Fréttablaðið - 11.03.2023, Qupperneq 28
Umsóknarfrestur er til og með 19. mars 2023. Nánari upplýsingar um starfið er á intellecta.is.
Upplýsingar veitir Hafdís Ósk Pétursdóttir (hafdis@intellecta.is)
Mótaðu framtíð vinnumarkaðarins
með okkur langar að vinna með þér
BHM eru heildarsamtök 27 aðildarfélaga. Í félögunum eru fleiri en 17 þúsund félagar með margvíslegan
bakgrunn og sérfræðiþekkingu, sem starfa á öllum sviðum samfélagsins.
Í krafti fjöldans og fjölbreytninnar stendur BHM vörð um mikilvægi hugvits, sérfræðikunnáttu og menntunar.
Ráðgjafi í þjónustuveri BHM veitir félagsfólki upplýsingar um ýmis mál og veitir aðstoð
varðandi umsóknir um styrki úr sjóðum bandalagsins í samvinnu við ráðgjafateymi.
Ráðgjafi í þjónustuveri BHM
• Þjónusta við félagsfólk aðildarfélaga BHM
• Móttaka og meðhöndlun gagna og umsókna
• Yfirferð styrkjaumsókna
• Umsjón og eftirlit með rafrænu umsóknarferli
• Gagnaöflun fyrir stjórnir sjóða BHM
• Hugmyndavinna og betrumbætur á sjálfsafgreiðslu og rafrænu
aðgengi félagsfólks að upplýsingum á vef BHM
• Innleiðing þjónustuaukandi leiða í samráði við aðra ráðgjafa
þjónustuvers BHM
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Þjónustulund og framúrskarandi hæfni í mannlegum
samskiptum
• Frumkvæði og skipulagshæfni
• Gott vald á íslensku máli í ræðu og riti
• Góð tölvukunnátta
• Góð reynsla af alhliða skrifstofustörfum
• Reynsla af störfum félagasamtaka er kostur
STARFSSVIÐ MENNTUNAR- OG HÆFNISKRÖFUR
Umsóknarfrestur er til og með 19. mars 2023. Nánari upplýsingar um starfið á intellecta.is.
Upplýsingar veitir Hafdís Ósk Pétursdóttir (hafdis@intellecta.is, sími 511-1225).
Leikskóli Seltjarnarness
Gildi Leikskóla Seltjarnarness eru jákvæðni, virðing og fagmennska. Þessi gildi
hefur starfsmannahópurinn sameinast um að starfa eftir og eru þau höfð að
leiðarljósi í öllu starfi skólans. Við þurfum á góðu fólki að halda til að koma til
liðs við okkar frábæra hóp! Skólinn státar af metnaðarfullri starfsemi, ýmsum
viðbótarkjörum, styttingu vinnuvikunnar og tilboði um námssamninga.
Við óskum eftir að ráða í eftirfarandi störf:
• Deildarstjóri, fullt starf
• Leikskólasérkennari/þroskaþjálfi, fullt starf
• Sérgreinastjóri í listaskála, fullt starf
Upplýsingar um störf í Leikskóla Seltjarnarness veita Margrét Gísladóttir, leikskólastjóri,
margret.gisladottir@seltjarnarnes.is og Linda Björg Birgisdóttir, aðstoðarleikskólastjóri,
linda.b.birgisdottir@seltjarnarnes.is í síma 5959-280/290.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra
sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélög.
Umsóknum ásamt fylgiskjölum skal skilað á Ráðningarvef
Seltjarnarnesbæjar undir seltjarnarnes.is – Störf í boði
Umsóknarfrestur um ofangreind störf er til og með 27. mars 2023.
2 ATVINNUBLAÐIÐ 11. mars 2023 LAUGARDAGUR