Fréttablaðið - 11.03.2023, Side 14
Það var alveg mikil
gleðistund að fá þær
fréttir að maður myndi
vera hluti af þessu.
Gunnar Nelson,
UFC-bardagakappi
Slétt vika er þar til íslenski
UFC-bardagakappinn Gunn-
ar Nelson stígur á ný inn í
bardagabúrið og freistar þess
að hengja mann á stærsta bar-
dagakvöldi UFC í Evrópu frá
upphafi.
aron@frettabladid.is
UFC Undirbúningur Gunnars fyrir
bardagann hefur gengið vonum
framar, hann er upp á sitt besta
þessa dagana. Bardaga-
kvöldið fer fram á
því sem mætti kalla
heimavöll hans í
UFC, O2 höllinni í
Lundúnum, en þar
hefur Gunnar háð
margar rimmurnar.
Nú mætir hann
Bandaríkjamann-
inum Bryan Barbe-
rena.
„Undirbúningur-
inn fyrir þennan bar-
daga hefur gengið mjög
vel og er í raun bara með
þeim betri á UFC-ferli
mínum,“ segir Gunnar
við Fréttablaðið. „Skrokk-
urinn er að sama skapi
heill, ég er í mjög góðu
formi og klár í slaginn.“
Setti strik í reikninginn
Tæpt ár er liðið frá því að Gunnar
steig síðast inn í bardagabúrið og var
það einmitt á bardagakvöldi í O2
höllinni. Þar vann hann yfirburða-
sigur á Takashi Sato eftir að hafa
fyrir bardagann verið frá keppni í
yfir tvö og hálft ár.
Vonir stóðu til að Gunnar myndi
stíga hratt og örugglega inn í
bardaga búrið á nýjan leik eftir sigur-
inn á Sato en eftir bardagann kom í
ljós að hann þyrfti á tvöfaldri aðgerð
á nefi að halda.
Þó svo að um vonbrigði væri að
ræða ákvað Gunnar að láta þetta
ekki draga sig niður.
„Það þýddi bara ekkert fyrir mig
að fara að svekkja mig á þessari
stöðu sem kom upp. Ég hafði verið
með það lengi á bak við eyrað að
hún gæti akkúrat komið upp. Það
hafði liðið langur tími frá því að
læknar höfðu ullað því að mér að
þetta væri aðgerð sem ég þyrfti á
endanum að fara í.
Staðan snöggversnaði í bardag-
anum gegn Sato í fyrra og þá var
ekki um annað að ræða en að fara
í þessa aðgerð. Auðvitað tók þetta
aðeins frá manni skriðið sem maður
var kominn á og ætlaði sér að við-
halda en þetta er bara staða sem
ég hef þurft að eiga við.“
Nær ákveðnum fókus á Írlandi
Gunnar hefur eytt drjúgum tíma af
undirbúningi sínum fyrir komandi
bardaga á Írlandi, nánar tiltekið hjá
bardagasamtökunum SBG sem eru
jafnframt höfuðstöðvar John Kav-
anagh, þjálfara Gunnars.
Þangað hefur Gunnar sótt í
aðdraganda bardaga sinna í gegnum
tíðina.
Hvað er það sem þú færð út úr því
að verja tíma þarna við æfingar?
„Þarna eru nýir æfingafélagar, bar-
dagamenn sem eru að keppa
á atvinnumannastigi og með
því að fara þarna út næ ég að
brjóta tempóið upp í undir-
búningnum. Að gera þetta
hefur reynst mér mjög vel í
gegnum tíðina, þetta hefur verið að
hjálpa mér töluvert. Með þessu næ
ég ákveðnum fókus á það sem ég
er að reyna að ná fram.
Það er enginn aragrúi af
æfingafélögum hér heima á
Íslandi þó svo að við höfum náð
að byggja upp mjög flott starf
hjá Mjölni. Það eru mjög góðir
glímumenn hér heima á Íslandi
en vantar kannski aðeins upp
á eitt og annað hvað varðar
MMA.
Þá er það náttúrulega
stór hluti af því að fara út
til Írlands að geta æft betur
undir handleiðslu þjálfara
míns, John Kavanagh, og að
vera í kringum hann.“
Sama gamla sagan
Í gegnum UFC-feril Gunn-
ars hefur það oft komið
upp að skipta hefur þurft
um andstæðing hans í
aðdraganda bardaga, slík staða
kom í aðdraganda þessa bardaga.
Upphaflega átti Gunnar að mæta
Daniel Rodriguez, sá þurfti hins
vegar að draga sig úr bardaganum og
mun Gunnar þess í stað mæta Bryan
Barberena.
