öll þörf
fyrir og öll getu til að skapa. Ég held
að ég hafi gert mér grein fyrir þessu
þegar ég fór að kenna og fékk að
upplifa það að horfa á nemendur
gleyma sér í skapandi vinnu. Sjá
þau detta inn í eitthvert flæði þar
sem allt annað gleymist, ótrúlega
gefandi. Ég hef alltaf lagt áherslu á
það í kennslunni að skapa rými þar
sem ríkir ró því það er svo margt
hjá krökkum í menntaskólum sem
býr til pressu. Þessi ró ásamt því að
fá að vinna að einhverju skapandi
er eitthvað sem ég hef fundið að
ég brenn fyrir og vil leggja mikla
áherslu á hjá okkur á Noztru.“
Þau eru tvenn hjón sem reka
Noztru saman. „Upphaflega hug-
myndin að Noztru kemur frá með-
eigendum okkar sem eru búsettir
í Danmörku. En þaðan má segja
að fyrirmyndin komi. Það kom
svo reyndar í ljós þegar við fórum
að grennslast fyrir um smiðjur
af þessu tagi að þær þekkjast úti
um víða veröld, bæði í Norður-
Ameríku og Evrópu. Það að stofna
fyrirtæki er auðvitað langt og dýrt
ferli og gengur ekki upp nema með
aðkomu margra. Það er tvennt sem
kannski stendur upp úr, annars
vegar hversu dýrmætt samstarf við
áttum við alla sem komu að fram-
kvæmdinni og hins vegar hversu
seinlegt ferli það er að fá leyfi fyrir
rekstri,“ segir Unnur og er þakklát
fyrir hve vel hefur tekist til.
Aðspurð segir Unnur að Noztra
sé skapandi smiðja fyrir alla. „Þar
seljum við forbrennda leirmuni og
aðstöðu til að mála þá. Hugmyndin
snýst fyrst og fremst um það að
skapa rými og verkefni þar sem
hægt er að gleyma sér um stund
í skapandi vinnu. Nafnið Noztra
kemur frá grafíska hönnuðinum
okkar, en eftir að hann hafði rann-
sakað hugmyndafræði Noztru
stakk hann upp á þessu nafni sem
við gætum ekki verið ánægðari
með. Passar fullkomlega við.“
Óviðjafnanlegt útsýni
Hlutirnir í Noztru ganga vel fyrir
sig. „Þetta virkar þannig að við-
skiptavinur velur sér keramikhlut,
en innifalið í verði hlutarins er öll
málning, verkfæri, tveir tímar í sal
og svo glerjun og brennsla. Hlutur-
inn er svo skilinn eftir hjá okkur í
nokkra daga þar sem hann er gler-
jaður og brenndur. Leyndardómur-
inn er að fá að gleyma sér,“ segir
Unnur og bætir við að tilfinningin
að sjá fólk gleyma sér í sköpuninni
sé ólýsanlega góð.
Staðsetningin fyrir Noztru sé
líka ómetanleg, í beinum tengslum
við hafið og fallegt útsýni sem er
líkt og lifandi málverk. „Þegar við
vorum að velja Noztru stað fannst
okkur Grandinn eiga vel við og
við vorum svo heppin að finna
þetta dásemdarhúsnæði. Vestur-
höfn er sögufrægt hús, byggt um
1960, teiknað af Gísla Halldórssyni.
Núverandi eigendur létu byggja
framhliðina á aðalsalnum okkar og
bryggjuna sem gefur óviðjafnan-
lega sýn út yfir höfnina og birtu inn
á Noztru.“
Að sögn Unnar hafa viðtökurnar
verið góðar. „Noztra hefur vaxið
með passlegum hraða frá því við
opnuðum fyrir um 16 mánuðum.
Það sem hefur verið sérstaklega
skemmtilegt er að sjá hversu fjöl-
breyttur aldur og fjölbreyttir hópar
koma og allir virðast hafa gaman
af og þannig vonum við auðvitað
að það komi til með að vera,“ segir
Unnur að lokum. n
Leyndardómurinn er að geta gleymt sér
Unnur Knudsen
er einn eigenda
Noztru sem er
skapandi smiðja
á Grandagarði
í sögufrægu
húsi, Vestur-
höfn. Unnur
hefur brennandi
áhuga á því sem
hún er að gera í
Noztru.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINk
Viðskiptavinur
Noztru velur sér
keramikhlut,
en innifalið í
verði hlutarins
er öll málning,
verkfæri, tveir
tímar í sal og
svo glerjun og
brennsla.
Úrvalið af
keramikhlutum
er óendanlegt
og allir ættu að
geta fundið sér
eitthvað við sitt
hæfi þar sem
persónuleiki
hvers og eins
fær að njóta sín.
Vinir og fjöl-
skyldur koma
gjarnan saman
á Noztru og
eiga þar saman
notalega og
skapandi stund.
6 kynningarblað A L LT 11. mars 2023 LAUGARDAGUR