Fréttablaðið - 11.03.2023, Page 22
Besti leikarinn í aukahlutverki
Ke Huy Quan Everything Everywhere...
Brendan Gleeson The Banshees of Inisherin
Brian Tyree Henry Causeway
Judd Hirsch The Fabelmans
Barry Keoghan The Banshees of Inisherin
Hér eru nú aldeilis sallafínir leikarar í alveg hreint
ágætis myndum til kallaðir en fjórir þeirra þó í
erindisleysu þar sem eitthvað alveg umfangs-
meira og fordæmalausara en Covid-19 þarf til
þess að breyta gangi heimsmála þannig að Ke
Huy Quan taki þessi verðlaun fyrirhafnarlaust.
Goonies litli og stubburinn hans Indiana Jones er
orðinn stór. Við elskuðum hann þá og við elskum
hann núna og hann fær verðskuldað að eiga
þetta augnablik.
Besti leikarinn
Brendan Fraser The Whale
Austin Butler Elvis
Colin Farrell The Banshees of Inisherin
Paul Mescal Aftersun
Bill Nighy Living
Stemningin og straumurinn er með Brendan
Frasier í alveg dæmigerðu hlutverki sem Óskar
frændi elskar í átakanlegri sögu manns sem á við
alvarlega offitu að stríða. Þar fyrir utan elskar
Hollywood upprisur og endurkomur og Frasier
er svo sannarlega að ná vopnum sínum eftir að
hafa fengið að kenna á skítlegu eðli bransans
og fólksins í honum sem traðkaði hann niður
með ofbeldi og alls konar tuddaskap. Hvalurinn
gleypir því þessa styttu aðallega þó vegna þess
að hann er svo heppinn að Ke Huy Quan er bara
tilnefndur fyrir aukahlutverk í Everything Every-
where All at Once. Annars hefðu þessi verðlaun
verið frátekin.
Besta myndin
Everything Everywhere All at Once
All Quiet on the Western Front
Top Gun: Maverick
Elvis
The Banshees of Inisherin
The Fabelmans
Tár
Avatar: The Way of Water
Women Talking
Triangle of Sadness
Hérna er svo sem enginn skortur á frambæri-
legum myndum sem gætu hæglega staðið
undir nafnbótinni besta myndin 2022. Tár, The
Banshees of Inisherin, Women Talking og jafnvel
Elvis eru mjög „Óskarslegar“ myndir ólíkt kræki-
berjum helvítis þetta árið, Top Gun: Maverick og
Avatar: The Way of Water. Auðvitað væri samt
ógeðslega fyndið ef Top Gun yrði fyrir valinu en
akademían er ekki þekkt fyrir góðan húmor og
við gerum ráð fyrir að þetta verði allt samkvæmt
formúlunni og Everything Everywhere All at
Once verði sigurvegari kvöldsins og þá tekur hún
þennan flokk vitaskuld með trompi.
Besta erlenda myndin
All Quiet on the Western Front (Þýskaland)
EO (Pólland)
Argentina, 1985 (Argentína)
Close (Belgía)
The Quiet Girl (Írland)
All Quiet on the Western Front er einna líklegust
til þess að gera óvæntan usla og trufla sigur-
göngu Everything Everywhere All at Once. Hún
gæti jafnvel orðið fyrir valinu sem besta myndin.
Þessi verðlaun eru því sjálfgefin, að hinum
myndunum fjórum alveg ólöstuðum.
All Quiet on the Western Front hefur ekki
verið jafn áberandi og Everything Everyw-
here... undanfarið og ekki fengið jafn nákvæma
mælingu og síðarnefnda myndin þar sem hún er
„erlend“ og því ekki gjaldgeng á þeim hátíðum í
Bandaríkjunum þar sem fjölvíddarglensið hefur
stolið öllum helstu senum.
Sú þýska hefur þó verið að sækja í sig veðrið og
ógnar með sjö BAFTA-verðlaunum, þar á meðal
sem besta myndin, og níu Óskarstilnefningum á
móti ellefu Everything Everywhere...
Þannig að það getur allt gerst og ef þeir þýsku
hernema fleiri styttur en þessa þá gæti vígstaðan
ruglast víðar og óvæntir sigurvegarar skotið upp
kollinum á kostnað Everything Everywhere...
Besti leikstjórinn
Daniel Kwan og Daniel Scheinert Everything Everywhere...
