Fréttablaðið - 18.03.2023, Síða 40
Það er
undan-
tekning að
ég fái
hraðtísku-
föt til að
selja í
búðinni,
einfaldlega
vegna þess
að þau
endast
ekki nógu
lengi til að
eiga sér
framhalds-
líf.
Jóhanna María
Einarsdóttir
jme
@frettabladid.is
Þann 1. febrúar var opnuð
ný verslun að Austurströnd
10 á Seltjarnarnesi. Það er
svo sem ekki í frásögur
færandi nema fyrir þær sakir
að búðin byggir alfarið á
frjálsum framlögum og allur
ágóði rennur óskiptur til
góðgerðarmála.
Sigríður Marta Harðardóttir
starfrækir verslunina Elley í hús-
næði sem er í hennar eigu. Allur
hagnaður rennur óskiptur til
Kvenna athvarfsins og varningur-
inn samanstendur algerlega af
frjálsum framlögum í formi fatn-
aðar og gjafavöru. Sigríður segist
afar þakklát fyrir viðtökurnar
sem verslunin hefur fengið sem
og alla fatapokana sem búðinni
hafa borist síðan hún var opnuð í
febrúar.
Þráði að gefa til baka
Þegar Sigríður Marta, eða Sigga
eins og hún er alltaf kölluð, flutti
til baka til Íslands eftir tíu ára veru
í Bandaríkjunum, í miðjum Covid-
19 faraldri, kviknaði hugmyndin
að því að finna leið til að gefa
til baka til samfélagsins. „Ég var
sjálfboðaliði í sambærilegri búð í
Bandaríkjunum og í Los Angeles
tók ég þátt í að safna fjármagni til
að borga fyrir lista- og tónlistar-
kennslu fyrir börn í almennings-
skólum. Svo þegar ég var í meistara-
námi í lögfræði í Duke University
í Norður-Karólínu tók ég þátt í
ýmsum „pro bono“-verkefnum. Svo
þegar ég flutti til Íslands í faraldr-
inum fór ég að hugsa með mér hvað
ég gæti gert til að gefa til baka til
samfélagsins. Hvernig gætum við
hjálpað þeim sem standa höllum
fæti,“ segir Sigga.
Forréttindi og hollt fyrir sálina
„Sjálfboðaliðastarf hefur alltaf
verið eitthvað sem togar í mig því
það er svo góð tilfinning að gefa til
baka. Það eru hreinlega forrétt-
indi og andlega hollt fyrir sálina að
gefa ef maður getur og það kemur
margfalt til baka.
Í meistaranáminu mínu var ég
framkvæmdastjóri lögfræðinga-
þjónustu Lögréttu, félags laga-
nema við HR, og fór í samstarf við
Kvennaathvarfið. Þar veittum við
endurgjaldslausa ráðgjöf til þeirra
sem þurftu á því að halda. Þannig
kynntist ég starfi Kvennaathvarfs-
ins og fannst ótrúlegt að verða
vitni að því hvernig þau gripu
konur sem voru að upplifa versta
tímabil lífs síns og veita þeim
stuðning.
Ég bjó í tíu ár samtals í Banda-
ríkjunum og af þeim var ég um
sjö ár í Los Angeles eða LA eins
og Kaninn kallar borgina. Þaðan
kemur líka nafnið á búðinni. Í
Los Angeles varð ég fyrir miklum
áhrifum af því hvernig second
hand-búðir eru nú í fyrsta sinn að
vaxa hraðar en hraðtískurisarnir.
Það er nefnilega sorgleg staðreynd
að tískuiðnaðurinn er annar mest
mengandi iðnaður í heimi og það
er ljóst að þetta er ekki sjálfbært
dæmi og mun ekki ganga mikið
lengur. Unga fólkið í dag er með
puttann á púlsinum í þessum
málum og velur frekar að gefa
flíkum framhaldslíf heldur en að
kaupa nýtt. Það þekkir þau nei-
kvæðu áhrif sem hraðtískuiðnað-
urinn hefur á umhverfið og myrku
hliðarnar á því að vera stanslaust
að kaupa ný föt. Hugsaðu þér. Það
þarf þrjú þúsund lítra af vatni til
þess að búa til einn bómullarbol.
Það samsvarar drykkjarvatni fyrir
eina manneskju í þrjú ár!“ segir
Sigga.
Vandaðri flíkur
„Sjálf er ég af þeirri kynslóð sem á
sínum tíma leit varla við notuðum
Gefur fötum framhaldslíf fyrir sálina og samfélagið
Sjálfboðaliðastarfið hefur alltaf togað í Sigríði Mörtu Harðardóttur og úr varð að hún opnaði góðgerðarverslunina Elley á Seltjarnarnesi.
