Fréttablaðið - 11.03.2023, Síða 33
www.hveragerdi.is
Vilt þú verða hluti af nýju spennandi teymi
fræðslu- og velferðarþjónustu Hveragerðisbæjar?
Auglýst er eftir öflugum sérfræðingum til að taka þátt í mótun nýrrar þjónustu
Í kjölfar skipulagsbreytinga erum við að leita að jákvæðum og metnaðar-
fullum einstaklingum til að vera hluti af öflugu og kraftmiklu teymi í nýju
fræðslu- og velferðarsviði Hveragerðis þar sem sterk og öflug liðsheild
er lykilatriði.
Okkar helsta áhersla eru íbúar Hveragerðis og þeirra þarfir, og viljum við
leggja okkur fram við að þjónusta íbúa bæjarins eins vel og mögulegt er.
Þetta er frábært tækifæri til að verða mikilvægur hluti af þessu nýja og
metnaðarfulla teymi; að taka virkan þátt í að byggja upp og samþætta
fræðslu-og velferðarþjónustu í Hveragerði þar sem einstaklingurinn fær
að vaxa og nýta færni sína.
Öflugur hópur talmeinafræðinga, sálfræðings, hegðunarráðgjafa, félags-
ráðgjafa, ráðgjafaþroskaþjálfa, frístundarfulltrúa, ritara, forstöðumanna í
félagslegri heimaþjónustu og málefnum aldraðra eru komin í teymið en
okkur vantar nokkra öfluga einstaklinga til þess að fullkomna teymið.
Deildarstjóri í velferðarþjónustu
Helstu verkefni og ábyrgð:
Deildarstjóri ber ábyrgð á að innleiða þær breytingar sem unnið er að ásamt
stjórnendaábyrgð gagnvart teymi í velferðarþjónustu. Viðkomandi sinnir
jafnframt almennri félagsþjónustu.
Helstu verkefni auk stjórnunarhlutverks eru að annast meðferð mála
einstaklinga og fjölskyldna á grunni laga um félagsþjónustu sveitarfélaga
og laga um málefni aldraðra, sinna störfum málstjóra samkvæmt lögum um
samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna og þátttaka í vinnslu mála á
grundvelli barnaverndarlaga og vegna stuðningsúrræða í barnverndarmálum.
Menntun og hæfniskröfur:
Háskólamenntun sem nýtist í starfi svo sem félagsráðgjöf, starfsreynsla
og þekking á sviði félagsþjónustu og barnaverndar æskileg, frumkvæði,
nákvæmni og sjálfstæði í starfi. Lipurð í mannlegum samskiptum, jákvæðni og
sveigjanleiki, metnaður í starfi.
Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.
Til greina kemur að ráða einstakling með aðra háskólamenntun sem nýtist
í starfinu ef enginn félagsráðgjafi sækir um.
Deildarstjóri í skólaþjónustu
Helstu verkefni og ábyrgð:
Deildarstjóri ber ábyrgð á að innleiða þær breytingar sem unnið er að ásamt
stjórnendaábyrgð gagnvart teymi í skólaþjónustu. Viðkomandi sinnir auk þess
almennri skólaþjónustu á grunni reglugerðar um skólaþjónustu sveitarfélaga
við leik- og grunnskóla og nemendaverndarráð í grunnskólum.
Helstu verkefni eru, auk stjórnunarhlutverks, að styðja á fjölbreyttan hátt við
starfsemi og starfshætti leik- og grunnskóla og starfsfólk þeirra, styðja við
foreldra með ráðgjöf og fræðslu, sinna forvarnarstarfi til að stuðla markvisst
að velferð nemenda og tryggja eins og kostur er að kennslufræðileg,
sálfræðileg og þroskafræðileg þekking nýtist sem best í skólastarfi.
Menntun og hæfniskröfur:
Kennaramenntun og réttindi til að kenna í leikskóla og/eða grunnskóla, önnur
háskólamenntun sem nýtist í starfi, frumkvæði, nákvæmni og sjálfstæði í starfi.
