Fréttablaðið - 11.03.2023, Qupperneq 19
Ég hef
alltaf verið
í yfirvigt og
í smáslag
við það en
síðustu ár
hef ég
fundið smá
jafnvægi í
þessu og í
dag er ég
léttari en
ég hef
verið
svona
síðustu 10
eða 20
árin.
Það er alveg ótrúlegt
að sjá fólk jafnvel
syngja með lögum sem
ég hélt kannski að
væru ekki svona vin-
sæl. Þetta er ótrúlega
fallegt og mikil bless-
un, bara að hafa ein-
hvern veginn getað
gert þetta.
Einar er maður
margra hatta og
segist þakklátur
fyrir sinn feril.
Hans nýjasta
verkefni er hlað-
varpið Einmitt.
Fréttablaðið/
Valli
minni sem heitir líka Klara,“ segir
Einar.
Nokkrum árum eftir að Einar
stofnaði stúlknabandið Nylon
stofnaði hann strákasveitina Luxor
sem ekki varð eins langlíf og Einar
hafði gert sér vonir um.
„Á þessum tíma gáfum við út
klassíska plötu með Garðari Cortes
sem fór á toppinn í Bretlandi og
var tilnefnd til bresku tónlistar
verðlaunanna, Nylon var að spila
á Wembley og úti um allt en svo er
fólk alltaf hlæjandi að mér vegna
Luxor. Eins og núna þegar Back
street Boys eru að koma hingað þá
fer það aftur í gang. Maður er búinn
að gera svo margt en ef nafn Einars
Bárðarsonar kemur fram í spurn
ingakeppni framhaldsskólanna þá
er það alltaf um Luxor f lokkinn,“
segir Einar.
„Ég ber einn ábyrgð á því hvernig
fór, þetta voru og eru flottir strákar.
Ég var þarna með of mörg járn í eld
inum og gat ekki sinnt þessu eins
og ég hefði viljað og maður uppsker
eins og maður sáir.“
Erfið lífsreynsla
Einar er giftur Áslaugu Thelmu Ein
arsdóttur. Hún hefur undanfarin
ár verið mikið í fjölmiðlum eftir
að henni var fyrirvaralaust vikið
úr starfi hjá Orku náttúrunnar,
undirfyrirtæki Orkuveitu Reykja
víkur. Áslaug greindi frá því árið
2018 að henni hefði verið sagt upp
eftir að hafa kvartað undan fram
komu yfirmanns síns. Hún höfðaði
mál á hendur Orku náttúrunnar og
Landsréttur komst að þeirri niður
stöðu á síðasta ári að Orka náttúr
unnar hefði brotið gegn Áslaugu
Thelmu með því hvernig uppsögnin
var framkvæmd og var bótaskylda
fyrirtækisins viðurkennd.
Einar segir málið hafa haft mikil
áhrif á fjölskylduna. „Við erum
samheldin hjón og höfum gengið
í gegnum alls konar mál sem hafa
komið til okkar í gegnum tíðina og
ég er alveg rosalega stoltur af henni,“
segir Einar.
„Hún fórnaði gríðarlega miklu
með því að stíga fram og það sér
ekki enn fyrir endann á því, þetta
mál er enn þá í gangi,“ segir hann
og bætir við að nú sé dómkvaddur
matsmaður að fara yfir málið og
þann miska sem Áslaug varð fyrir.
„Ég held að það hafi enginn
vinnuveitandi á Íslandi smánað
einn einstakling með jafn ógeð
felldum hætti og gert var í þessu
tilfelli. Miðað við hvað eignarhald
Orkuveitu Reykjavíkur liggur víða
er með ólíkindum að enginn hafi
þurft að taka ábyrgð,“ segir Einar.
„Þrátt fyrir að málið hafi unnist í
Landsrétti og uppsögnin hafi verið
dæmd ólögmæt og fyrirtækið sakað
um vítavert gáleysi gagnvart starfs
manninum þráast þau við,“ bætir
Einar við.
„Þetta er búið að hafa mikil áhrif
á okkur og búið að vera ömurlegt.