„Ég er orðinn mjög vanur því að
þetta komi upp og er því ekki að
stressa mig um of á þessu. Hvað þetta
sérstaka tilfelli varðar þá vill nú
svo vel til að skipt var úr þeim and-
stæðingi sem ég átti að mæta, Daniel
Rodriguez, yfir í mjög sambærilegan
bardagamann að einhverju leyti í
Bryan Barberena þó þetta verði nú
aldrei sami andstæðingurinn þá er
þetta andstæðingur sem vill láta
höggin tala, svokallaður „southpaw“
bardagastíll. Þetta er bara fínt.“
Maður sem er til í að slást
Hverjar eru helstu ógnirnar sem
munu steðja að þér í bardaganum
gegn Barberena?
„Ég myndi segja að ég þyrfti að
passa mig á spörkunum hans í lappir
sem og aðrar leiðir hans til þess að
reyna að koma á mig höggi stand-
andi, til að mynda með olnbogan-
um eða bara þessum hefðbundnu
handarhöggum. Bryan er reyndur
bardagakappi innan UFC, hann
hefur verið lengi í þessu og nær oft
að draga menn inn í einhverja vit-
leysu í bardaganum sjálfum. Hann
tórir oft lengi í búrinu, og er alveg til
í að slást.“
Mikil gleðistund
Eins og fyrr sagði er komandi bar-
dagakvöld UFC í London stærsta
bardagakvöld sambandsins í Evrópu
frá upphafi. Allt frá því að orðrómur
um bardagakvöldið fór á kreik var
um að ræða viðburð sem Gunnar og
hans teymi vildu verða hluti af.
„Við vorum búnir að stefna að
þessu í smá tíma, alveg frá því að
við fengum veður af hugmyndum
UFC um að halda þetta stærsta bar-
dagakvöld Evrópu í London. Okkur
langaði alveg rosalega mikið að taka
þátt á þessu kvöldi og létum UFC
vita af því strax. Það var alveg mikil
gleðistund að fá þær fréttir að maður
myndi vera hluti af þessu.“
Áður andstæðingar en nú vinir
Aðalbardagi kvöldsins er titilbardagi
ríkjandi meistara veltivigtardeildar-
innar Leon Edwards og Kamaru
Usman, fyrrverandi meistara. Þetta
er þriðji bardagi þeirra. Edwards
og Gunnar mættust á sínum tíma
í búrinu í bardaga sem endaði
með sigri Edwards á klofinni
dómaraákvörðun.
Edwards og Gunnar eru
hins vegar mestu mátar
í dag og hafa átt í góðum
samskiptum í aðdraganda bar-
dagans.
„Hann er bara vel stemmdur,“
segir Gunnar um Edwards sem mun
reyna að verja titil sinn á heima-
velli. „Við áttum smá spjall í upphafi
undirbúningsins hjá mér fyrir þetta
bardagakvöld, þá voru uppi hug-
myndir um að við myndum æfa eitt-
hvað saman í aðdraganda bardaga-
kvöldsins en svo hentaði það ekki.
Ég held að hann hafi átt betri
daga en í síðasta titilbardaga hans
og Usman, þrátt fyrir að hann hafi
rotað hann undir lok bardagans í
síðustu lotu. Mér fannst hann ekki
vera neitt sérstakur fram að því,
kannski fyrir utan fyrstu lotuna.
Hann virtist vera eitthvað þreytu-
legur, var náttúrulega að berjast
þarna í Salt Lake City, borg sem
er nokkuð hátt yfir sjávarmáli í
umhverfi sem hann er ekki vanur
að berjast í, það spilaði svolítið á
þolið hjá honum að mínu mati. Ég
held að hann verði miklu öflugri
núna, á heimavelli í London.“
Vill hengja menn
Lokahnykkur undirbúningsins
hjá Gunnari fyrir bardagakvöldið
er fram undan. Hvað munu næstu
dagar fram að bardaga fela í sér?
„Ég mun lítið sem ekkert sparra
þessa næstu daga, núna snýst þetta
bara um að halda dampi. Maður
skrúfar aðeins niður í æfingunum
þar sem maður er að lenda í því að
fá högg á sig. Á sama tíma þarf ég að
halda áfram að svitna til þess að ná
þyngdinni niður. Þetta snýst rosa
mikið um að halda bara flæði núna.“
Hvernig sérðu bardagann gegn
Barberena spilast fyrir þig? Hverju
viltu ná fram?
„Það er náttúrulega bara alltaf
skynsamlegt fyrir mig að ná and-
stæðingum mínum á bakið og níð-
ast á þeim þar. Það verður plan A
en hvernig ég framkvæmi það plan
getur verið flóknara en að segja það.
Mitt leikplan er að hengja menn.“ n
Stígur inn í búrið
á heimavelli
Barberena býr yfir
mikilli reynslu í UFC.
Gunnar mætir
á kunnuglegar
slóðir í London.
14 íþróttir FRÉTTABLAÐIÐ 11. mARs 2023
LAUGArDAGUr