Lipurð í mannlegum samskiptum, jákvæðni og sveigjanleiki.
Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.
Staða sérfræðings vegna innleiðingar á lögum
um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna
Helstu verkefni og ábyrgð:
Sérfræðingur sinnir innleiðingu á samþættingu þjónustu í þágu
farsældar barna skv. lögum og áherslum fræðslu- og velferðarþjónustu
Hveragerðisbæjar.
Helstu verkefni eru: stofna farsældarteymi í Hveragerði, fræðsla fyrir málstjóra,
foreldra og lykilstofnanir, umsjón með vinnslu samþættingar og þátttaka í
samstarfshópum/-teymum eftir því sem þörf er á.
Menntun og hæfniskröfur:
Háskólamenntun sem nýtist í starfi, frumkvæði, nákvæmni og sjálfstæði í starfi.
Lipurð í mannlegum samskiptum, jákvæðni og sveigjanleiki.
Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.
Félagsráðgjafi í barnavernd
Helstu verkefni og ábyrgð:
Viðkomandi er hluti af teymi sem sinnir barnaverndarþjónustu en
Hveragerðisbær mun veita barnaverndarþjónustu í samvinnu við önnur
sveitarfélög.
Helstu verkefni eru: móttaka, mat og könnun tilkynninga um misfellur í
aðbúnaði barna skv. barnaverndarlögum, vinnsla barnaverndarmála skv.
barnaverndarlögum og vegna stuðningsúrræða í barnaverndarmálum.
Menntun og hæfniskröfur:
Starfsréttindi í félagsráðgjöf, starfsreynsla og þekking á sviði barnaverndar
æskileg, frumkvæði, nákvæmni og sjálfstæði í starfi. Lipurð í mannlegum
samskiptum, jákvæðni og sveigjanleiki. Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.
Til greina kemur að ráða einstakling með aðra háskólamenntun sem nýtist
í starfinu ef enginn félagsráðgjafi sækir um.
Hveragerði er ört vaxandi og fjölskylduvænt sveitarfélag í nágrenni
höfuðborgarsvæðisins, sem vill veita íbúum sínum góða og markvissa
þjónustu á öllum sviðum.
Meðal áherslna er að flýta uppbyggingu mannvirkja fyrir leik- og
grunnskólastarf eins og þörf er á, tryggja fjölbreytt búsetuúrræði í
Hveragerði, fjölga virkniúrræðum, tryggja að einstaklingar með fatlanir
fái viðunandi stuðning til að starfa á fjölbreyttum vettvangi og koma á
fjölmenningarsamstarfi við nágrannasveitarfélög.
Í Hveragerði eru meðal annars tveir glæsilegir 6 deilda leikskólar en á seinni
hluta þessa árs er áætlað að þriðji leikskólinn verði tekinn í notkun.
Grunnskólinn sem er með um 450 nemendur verður stækkaður og hefjast
þær framkvæmdir í sumar.
Íþrótta- og menningarlíf hefur verið í miklum blóma og umhverfi bæjarins
gefur kost á fjölbreyttri útivist í einstöku umhverfi.
Umsóknarfrestur er til 12. mars 2023. Nánari upplýsingar veitir bæjarstjóri, geir@hveragerdi.is.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Tekið er á móti rafrænum umsóknum á heimasíðu sveitarfélagsins www.hveragerdi.is - laus störf. Prófskírteini og greinagóð
ferilskrá skal fylgja umsókn ásamt stuttu kynningarbréfi þar sem fram kemur af hverju sótt er um starfið og hvernig viðkomandi
uppfyllir þær kröfur sem gerðar eru til þess. Allir einstaklingar sem ráðnir eru til starfa í skóla- og velferðarþjónustu
Hveragerðisbæjar þurfa að gefa heimild til upplýsingaöflunar úr sakaskrá og undirrita trúnaðaryfirlýsingu.
Óskað er eftir að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.
Sérstök nefnd mun vinna úr öllum umsóknum og verður öllum umsóknum svarað að ráðningu lokinni.