Ég myndi ekki ráðleggja neinum,
alla vega ekki þeim sem mér þykir
vænt um, að stíga fram og segja frá
í svona aðstæðum. Ég get ekki mælt
með þessu fyrir nokkurn mann af
því að þegar til kastanna kemur þá
er sá sem stígur fram bara einn síns
liðs, og sérstaklega gagnvart svona
pólitísku veldi eins og Orkuveitan
er,“ segir Einar.
„Og þetta segi ég í því samhengi
að hún væri líklega búin að draga
sig út úr þessu ef ekki væri fyrir það
að hún vill ekki að einhver annar
þurfi að taka þessa baráttu og ganga
í gegnum það sama. Þess vegna vill
hún klára þetta en þetta hefur verið
mjög erfið lífsreynsla,“ segir Einar.
„Seinni árin höfum við mest verið
að passa að tala sem minnst um
þetta út á við og gæta þess þannig
að þetta marki ekki líf okkar og fjöl
skyldunnar meira en þarf. En ég veð
eld og brennistein með þessari konu
og geri það stoltur,“ bætir Einar við.
Votlendissjóður
Einar hefur verið starfandi fram
kvæmdastjóri Votlendissjóðs frá
árinu 2019. Fyrir rúmum mánuði
síðan lét sjóðurinn af sölu kolefnis
eininga og Einar hætti störfum. „Til
þess að örva landeigendur til sam
starfs vildum við fá alþjóðlegar
vottanir á vinnu sjóðsins og það er
vinna sem er ekki auðvelt mál. Það
er enginn í heiminum með vottun í
þessum ferlum og þannig um frum
kvöðlastarf að ræða,“ útskýrir Einar.
„Það hefur mikil upplýsinga
óreiða verið í gangi um endurheimt
votlendis sem erfitt hefur verið að
vinda ofan af,“ segir Einar. „Núna
eru Landgræðslan og Landbúnað
arháskóli Íslands að vinna saman
tektir á öllum þeim rannsóknum
sem unnar hafa verið á framræstum
mýrum á Íslandi en birting þeirra
niðurstaðna er forsenda vottunar
innar sem við erum að sækja um,“
bætir hann við.
„Fyrra módel sjóðsins bauð land
eigendum að endurheimtin væri
unnin þeim að kostnaðarlausu.
Ekki bara sem loftslagsaðgerð
heldur líka endurheimt vistkerfa
mýranna sem er ekki síður mikil
væg,“ segir hann. „Umhverfið frá
stofnun sjóðsins hefur hins vegar
tekið hröðum breytingum sem við
höfum sjálf tekið þátt í að móta og
nú viljum við halda áfram að vera
þetta samfélagslega afl ábyrgðar og
sækja okkur öflugustu vottun sem
hægt er að fá á svona starfsemi,“
segir Einar stoltur og bætir við að
sjóðurinn sé sjálfseignarsjóður og
ekki hagnaðardrifinn.
Þrátt fyrir að starfa ekki enn fyrir
Votlendissjóð brennur endurheimt
votlendis á Einari og mun hann vera
stjórn sjóðsins og stjórnarformanni
hans innan handar í þeirri vinnu
sem fram undan er. „Magnið af
koltvíoxíði sem við höfum bundið
er á við þúsundir bifreiða árlega
en við hefðum viljað gera miklu
meira,“ segir hann.
„Þegar þú endurheimtir jörð einu
sinni þá ertu í rauninni að stöðva
árlega losun mörg ár fram í tímann.
Svo er önnur vídd í þessu sú að þegar
við endurheimtum mýrlendi þá
erum við að endurheimta vistkerfi,
svæðið tekur sitt upprunalega líf
aftur. Sá hluti vinnunnar hefur verið
mér mesti hvatinn í þessari vinnu.“
Ekki mikill djammari
Um síðustu aldamót var Skítamórall
á toppi ferilsins og lög Einars ómuðu
víða. Farin, Spenntur, Myndir og
fleiri lög voru á toppnum og sveita
ballamenningin á Íslandi var mikil.
Spurður að því hvort hann hafi lifað
rokkstjörnulífsstíl um aldamótin
segir Einar svo ekki vera, hann hafi
alltaf verið í vinnunni frá níu til
fimm.