Ruben Östlund Triangle of Sadness
Todd Field Tár
Martin McDonagh The Banshees of Inisherin
Steven Spielberg The Fabelmans
Steven Spielberg er enn að gera myndir sérhannaðar til þess að
krækja í Óskarsverðlaun en hefur, eins og oft áður, ekki náð ásætt-
anlegum árangri og The Fabelmans er þrátt fyrir góða dóma og allt
sem hún hefur til að bera einhvern veginn ekki að skora á mikilvæg-
ustu völlunum. Og gerir það varla í LA á sunnudaginn. Kannski mun
Spielberg hampa styttu í einhverjum fjölvíddarheimi en það verður
ekki í okkar þar sem leikstjóradúóið að baki Every thing Everywhere
All at Once mun stökkva á yfirfullan vagn sigurlestar sinnar undir
lok hátíðarinnar.
Besta leikkonan
Michelle Yeoh Everything Everywhere...
Cate Blanchett Tár
Ana de Armas Blonde
Andrea Riseborough To Leslie
Michelle Williams The Fabelmans
Cate Blanchett er að sjálfsögðu frábær í Tár og
beinlínis „óskarar“ yfir sig í stórleik sínum þannig
að það er freistandi að spá henni sigri hér. Úti-
lokum það ekki en þá þurfum við að fara þvert
gegn frumforsendum þessarar spár. Fyrir utan
auðvitað að Michelle Yeoh á þessi verðlaun sem
hún mun hljóta svo fullkomlega skilið að ef hún
verður snuðuð um þau þá er það alger skandall
og er hún nú engin fröken fiðrildi.
Besta leikkonan í aukahlutverki
Jamie Lee Curtis Everything Everywhere...
Angela Bassett Wakanda Forever
Kerry Condon The Banshees of Inisherin
Stephanie Hsu Everything Everywhere...
Hong Chau The Whale
Óskhyggjuraddir um að Angela Bassett muni
hreppa þessi verðlaun hafa bergmálað víða um
internetið en þær verða orðin tóm á sunnudags-
kvöld þegar Hollywood-prinsessan Jamie Lee
Curtis hampar styttunni. Marvel-fólkið sem þráir
Óskarsverðlaunaupphefð getur ekki lagt það
á Angelu, eins góð og hún er, að uppfylla þann
draum í þessari umferð.
Black Panther: Wakanda Forever er í fyrsta lagi
bara ekki nógu góð mynd og Angela ekki nógu
mikið í henni til þess að bjarga miklu. Síðan er
straumurinn bara með Everything Everywhere
All at Once og þar er Jamie Lee bara alveg frábær;
fyndin, ógnvekjandi og allt þar á milli. Og hver
treystir sér til þess að keppa við öskurdrottningu
níunda áratugarins með pulsuputta? Nei, akkúrat.
Everything Everywhere All at
Once verður líklega sigursæl-
ust á Óskarsverðlaunahátíð-
inni en ef þýski herinn ryðst
grimmur upp úr skotgröfum
All Quiet on the Western
Front gæti hann valtað yfir
fjölvíddarheiminn og sprengt
öll spálíkön í loft upp.
toti@frettabladid.is
Vinsældir og sigurför Everything
Everywhere All at Once á verð-
launahátíðum í aðdraganda Óskars-
verðlaunanna benda eindregið til
þess að verðlaunahátíðin aðfaranótt
mánudagsins verði sérlega óspenn-
andi í fyrirsjáanleika sínum.
Venju samkvæmt leggur grein-
ingardeild Fréttablaðsins í lág-
menningarmálum hér fram spá sína
um hvernig verðlaunastyttunum
verður útdeilt í helstu flokkum. Þar
sem víglínur í Los Angeles virðast
óvenju skýrar þetta árið og flestar
dregnar í einstefnu að Everything
Every where All at Once er spáin
heldur tilþrifalítil og nokkuð í takt
við stærri miðla í útlöndum.
Fyrri heimsstyrjaldardramað
All Quiet on the Western Front er
einna líklegast til þess að koma á
óvart og takist þeim þýsku að her-
nema fleiri styttur en þá sem hann
hlýtur að eiga örugga fyrir bestu
erlendu myndina gæti staðan
ruglast víðar og óvæntir sigurveg-
arar skotið upp kollinum á kostnað
Everything Every where All at Once
sem þó verður alltaf í betri málum
en Íslenska óperan í marsbyrjun. n
Allt alls staðar
næstum alltaf
22 helgin FRÉTTABLAÐIÐ 11. mARs 2023
lAUgARDAgUR