Fréttablaðið - 18.03.2023, Page 20

Fréttablaðið - 18.03.2023, Page 20
Magnús Karl segir það erfiðasta við Alzheimer-sjúkdóminn vera hversu langt kveðjuferlið er og að átta sig á að maki manns sé orðinn einhver allt annar en hann var. Fréttablaðið/Ernir Heimi Magnúsar Karls Magn- ússonar og eiginkonu hans Ellýjar Guðmundsdóttur var snúið á hvolf fyrir sex árum þegar hún fékk Alzheimer- greiningu rúmlega fimmtug. Fyrir ári síðan flutti Ellý á hjúkrunarheimili og Magnús lærir að feta lífsins veg einn, lífsins sem hann segir þrátt fyrir allt enn vera gott. Við Magnús hittumst í húsakynnum Íslenskrar erfðagreiningar, þar sem hann starfar nú að rannsóknum á erfða- fræði blóðsjúkdóma. Magnús og Ellý tóku snemma ákvörðun um að ræða opinskátt um veikindin, einangrunin sem fólst í feluleiknum var óbærileg og upplifði fjölskyldan öll mikinn létti þegar Ellý steig sjálf fram á eftirminnilegan hátt. Ellý var tæplega 52 ára þegar hún var greind með Alzheimer, heilbrigð kona, menntaður lögfræðingur sem starfaði sem borgarritari og hafði gert um árabil. „Aðdragandinn var um hálft ár, það var snemma vors 2016 sem upp kemur grunur um að eitthvað sé að hrjá hana og greiningin kom um mánaðamótin ágúst-september,“ útskýrir Magnús. Hann segir gruninn mögulega hafa komið upp fyrr en ella þar sem Ellý sinnti annasömu starfi borgar- ritara. „Það kemur í ljós að hún er ekki að ná að höndla erfið verkefni sem skyldi. Hún hafði farið í starfsleyfi til Kölnar einhverjum mánuðum áður, að vinna með Loftslagsnefnd Sam- einuðu þjóðanna en umhverfismál voru stór ástríða hennar. Eftir á að hyggja náði hún aldrei góðri fót- Tóku ákvörðun um að njóta hversdagsins Björk Eiðsdóttir bjork @frettabladid.is festu í því verkefni, hún sem hafði alltaf fallið hratt inn hvar sem hún hafði komið. Þegar hún kom aftur heim upplifði hún ekki starfsánægju og í framhaldi fóru að koma upp hlutir sem ollu okkur áhyggjum og hennar nánasta samstarfsfólk fór að taka eftir hlutum sem voru ólíkir henni. Hún var vön að vera með fjölmarga bolta á lofti, að delegera og ýta málum áfram en þarna voru mál farin að falla á milli skips og bryggju.“ Magnús segir það eðlilega hafa verið viðkvæmt mál að viðurkenna, rétt eins og það væri hjá okkur öllum. „Eftir á að hyggja hafði ég tekið eftir ýmsu en maður lokaði aug- unum fyrir því og vildi ekki hugsa um það.“ Eftir að hafa heyrt af áhyggjum samstarfsfólks kallaði Dagur B. Eggertsson borgarstjóri Ellý á fund. „Það var eiginlega stóri dagurinn. Hann átti hreinskilið samtal við hana enda þau nánir samstarfs- menn til margra ára. Hann lýsti yfir áhyggjum og vildi vita hvað væri að hrjá hana.“ Ellý tók sér í framhaldi leyfi frá störfum. Hafði fundið óþægilegan grun „Ég fann strax óþægilegan grun. Við höfðum verið saman á ljósmynda- námskeiði vikurnar á undan þar sem við vorum að læra nýja en ekki flókna hluti en hún átti mjög erfitt með þá.“ Fyrsti grunurinn var ekki alvarleg heilabilun heldur þunglyndi, kuln- un, tíðahvörf eða eitt af mörgu sem gæti verið að koma upp á þessum tíma hjá konu í ábyrgðarstöðu. En þegar prófanir á heilagetu voru gerðar kom ýmislegt í ljós. „Það var ýmislegt sem ég sá sem olli hnút í maganum, til að mynda þegar hún átti að teikna klukku og hún gat það ekki. Ég hugsaði þá að þetta hlyti að vera eitthvað meira – sem svo síðar kom á daginn.“ Aðspurður hvort hann hafi þá strax farið að gruna Alzheimer- sjúkdóminn svarar Magnús: „Já, mann grunaði það versta. Maður verður líka hræddur um að þetta sé það versta, en maður vildi líka halda í vonina. Það voru gerðar f lóknar rannsóknir á heilavökva og heila- línurit, sneiðmyndir og f leira. Það sást strax að það var eitthvað óeðli- legt en þó ekki ótvírætt.“ Ellý var send fyrst íslenskra sjúkl- inga til Danmerkur í svokallað PET scan sem nú er boðið upp á hér á landi. „Hún fer í það síðla sumars og tveimur, þremur vikum síðar liggur ótvíræð niðurstaða fyrir.“ Alveg rosalegt högg Greiningin umturnaði öllu. „Það var alveg rosalegt högg. Við upplifðum bæði að allt væri búið. Sýn manns af þessum sjúkdómi er mjög lituð af endastigi hans. Þetta er sjúkdómur sem getur verið lang- dreginn og er tiltölulega vægðarlaus en fólk gleymir því að eftir grein- ingu getur fólk átt mörg góð ár.“ Magnús og Ellý tóku sér frí frá vinnu, fóru í sumarbústað þar sem þau reyndu að melta fréttirnar. „Það var gífurlega erfiður tími. Við töluðum strax við börnin okkar tvö. Þau eru ung en voru þó ekki Þetta er sjúkdómur sem getur verið langdreg- inn og er tiltölulega vægðarlaus en fólk gleymir því að eftir greiningu getur fólk átt mörg góð ár. Ellý og Magnús á brúðkaupsdaginn. Þau kynntust tvítug, þegar hún var í lög- fræði og hann í læknisfræði og hafa verið saman síðan. Mynd/aðsEnd  20 helgin FRÉTTABLAÐIÐ 18. mARs 2023 lAUgARDAgUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.