Fréttablaðið - 11.03.2023, Qupperneq 58
Kristófer Dignus og félagar
mæta brátt til leiks í sjón-
varp landsmanna í þriðja
skiptið með dauðvona Ladda
í sjónvarpsseríunni Arfurinn
minn. Serían er þriðja serían
í bálknum og fylgir eftir
seríunum Jarðarförin mín og
Brúðkaupið mitt.
odduraevar@frettabladid.is
„Það þekkjast allir svo vel orðið,
bæði þekkjumst við öll og svo
þekkja leikararnir karakterana sína
vel, þannig að það var sannkölluð
f jölskyldustemning á settinu,“
segir leikstjórinn Kristófer Dignus
sem leikstýrir Arfinum mínum með
Ladda í aðalhlutverki. Eðli málsins
samkvæmt var því ákveðin hryggð
til staðar þegar tökum lauk, enda
serían sú þriðja í bálknum.
„Það urðu allir sorgmæddir og
þetta var eiginlega bara eins og
alvöru dauðdagi í fjölskyldunni
þegar þessi tökudagur var,“ segir
Kristófer sem segist aðspurður
ekki klæja í fingurna að halda bara
áfram og gera framhald af Arfinum
mínum.
„Nei, ég held nefnilega að það
séu svo margar sögur þarna úti sem
á eftir að segja og langar frekar að
tækla eitthvað nýtt. Þessi sería er
þríleikur og hún endar mjög snyrti-
lega og ég held það verði allir sáttir
við niðurstöðuna,“ segir Kristófer
um seríuna sem sýningar hefjast
á í Sjónvarpi Símans þann 5. apríl
næstkomandi.
„Málið er að maður tekur Ricky
Gervais sér alltaf til fyrirmyndar,“
segir Kristófer hlæjandi. „Hann
gerði tvær seríur af The Office og
sagði svo bara nei, takk, ekki meira,
á meðan ég get lofað þér því að
BBC vildi gera tuttugu seríur. Svo
tók Bandaríkjamaðurinn þetta og
gerði tólf seríur, þannig að þar sérðu
muninn á hæfileikum, maður á að
vita hvenær maður á að hætta.“ n
Tekur Ricky
Gervais sér til
fyrirmyndar
Kristófer segir
síðasta töku-
daginn hafa
verið tilfinn-
ingaþrunginn.
mynd/Aðsend
Laddi verður nú dauðvona í þriðju seríunni í röð og þekkir persónuna því eðlilega vel. mynd/Aðsend
Maður á að vita hve-
nær maður á að hætta.
Kristófer Dignus
38 lífið FRÉTTABLAÐIÐ 11. mARs 2023
lAUGARDAGUR