Fréttablaðið - 11.03.2023, Page 26

Fréttablaðið - 11.03.2023, Page 26
Metþátttaka er í Forritunar- keppni framhaldsskólanna sem hefst í dag í Háskólan- um í Reykjavík og í Mennta- skólanum á Akureyri. starri@frettabladid.is Forritunarkeppni framhaldsskól- anna verður haldin í dag, laugar- daginn 11. mars, í Háskólanum í Reykjavík og í Háskólanum á Akureyri. Keppnin er ætluð öllum framhaldsskólanemum en ekki eingöngu þeim sem hafa reynslu af forritun. Það er Háskólinn í Reykjavík sem setti keppnina á fót árið 2001 en hún hefur stækkað jafnt og þétt gegnum árin auk þess sem ásókn í hana hefur aukist mikið, segir Ólafur Jónsson, verkefnastjóri á Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasviði Háskólans á Akureyri. „Aðstandendur forritunar- keppninnar hafa alltaf hvatt sem flesta nemendur til að koma og prófa en keppninni er skipt í þrjár deildir eftir erfiðleikastigi, byrj- endur (Delta), miðlungs (Beta) og lengra komnir (Alpha). Þannig er keppnin jafnmikil áskorun fyrir nemendur sem eru að taka sinn fyrsta áfanga í forritun og hafa reynslu af henni, og fyrir nem- endur sem hafa litla þekkingu. Einn til þrír nemendur geta verið í liði en veitt eru peningaverðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin auk þess sem liðið sem hreppir 1. sætið í Alpha-flokki fær niðurfelld skóla- gjöld eina önn í Háskólanum í Reykjavík. Einnig verða veitt verð- laun fyrir besta nafn á liði.“ Metþátttaka í ár Frá árinu 2016 hefur Háskólinn á Akureyri einnig komið að skipu- lagi og framkvæmd keppninnar og hafa nemendur því val um að taka þátt á Akureyri eða í Reykjavík. „Þegar við héldum keppnina fyrst hér á Akureyri voru þetta tvö til þrjú lið og kannski kringum tíu keppendur. Í ár er hins vegar met- þátttaka á Akureyri eða tæplega 40 keppendur, þar sem um þriðjungur eru stelpur, og um fimmtán lið.“ Upphafið að samvinnu háskól- anna í tengslum við forritunar- keppnina má rekja til ársins 2015 þegar þeir hófu samstarf með að bjóða upp á fullt B.Sc.-nám í tölv- unarfræði á Akureyri. „Keppnis- forritunarfélag Íslands semur síðan allar spurningar og þrautir keppninnar en dómarar verða á svæðinu og fara yfir lausnir.“ Hægt að fylgjast með á netinu Setningarathöfn fór fram í gær föstudag en keppnin sjálf hefst klukkan 10 í dag. „Keppnin fer fram í sérstöku kerfi á vefnum sem heitir Kattis en hægt er að nálgast upplýsingar um keppnina á vef- síðu hennar, forritun.is. Almenn- ingur getur farið þar inn og fylgst með stöðu liðanna og framvindu í beinni útsendingu. Um leið og einu liði tekst að leysa þraut þá sést það á vefsíðunni og hversu mörg stig liðið hlaut. Stigataflan upp- færist svo samhliða þannig þetta er ekki ósvipað og horfa á íþrótta- kappleik eða Eurovision í beinni útsendingu.“ Í ár verður í fyrsta skiptið boðið upp á svokallað tækni- spjall (e. Tech talk) frá Men & Mice sem er eitt elsta tæknifyrirtæki Íslendinga. „Það verður vonandi innblástur fyrir framtíðina hjá keppendum í ár.“ Bara toppurinn á ísjakanum Ólafur segir keppnir á borð við þessa geta haft mjög góð áhrif til að auka áhuga ungs fólks á forritun og tölvunarfræði. „Sumir taka þátt í eitt skipti og hafa gaman af meðan enn aðrir hella sér út í þetta af fullum krafti og gera forritun eða tölvunarfræði að framtíðar- starfi sínu.“ Hann segir vinsældir tölvunar- fræðinnar og tæknigreina án efa halda áfram að aukast. „Það sem við sjáum gerast núna í þessum tölvu- og tæknigeira, til dæmis í tengslum við gervigreind, er bara toppurinn á ísjakanum. Það er erfitt að spá fyrir um framtíðina en hún mun gjörbylta öllu samfélagi manna.