Fréttablaðið - 11.03.2023, Qupperneq 12
Útgáfufélag: Torg ehf. Stjórnarformaður: Helgi Magnússon forStjóri og Útgefandi: Jón Þórisson ritStjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is aðStoðarritStjóri: Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is
fréttaStjóri: Lovísa Arnardóttir lovisa@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út fimm daga í viku og hægt er að nálgast það ókeypis á 120 fjölförnum stöðum á höfuðborgarsvæðinu, á Suðurnesjum, Árborg, Ölfusi, Akranesi, Borgarnesi,
Akureyri og víðar. Að auki er blaðið aðgengilegt í pdf-formi og í appi. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 fréttaBlaðið Kalkofnsvegur 2, 101
reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is. VefStjóri: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is marKaðurinn: Guðmundur Gunnarsson ggunnars@frettabladid.is HelgarBlað: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is
menning: Þorvaldur S. Helgason tsh@frettabladid.is Íþróttir: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is ljóSmyndir: Anton Brink anton@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Eða sér er
nú hver
smæðar-
hag-
kvæmnin.
Sigmundur Ernir
Rúnarsson
ser
@frettabladid.is
Mín skoðun
Gunnar
Sif
Sigmarsdóttir
Árið 2009 lifði hin 24 ára Susannah Cahalan
öfundsverðu lífi sem minnti á sjónvarps-
seríuna Sex and the City. Hún starfaði sem
blaðamaður hjá New York Post, bjó á besta
stað á Manhattan, átti sér fjörugt félagslíf og
nýjan kærasta.
Dag einn tók Susannah eftir því að hún var
með skordýrabit á hendinni. Hún sannfærð-
ist um að veggjalýs plöguðu heimili hennar.
Þegar meindýraeyðir fann engin ummerki
um skaðvaldinn trúði hún honum ekki og
krafðist þess að hann úðaði íbúðina eitri.
Á leið í vinnuna gekk Susannah yfir Times
Square. Birta auglýsingaskiltanna olli henni
stingandi höfuðverk. Á ritstjórnarskrifstof-
unni fannst henni veggirnir anda. Hún skreið
undir skrifborðið sitt og grét. Eitthvað var að,
en hún vissi ekki hvað.
Kvöld eitt fékk Susannah heiftarlegt
krampakast. Læknisrannsóknir leiddu hins
vegar ekkert í ljós. Henni var sagt að ekkert
amaði að henni.
En krampaköstin ágerðust. Það gerði
ofsóknaræði hennar líka. Hún óttaðist ekki
aðeins veggjalýs heldur var hún sannfærð
um að kærasti hennar væri henni ótrúr og að
faðir hennar vildi hana feiga.
Fjölskylda Susönnuh var sannfærð um
að sjúkdómur hennar væri af líkamlegum
toga. En þegar einn fremsti taugalæknir New
York-borgar sagði hana einfaldlega þurfa
að „minnka partístandið“ var hún send til
geðlæknis og greind með geðhvarfasýki.
Susönnuh hélt þó áfram að hraka. Hún hætti
að geta talað, gengið og nærst. Hún urraði
eins og dýr og varð ofbeldishneigð.
Susannah var við dauðans dyr þegar læknir
ákvað að leggja fyrir hana próf. Hún átti að
teikna klukkuskífu. Susönnuh tókst að ljúka
verkinu. Tölurnar skrifaði hún hins vegar
allar öðrum megin á skífuna. „Heili hennar
brennur,“ sagði læknirinn. Prófið sýndi
fram á líkamlegan kvilla. Susannah var 217.
sjúklingurinn sem greindist með sjaldgæfan
sjálfsónæmissjúkdóm þar sem líkaminn
ræðst á ákveðin svæði heilans.
Susannah skrifaði metsölubókina „Brain
on fire“ um reynslu sína. Í nýlegu viðtali við
Breska ríkisútvarpið minntist Susannah þess
að áratugur er liðinn frá útkomu bókarinnar.
Í viðtalinu sagði hún frá viðhorfsbreytingu,
sem hún fann fyrir innan heilbrigðiskerfisins,
þegar í ljós kom að sjúkdómur hennar var af
líkamlegum toga en ekki geðrænum.
Þegar talið var að Susannah þjáðist af geð-
röskun var látið í það skína að ástand hennar
og hegðun væru henni sjálfri að kenna. „Fólk
var pirrað út í mig, sagði mig erfiðan sjúkling,
það horfði ekki í augun á mér, snerti mig
ekki.“ Það breyttist við greiningu sjálfs-
ónæmis. „Áhugi ríkti í kringum líkamlegu
greininguna sem var ekki til staðar þegar
greiningin var geðsjúkdómur.“
Ákall Örnu
Í vikunni skrifaði Arna Pálsdóttir, lögfræð-
ingur og móðir, grein á visir.is um átröskun
dóttur sinnar. Í greininni kallar Arna eftir
hugarfarsbreytingu í garð geðraskana.