Sigríður vill þakka Eddu Sif Guðbrandsdóttur hjá Stúdíó Brandi fyrir að hanna inniviði verslunarinnar. Fréttablaðið/Ernir
Sigga er þakklát fyrir öll framlögin og segir flíkurnar seljast fljótt. Nú þegar
hefur safnast hátt í hálf milljón sem hefur runnið beint til Kvennaathvarfsins.
Kvennaathvarfið nýtur góðs af starfsemi Elley.
flíkum, því það var eitthvert tabú.
En staðreyndin er sú að flíkurnar
sem fást í second hand-búðunum
eru almennt í mun meiri gæðum
en hraðtískufötin. Þetta sést líka
á því að það er eiginlega undan-
tekning að ég fái hraðtískuföt til að
selja í búðinni, einfaldlega vegna
þess að þau endast ekki nógu lengi
til að eiga sér framhaldslíf. Í dag
leitast ég sjálf mun frekar eftir því
að gefa fötum framhaldslíf því
þetta eru almennt vandaðri föt og
á góðu verði.“
Sigga bætir við að það sé hollráð
að láta hraðtískuiðnaðinn ekki
segja sér hvað maður eigi að kaupa
heldur að sýna frekar sjálfstæða
hugsun í fatavali og sköpunargleði.
„Það er svo miklu skemmtilegra að
skapa sinn eigin stíl og finna hvað
manni sjálfum þykir flott, heldur
en að láta tískubransann mata sig á
því. Ég segi líka stundum að þegar
þú kaupir föt úr nytjaverslun þá
sértu að velja úr fallegum fötum
sem aðrir hafa valið að kaupa
áður. Margt af því sem ég er að fá í
búðina er líka úr búðum sem sjást
ekki hér á landi. Sumt kemur frá
París eða jafnvel Egyptalandi. Fólk
er þá búið að ferðast um heiminn
og finna sér eitthvað fallegt. Svo
þegar tími er kominn er það til-
búið að gefa flíkinni framhaldslíf
og kemur með hana hingað.“
Hefur safnast hátt í hálfa milljón
Elley berast frjáls framlög á nánast
hverjum einasta degi og kemur
ýmislegt fallegt upp úr gjafapok-
unum, allt frá fatnaði til gjafavöru.
„Þegar við mætum á daginn til að
opna búðina bíða eftir okkur nýir
pokar af fötum og hlutum sem fólk
hefur ekki lengur not fyrir. Það er
frábær tilfinning að vita til þess
að fötin sem þjónuðu manni vel
eitt sinn, en ekki lengur, geti átt sér
framhaldslíf hjá nýjum eiganda,
í stað þess að hanga ónotuð í
fataskápnum, húka í poka inni í
geymslu eða veltast um í gáma-
skipi á leið í sorpbrennslu erlendis.
Enn betra er að vita til þess að
ágóðinn sem hlýst af sölu fatanna
rennur beint og óskiptur til góðs
málefnis,“ segir Sigga. „Allt sem
við seljum rennur til Kvennaat-
hvarfsins og þau sem vilja borga
með korti leggja upphæðina inn á
reikning Kvennaathvarfsins. Við
höldum skrá yfir það sem hefur
safnast síðan á opnunardeginum
og er upphæðin komin upp í hátt
í hálfa milljón. Þetta er gott fyrir
alla, þau sem gefa og þau sem
versla. Gott fyrir sálina, samfélagið
og góðgerðarmálin,“ segir hún.
Alltaf pláss fyrir hjálp
Sigga segir það gaman að geta gefið
fólki tækifæri til að gefa til baka
til samfélagsins. „Við erum alltaf
með opnar dyr fyrir sjálfboðaliða
og kunnum að meta alla þá hjálp
sem við getum fengið, hvort sem
fólk getur séð af einni mínútu eða
tíu klukkustundum á mánuði til að
hjálpa til í búðinni. Þetta á að vera
skemmtilegt samfélagslegt verkefni
þar sem fólk getur látið gott af sér
leiða. Við reynum að standa vakt-
ina frá klukkan 15.00-17.00 alla
virka daga og laugardaga og höfum
náð að manna flestalla dagana frá
opnun. Svo auglýsum við á Insta-
gram og Facebook ef við erum með
opnanir á öðrum tímum.
Ég bjóst í raun alltaf við því að
þetta myndi ganga vel því það
er markaður fyrir þetta. Fólk vill
gefa hlutunum framhaldslíf og
versla við áhugaverðar búðir þar
sem hægt er að finna einstaka
hluti. Enda sést það að flíkurnar
fara hratt út. Þetta gengur vel. Að
lokum vil ég þakka enn og aftur
fyrir öll þau framlög sem okkur
hafa borist og þau sem eiga eftir
að berast í framtíðinni. Hérna
sjáum við samfélagið vera að gefa
til baka.“
Það verður spennandi að fylgjast
með Elley vaxa og dafna og halda
áfram að stuðla að bættu sam-
félagi. n
8 kynningarblað A L LT 18. mars 2023 LAUGARDAGUR