“ n Næstum því eins og að fylgjast með Eurovision Ólafur Jónsson, verkefnastjóri á Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasviði Háskólans á Akureyri. mynd/AUÐUnn nÍELSSOn Það sem við sjáum gerast núna í þess- um tölvu- og tæknigeira, til dæmis í tengslum við gervigreind, er bara toppurinn á ísjakanum. Ólafur Jónsson Þuríður Bernódusdóttir var farin að eiga erfitt með svefn og vaknaði reglulega á nótt- unni og átti erfitt með að sofna aftur. Hún hafði prófað ýmis ráð til að fá lausn á vandamálinu þegar vinkona hennar benti henni á Sofðu rótt frá ICEHERBS. Þuríður ákvað að slá til vegna með- mæla vinkonu sinnar og fann fljótt fyrir breytingu til batnaðar. „Það var í haust sem ég byrjaði að taka inn Sofðu rótt frá ICEHERBS. Ég tek hylkið inn svona einum og hálfum tíma áður en ég fer upp í rúm og ég finn stóran mun á mér. Ég vakna ekki eins oft upp á nótt- unni og áður og ef ég vakna þá ligg ég ekki andvaka heldur sofna bara fljótt aftur,“ segir Þuríður. Þuríður segist vera a-manneskja sem finnst gott að fara snemma að sofa og vakna snemma. „Ég vinn á bæjarskrifstofunum í Vestmannaeyjum og er venju- lega komin fram úr um hálf sex á morgnana og fer í líkamsrækt klukkan sex. Svo mæti ég fersk í vinnu um 7.30. En þetta svefn- vandamál var farið að hafa áhrif á daglegt líf,“ segir hún. „Þegar ég var alltaf að vakna á nóttunni var ég þreyttari í vinnunni og hafði minni orku í ræktinni. En núna er ég miklu ferskari. Ég finn hvað það er mikill munur að fá góðan svefn upp á það að fara í ræktina svona snemma. Þetta hefur breytt alveg svakalega miklu fyrir mig og þess vegna get ég alveg verið einlæg með það að ég mæli eindregið með Sofðu rótt frá ICEHERBS fyrir þá sem glíma við svefnvandamál.“ Þuríður veit ekki til þess að nein sérstök ástæða hafi legið á bak við svefnvanda hennar. „Ætli þetta gerist ekki bara með aldrinum, mér finnst það líklegt.“ Hún segir að ekki hafi langur tími liðið frá því hún byrjaði að taka inn Sofðu rótt frá ICEHERBS þar til hún fann mun. „Áhrifin komu mjög fljótt og ég finn líka strax mun ef ég sleppi að taka inn hylki fyrir svefninn. Ég held þess vegna að ég verði að taka þetta alveg út lífið. En mér finnst það bara gott, ég er alveg sátt við það.“ Náttúrulegt bætiefni Sofðu rótt frá ICEHERBS inni- heldur magnólíubörk og íslensk fjallagrös. Saman virka þessar tvær jurtir einstaklega vel til þess að bæta svefn á náttúrulegan og heilbrigðan hátt. Þessi öfluga blanda hentar vel fyrir þá sem vilja aðstoð við að ná betri, jafnari og samfelldum svefni sem og bæta andlega líðan. Þessi magnaða jurt, magnólía, hefur verið notuð um aldir við þunglyndi, svefnvandamálum, kvíða og streitu. Hún er þekkt fyrir að virka almennt slakandi og róandi, og á að bæta eðlilegan og samfelldan svefn. Rannsóknir á magnólíu sýna fram á að hún inniheldur virk efni, sem vitað er að hafi áhrif á andlegt jafnvægi. Virku efnin í magnólíu- berkinum örva boðefni í heilanum og koma jafnvægi á hormónið kortisón. Þau geta virkað almennt slakandi og róandi og bæta eðli- legan og samfelldan svefn. Sofðu rótt-blandan inniheldur einnig íslensk fjallagrös, oft nefnd ginseng Íslands. Fjallagrös eru rík af steinefnum, einkum járni og kalsíum. Fjallagrös hafa verið þekkt fyrir vatnslosandi áhrif og geta hjálpað til við að draga úr bjúg. Þau innihalda betaglúk- antrefjar sem hafa reynst vel við þyngdartap, geta bætt meltingu og styrkt þarmana. n ICEHERBS fæst í öllum betri mat- vöruverslunum, apótekum og heilsuvöruverslunum og í glæsi- legri vefverslun á iceherbs.is. Ferskari á morgnana með Sofðu rótt Þuríður sefur miklu betur eftir að hún fór að taka inn Sofðu rótt frá ICEHERBS. mynd/AÐSEnd Sofðu rótt frá ICEHERBS inniheldur magn- ólíubörk og íslensk fjallagrös. 4 kynningarblað A L LT 11. mars 2023 LAUGARDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.