Arna segir fjölskylduna hafa margoft leitað
á heilsugæsluna. „Þegar við mætum er horft
á okkur eins og við séum geimverur, úrræða-
leysið er algert.“ Hún gagnrýnir átröskunar-
teymi Barna- og unglingageðdeildar Land-
spítalans. „Þangað er ekki hægt að leita nema
þegar veikindi eru orðin mjög alvarleg t.d. ef
barn er í sjálfsvígshættu.“ Hún spyr: „Sjáum
við fyrir okkur barn vera greint með sykur-
sýki hér á landi en að viðeigandi meðferð sé
ekki í boði fyrr en sjúkdómurinn er orðinn
lífshættulegur, jafnvel kominn á lokastig?“
Viðhorfsmunur til líkamlegra sjúkdóma
og geðsjúkdóma kostaði Susönnuh Cahalan
næstum lífið.
Dánartíðni vegna átraskana er ein sú hæsta
af öllum geðsjúkdómum. Hverju hyggjast
heilbrigðisyfirvöld svara ákalli Örnu Páls-
dóttur? n
Banvænn viðhorfsmunur
Lífseigasta bábilja íslenskrar þjóðmála-
umræðu fjallar um mikilvægi þess að
gjaldmiðillinn sem hér á landi er not-
aður til heimabrúks geti sveiflast í anda
óreglunnar í efnahagsmálum. Lands-
menn þurfi óstöðuga mynt.
Raunin er auðvitað sú að krónan hefur ekki
einasta tapað trúverðugleika sínum í huga allra
annarra en einstaka eyjarskeggja sem neita
að yfirgefa Sumarhúsin á heiðum uppi, heldur
hefur hún margfaldlega tapað verðgildi sínu frá
því hún kom til sögunnar fyrir einni öld. Þess
utan hefur þurft að skera undan henni eins og
raunin varð fyrir röskum fjörutíu árum.
Og það var kallað því ljúfsára nafni mynt-
breyting.
Hundrað gamlar krónur urðu að einni krónu.
En það er auðvitað ekki myntbreyting. Það er
gjaldfelling. Enn eitt arðránið.
Og þar er komin saga krónunnar. Hún er
óreglumaðurinn á heimilinu. Hún er ofbeldis-
maðurinn í atvinnulífinu. Hún sveiflast án fyrir-
sjáanleika sem gerir alla áætlanagerð að engu,
jafnt í heimahúsum og á vinnustöðum.
Og eftir situr meðvirk þjóð í moldarkofa sinna
hugsana.
Grunnurinn að traustum efnahag er stöðugur
gjaldmiðill. Það liggja engin Nóbelsverðlaun að
baki þeirri hagfræði, heldur skynsemi.
Traustur gjaldmiðill er ein helsta forsenda
lágra vaxta. Og lágir vextir eru mikilvægasta
hreyfiaflið í hagvaxtardrifnum hagkerfum.
Það eru þeir sem þurfa lán og þeir sem taka lán
sem framkvæma.
Hinir safna sjóðum sem horfa til hárra vaxta.
Það er af þessum sökum sem atvinnurekstur
á Íslandi er einstaklega óaðlaðandi í huga stórra
og smárra fyrirtækja úti í heimi. Ótryggt vaxta-
umhverfi og endalausar sveiflur á genginu eru
beinlínis fráhrindandi.
Þess vegna þrífst fákeppnin á Íslandi. Það á við
um banka. Það á við um tryggingafélög. Það á
við um allan samkeppnisrekstur á Íslandi.
Eða sér er nú hver smæðarhagkvæmnin.
Refsivistin í íslenska krónuhagkerfinu hefur
verið lífstíðardómur. Á bak við rimlana húkir
þjóðin í hærra verðlagi en nokkrir aðrir Evrópu-
búar geta sætt sig við.
Jafnvel okkar næstu nágrannar hrista höfuðið.
Færeyingar hafa búið við fast gengi í áratugi,
enda eru þeir bundnir evrunni í gegnum danska
krónu. Og eru þeir þó álíka lítil eyja úti í miðju
ballarhafi sem hefur veðjað á sjávarútveg og
landbúnað frá því elstu menn muna eftir.
Jafnvel þeir trúa ekki á sveiflurnar.
Það er að vonum að æ fleiri Íslendingar átta sig
á að við þurfum á raunverulegri myntbreytingu
að halda. Hlutverki þolendanna við ysta haf er
nefnilega lokið. n
Myntbreyting
Sjáum við
fyrir okkur
barn vera
greint með
sykursýki
hér á landi
en að við-
eigandi
meðferð sé
ekki í boði
fyrr en
sjúkdóm-
urinn er
orðinn lífs-
hættulegur,
jafnvel
kominn á
lokastig?
Sjálfvirkur
opnunarbúnaður og
snertilausir rofar frá
Þýsk gæðavara.
Snertilausir rofar
Skútuvogi 1h - Sími 585 8900
www.jarngler.is
12 skoðun FRÉTTABLAÐIÐ 11. MARs 2023
LAuGARDAGuR