„En ég held að menn hafi nú
prófað ýmislegt og svo annaðhvort
ílengjast menn í því eða ekki,“
segir hann og bætir við að hann
hafi aldrei verið mikill djammari
sjálfur. „Eiginlega svo lítill að ég tók
þá ákvörðun fyrir sjálfan mig fyrir
nokkrum árum að hætta alveg að
drekka. Þetta gerði ég með bætta
heilsu að leiðarljósi og ég vildi
undirbúa mig fyrir það að verða
miðaldra,“ segir Einar.
„Ég ætlaði bara að hætta í eitt ár
og var aðeins að fikta við edrú lífs
stílinn og svo fannst mér þetta bara
svo fínt og leið miklu betur svo ég er
enn hættur,“ bætir hann við.
„Við hjónin förum sjaldan út að
skemmta okkur. Við erum mjög
heima og fjölskyldukær þegar öllu
er á botninn hvolft og þetta er í
rauninni búið að vera miklu minna
mál en ég hélt. Ég hélt að ég myndi
léttast við það að hætta að drekka
en svo var ég alltaf að verðlauna mig
með alls konar öðru svo það gekk
ekki vel. Þegar maður er kominn á
þennan aldur þá þarf maður bara
að fara að velja gáfulegri hluti í mat
aræði,“ segir hann en Einar verður
51 árs í næstu viku.
Ertu einn af þeim sem eru alltaf að
reyna að létta sig?
„Ég hef alltaf verið í yfirvigt og í
smáslag við það en síðustu ár hef ég
fundið smá jafnvægi í þessu og í dag
er ég léttari en ég hef verið svona
síðustu 10 eða 20 árin þannig að mér
líður bara vel,“ segir hann.
„En ég hef aldrei verið í ein
hverjum sjálfsásökunum eða liðið
illa yfir því hvernig ég er eða hvernig
ég er ekki. Ég er með rosalega mikið
sjálfstraust og kannski meira en
góðu hófi gegnir,“ útskýrir hann.
„Einhvern tímann fannst manni
skrítið að fólk með anorexíu sæi
ekki vandann þegar það lítur í speg
il en þegar maður horfir svo sjálfur
í spegil og sér ekki að maður sé of
þungur þá fattar maður að maður sé
að glíma við sambærilegt vandamál
frá hinum endanum, að þetta sé ein
hvern veginn tengt sjálfsmyndinni,“
segir Einar.
„Ég sé ekki líkamlega heilsu mína
í spegli, ég þarf að mæla hana ein
hvern veginn öðruvísi,“ segir Einar
sem reynir að hjóla mikið og hefur
mikinn áhuga á hreyfingu, hann á
meðal annars Hengils Ultra hlaup
ið og Kia gullhringinn, fjölmenn
almenningsíþróttamót.
Einar hefur fagnað árunum 25 frá
því að Farin kom út með þrennum
tónleikum. Áður fyrr var hann ekki
mikið fyrir það að vera uppi á sviði
heldur vildi vera bak við tjöldin.
Núna segist hann njóta sviðsljóss
ins. „Ég er bara kominn á þann aldur
að fólk veit að ég er ekkert að reyna
að vera kúl, ég er bara eins og einn
af Olsenbræðrunum,“ segir hann.
„Þetta er búið að vera ótrúlega
skemmtilegt og ég get alveg hugsað
mér að gera meira af þessu, að koma
fram.“
Hvernig er tilfinningin að heyra
áhorfendur syngja með lögunum
sem þú samdir fyrir áratugum
síðan?
„Það er ótrúleg tilfinning. Ég
hélt á tónleikunum á Selfossi að
þetta yrðu bara rólegheit en það
var bara mætt þarna alls konar fólk
af Skímó og Nylonkynslóðinni
sem öskursöng og var í banastuði.
Ég fékk bara smá áfall en þetta var
geggjað,“ segir hann.
„Það er alveg ótrúlegt að sjá fólk
jafnvel syngja með lögum sem ég
hélt kannski að væru ekki svona
vinsæl. Þetta er ótrúlega fallegt og
mikil blessun, bara að hafa ein
hvern veginn getað gert þetta. Eitt
er að semja lög en annað er að þau
hafi fundið einhvern farveg þann
ig að þau skipti einhverju máli fyrir
fólk í lífinu,“ segir Einar.
„Ég er bara virkilega þakklátur,“
segir Einar Bárðarson að lokum. n
Fréttablaðið helgin 1911. mars 2023
lAUgARDAgUR