Fréttablaðið - 11.03.2023, Page 20
Diljá var það ákveðið
barn að í leikskólanum
var hún kölluð Ráð-
herrann af starfsfólki.
Pétur Einar Jónsson
Einhvern veginn er
hún alltaf gólandi,
syngjandi eða hlæjandi
hæst af öllum.
Rakel Svavarsdóttir
Diljá Pétursdóttir vann ekki
einungis Söngvakeppnina um
síðustu helgi heldur einnig
hug og hjarta þjóðarinnar.
Diljá hefur búið í Snælands-
hverfi í Kópavogi alla sína tíð.
Hún hefur alltaf verið vinsæl
og vinmörg og snemma fékk
hún áhuga á leik- og sönglist.
Diljá Pétursdóttir sigraði
í söngvakeppninni um
síðustu helgi og verður
því fulltrúi Íslands í
Eurovision í Liverpool
í maí. Diljá er fædd þann 15. desem-
ber árið 2001 og hefur sungið síðan
hún var lítil. Hún tók til að mynda
þátt í Ísland got Talent aðeins tólf
ára og hefur dreymt um að fara í
Eurovision síðan hún var sjö ára.
Diljá er alin upp í Snælandshverf-
inu í Kópavogi þar sem hún gekk í
grunnskóla en síðar fór hún í Verzl-
unarskóla Íslands þar sem hún varð
fyrst kvenna formaður Rjómans,
vídeónefndar skólans. Samhliða
náminu í Versló lærði Diljá söng
í FÍH og að menntaskóla loknum
flutti hún til Danmerkur þar sem
hún stundaði nám við Complete
Vocal Institute í Kaupmannahöfn.
Diljá stundar nú nám í sjúkraþjálf-
un við Háskóla Íslands.
Foreldrar Diljár segja hana hafa
verið ákveðna frá unga aldri og að
hún hafi alltaf vitað hvað hún vildi.
Hún hafi alltaf verið vinsæl og vin-
mörg og nýtt öll tækifæri sem gáfust
til að vera með í leikritum, söng-
keppnum og öllu því sem veitti
henni tækifæri til að tjá sig á sviði.
„Hún hefur alltaf elskað að vera í
sviðsljósinu,“ segja þau.
„Hún er harðdugleg og gerir það
sem til þarf til að ná þeim árangri
sem hún vill. Mikil keppnismann-
eskja og skapmikil, það hefur komið
henni þangað sem hún er í dag,“
segir Rósa Bjarnadóttir móðir Diljár.
„Þó að Diljá sé ósérhlífin og hörð
af sér er hún blíð og góð og mikill
dýravinur. Hún hefur ávallt heillað
fólk í kringum sig með hrífandi per-
sónuleika,“ segir Rósa.
Pétur Einar Jónsson, pabbi Diljár,
segir dóttur sína með mikla tilfinn-
ingagreind, það geri hana að mjög
lifandi og skemmtilegri manneskju.
„Hún hefur mikla réttlætiskennd og
þarf að fá rökstudd svör við spurn-
ingum sem vefjast fyrir henni. Hún
hefur hugarfar afreksmanneskju
og tekur sér oft hlutverk leiðtogans.
Hún er sterk andlega sem og líkam-
lega og alltaf óttalaus að takast á við
nýjar áskoranir.“
Þá segir Pétur Diljá hafa afburða-
hæfileika í því að setja sér mark-
mið. „Diljá var það ákveðið barn
að í leikskólanum var hún kölluð
Ráðherrann af starfsfólki. Hún fór
sínar eigin leiðir í grunnskóla og
lét engan segja sér fyrir verkum. Í
menntaskóla var hún mjög skipu-
lögð og kláraði sitt heimanám í skól-
anum svo það gæfist tími fyrir allt
hennar tónlistarlíf. Skilaði afburða
einkunnum.“
Traust, metnaðarfull og hávær
Rakel Svavarsdóttir og Diljá hafa
verið vinkonur síðan í leikskóla.
Rakel segir velgengni Diljár ekki
hafa komið sér á óvart.
„Diljá er eiginlega besta vin-
kona sem þú getur fundið. Hún er
alltaf til staðar sama hvað og er mín
helsta klappstýra í lífinu. Ef ég ætti
að lýsa henni í þremur orðum væri
það traust, metnaðarfull og hávær,“
segir Rakel.
„Einhvern veginn er hún alltaf
gólandi, syngjandi og hlæjandi hæst
af öllum. Við sem höfum alist upp í
kringum hana vissum að þessi rödd
myndi koma henni langt,“ bætir
Rakel við.
„Ég verð eiginlega að segja frá
því hvernig við kynntumst. Ætli
við höfum ekki verið tveggja eða
þriggja ára og það var fyrsti dagur-
inn hennar Diljár á leikskólanum,“
segir Rakel.
„Diljá stóð við hliðina á mér í
klósettröðinni alveg hágrátandi,
leikskólakennarinn hafði verið að
skamma hana. Ég spurði hana um
hvað hafði gerst og huggaði hana
þarna í miðri pissuröðinni. Við
höfum verið óaðskiljanlegar síðan.
Við höfum þolað hvor aðra í næst-
um 20 ár og það er ekkert að fara að
breytast á næstunni.“
Mikill orkubolti
Daníel Óskar Jóhannesson og Diljá
hafa verið par síðan í Versló. Hann
segir kærustuna sína algjörlega
magnaða. „Hún er svo mikill orku-
bolti en á sama tíma það öguð að ég
á stundum erfitt með að skilja það.“
Hann segir Diljá helst vilja hafa
marga bolta á lofti í einu og að hún
hati að hafa ekkert að gera, hún sé
hæfileikarík og fjölhæf. „Diljá er
þannig að ef hún nær ekki að syngja
eða hreyfa sig yfir heilan dag, þá er
það vondur dagur. Hún er alltaf að
gera eitthvað og er með svo mikið
„passion“ fyrir því sem hún gerir.
Ég held að margir myndu brotna
undan álagi ef þeir væru eins og
Diljá en hún er rosalegur nagli,“
segir hann.
„Ég man að við vorum búin að
vera saman í ár þegar hún vann
Vælið, söngkeppnina í Verzló. Þá
var eins og fólkið í kringum hana
og ég fengjum bara svona „realisa-
tion“, bara: Já, ókei, hún er að fara að
meika það!“ segir Daníel.
„Eftir það byrjaði hún að vinna
með Pálma og í dag er hún búin að
heilla þjóðina upp úr skónum. Eins
og hún segir sjálf þá gerist allt af
ástæðu og núna er hún orðin stjarna
og á það svo innilega skilið.“ n
Hæfileikaríkur
orkubolti sem hatar
að hafa lítið að gera
Diljá ásamt foreldrum sínum og bróður.
Diljá og Rakel
hafa verið vin-
konur síðan þær
voru á leikskóla.
Diljá og kærastinn hennar Daníel á Söngvakeppninni þar sem Diljá sigraði. Myndir/aðsendar
Eins og sjá má hefur Diljá verið að
syngja frá því að hún var lítil.
Birna Dröfn
Jónasdóttir
birnadrofn
@frettabladid.is
20 helgin FRÉTTABLAÐIÐ 11. mARs 2023
lAUgARDAgUR