Fréttablaðið - 11.03.2023, Qupperneq 24
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur
Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf.
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn:
Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Finna má endur-
vinnsluskápa í
öllum versl-
unum ELKO.
MYNDIR/AÐSENDAR
ELKO kaupir gömul raftæki og kemur þeim í ábyrga endurvinnslu. Nánari upplýsingar má finna á elko.is/eitthvaðfyrirekkert.
Staðreyndin er sú
að það leynast
ótrúleg verðmæti í
skúffum landsmanna. Á
síðasta ári tók ELKO á
móti yfir 4.700 snjall-
tækjum sem færðu
viðskiptavinum yfir 10
milljónir króna í formi
inneignar.
Valur Hólm Sigurgeirsson
„Umhverfismál skipta okkur í
ELKO miklu máli og höfum við lagt
sérstaka áherslu á hringrásarhag
kerfi raftækja í formi 30 daga skila
réttar og endursölu á notuðum
vörum,“ segir Valur Hólm Sigur
geirsson, þjálfunarstjóri hjá ELKO.
Ábyrg endurvinnsla
ELKO er einnig í samstarfi við
Foxway Group í Eistlandi sem
tekur við öllum þeim vörum sem
með hagkvæmum hætti má koma
áfram í hringrásarhagkerfið. Með
þessu móti geta viðskiptavinir
skilað inn vörum eins og snjall
símum, spjaldtölvum, fartölvum
og leikjatölvum og fengið greitt
fyrir vörurnar miðað við ástand
þeirra og virði samkvæmt þar til
gerðri reiknivél og er greiðslan í
formi gjafakorts í ELKO sem rennur
aldrei út.
Við móttöku tækjanna er farið
yfir tékklista með viðskiptavinum,
tækið yfirfarið og séð til þess að
búið sé að eyða öllum gögnum af
tækinu. Tækjunum er því næst
safnað saman og þau send í ábyrgt
endurvinnslukerfi þar sem snjall
tækin eru annað hvort yfirfarin og
endurnýtt eða endurunnin eins og
hægt er.
Valur segir að sem leiðandi
fyrirtæki á raftækjamarkaði sé
gríðarlega mikilvægt að stuðla að
því að sem flest raftæki sem ekki
eru lengur í notkun skili sér aftur
inn í hringrásarhagkerfi raftækja
þar sem þau er ýmist endurunnin
eftir ítrustu stöðlum eða endur
nýtt á nýjum mörkuðum. Þessi
raftæki innihalda ekki aðeins
hættuleg, eitruð og umhverfis
skaðleg efni heldur innihalda
þau einnig dýrmæt efni sem ætti
að endurnota. Það er takmarkað
magn af þessum efnum til í heim
inum og þar sem uppsprettur
sumra þeirra eru ekki endur
nýjanlegar þurfum við að tryggja
að þessi efni séu endurnýtt.
Verðmæti leynast í skúffunum
„Staðreyndin er sú að það leynast
ótrúleg verðmæti í skúffum lands
manna. Á síðasta ári tók ELKO á
móti yfir 4.700 snjalltækjum sem
færðu viðskiptavinum yfir 10
milljónir króna í formi inneignar.
Það má því með sanni segja að það
sé hægt að fá eitthvað fyrir ekkert
með því einu að gramsa í skúff
unum heima,“ segir Valur Hólm.
Með því að koma öllum þessum
gömlu raftækjum aftur í hring
rásar hagkerfið má áætla að
viðskiptavinir ELKO hafi sparað
jörðinni árið 2022 ígildi losunar
225.936 kílóa af koltvísýringi sem
jafngildir ígildi bindingar tæplega
11 þúsund fullvaxta trjáa í eitt
ár, samkvæmt tölum frá Foxway
Group, samstarfsaðila ELKO.
Endurvinnsluskápar
Í öllum verslunum ELKO má einn
ig finna endurvinnsluskápa þar
sem viðskiptavinir geta komið
með smærri raftæki, rafhlöður,
blekhylki, ljósaperur, f lúrperur og
snúrur svo eitthvað sé nefnt.
„Við hjá ELKO sjáum svo um að
koma því sem safnast í skápinn
í ábyrga endurvinnslu hjá okkar
samstarfsaðilum. Allur úrgangur
sem fellur til er mældur ár frá ári og
er þar notast við stafrænt umhverf
isstjórnunarkerfi frá Klöppum sem
gefur okkur kost á að rýna betur í
þau umhverfisgögn og markmið
sem við höfum sett okkur er varða
umhverfismál,“ segir Valur Hólm
og bætir við:
„Við hvetjum alla til þess að
kíkja í skápa og skúffur og draga
fram gömul snjalltæki sem hugs
anlega eru ekki lengur í notkun og
koma með til okkar í ELKO og sjá
hvort ekki sé hægt að fá eitthvað
fyrir ekkert. Fáðu eitthvað fyrir
ekkert og gefðu snjalltæki þínu
framhaldslíf sem skiptir máli.“ n
2 kynningarblað A L LT 11. mars 2023 LAUGARDAGUR