Fréttablaðið - 18.03.2023, Blaðsíða 44
Kvikmyndin The Grump: In
search of an Escort, var frum-
sýnd í Bíó Paradís í vikunni.
Af því tilefni kom leikstjóri
myndarinnar, Mika Kauris-
mäki, til landsins og ber hann
landi og þjóð vel söguna.
Ég held að þetta sé í fjórða
skiptið sem ég kem til
Íslands og mér finnst það
alltaf jafn frábært,“ segir
finnski stórleikstjórinn
Mika Kaurismäki. Hann var staddur
hér á landi í vikunni í tilefni frum-
sýningar á kvikmyndinni The
Grump: In Search of an Escort.
„Ég kom hingað fyrst á kvik-
myndahátíð á níunda áratugnum.
Þá kynntist ég Friðriki Þór og fleira
kvikmyndagerðarfólki. Svo þegar
ég kom í annað skipti, á níunda ára-
tugnum, þá kynntist ég Ingvari,“
segir Mika. Þar á hann við kvik-
myndaframleiðandann Ing var
Þórðarson en hann er einn fram-
leiðenda The Grump.
„Í þessari ferð fór ég ásamt fleira
fólki á Kaffibarinn og þar var Ing-
var á bak við barinn, var einn eig-
endanna. Þarna var fullt af fólki og
mjög gaman,“ segir Mika. Hann og
Ingvar hafa síðan unnið að ýmsum
verkefnum saman og eru góðir vinir.
„Ég kalla hann son minn, það er
alveg nægur aldursmunur á okkur
til þess,“ segir Mika kíminn.
Fjölmargar kvikmyndir
Grump hefur fengið afar jákvæð
viðbrögð eftir að hún var frum-
sýnd fyrir fullu húsi í Bíó Paradís í
vikunni. Mika segir húmor Íslend-
inga og Finna að mörgu leyti líkan,
það geti útskýrt vinsældirnar. „Ég
held að við séum lík að mörgu leyti.
Sérstaklega húmorinn. Kannski er
það af því við erum að einhverju
leyti bæði einangruð. Tungumál
Íslendinga og Finna eru til dæmis
ólík hinum skandinavísku tungu-
málunum,“ segir hann.
„Maður sér það oft á norrænum
kvikmyndahátíðum að Finnar og
Íslendingar hópast saman.“
Mika hefur framleitt, skrifað og
leikstýrt tugum kvikmynda og
er afar mikils metinn í Finnlandi.
Hann og bróðir hans, Aki Kauris-
mäki, vinna einnig mikið saman
og hafa þeir bræður komið að um
fimmtungi kvikmynda sem gefnar
hafa verið út í Finnlandi frá árinu
1980.
Mika stefndi þó ekki alltaf að því
að vinna við kvikmyndir. Hann
vann á tímabili sem húsamálari
og lærði síðar arkitektúr í Tækni-
háskólanum í München.
„Það var erfitt að komast inn,
ég var mjög ánægður með að hafa
tekist það og fannst mjög gaman
að vera þarna. Við hliðina á arki-
tektúrskólanum var hins vegar
kvikmyndaskóli sem ég labbaði
fram hjá á hverjum degi og ég var
mjög áhugasamur um kvikmyndir,
horfði á tvær kvikmyndir á hverjum
degi, svo einn daginn ákvað ég bara
að fara inn,“ segir Mika.
„Það var enn erfiðara að komast
inn í kvikmyndaskólann en það var
að komast inn í Tækniháskólann og
ég bjóst alls ekki við því að ég kæm-
ist inn, svo það kom mér skemmti-
lega á óvart þegar ég var einn af
þeim 30 sem komust inn. Það voru
nefnilega 7.000 sem sóttu um,“ segir
hann.
Bjó undir Jesú
Mika fæddist í Helsinki en ólst upp í
finnskum smábæ, hann flutti svo til
Alltaf frábært
að koma til
Íslands
Mika Kauris-
mäki og bróðir
hans Aki hafa
komið að út-
gáfu fimmtungs
allra kvikmynda
sem gefnar hafa
verið út í Finn-
landi síðan árið
1980.
Fréttablaðið/
anton brink
Þýskalands þar sem hann menntaði
sig en síðar fór hann á kvikmynda-
hátíð í Brasilíu. „Ég ætlaði bara að
vera í eina viku en var í 20 eða 30
ár,“ segir hann.
„Um leið og ég kom til Brasilíu
áttaði ég mig á því að mig langaði
að ferðast um landið og svo bara
ílengdist ég,“ segir hann.
„Þú hefur séð styttuna af Jesú
Kristi í Rio De Janeiro er það ekki?
Ég keypti mér hús undir hendinni á
honum, bara undir handarkrikan-
um á Jesú. Á myndum af styttunni
og póstkortum sést alltaf í húsið
mitt,“ segir hann.
„Brasilía er svo stór og Ríó er
algjör suðupottur. Þar eru ýmis
félagslega vandamál og mikil stétta-
skipting en fólkið er svo vingjarn-
legt. Margir spyrja mig að því hvort
það sé ekki hættulegt að vera þar,
það getur auðvitað verið það ef þú
ert á röngum stað á röngum tíma.
En meirihluti fólks er heiðarlegur
og ég þekki landið vel,“ segir Mika.
Fann ástina
„Það héldu margir að ég hefði elt
konu til Brasilíu en það var ekki
þannig. Þar kynntist ég hins vegar
konunni minni, hún er frá El Salva-
dor en þar bjuggum við í nokkur ár,“
segir Mika en hann býr nú ásamt
fjölskyldu sinni í Finnlandi.
„Mig langaði mikið að hafa þau
með mér hér á Íslandi en þetta er
svo stutt stopp núna,“ segir Mika.
Hann kom til Íslands á þriðjudag
og fór aftur til Finnlands í gær þar
sem nýjasta mynd hans var frum-
sýnd, heimildarmynd um finnsku
rokkhljómsveitina Hassisen Kone.
„Já, það er búið að vera skemmti-
legt og mér finnst mjög gaman að
gera heimildarmyndir og ég hef
mikinn áhuga á tónlist,“ segir Mika,
sem sjálfur spilar á trommur. „Ég fór
aldrei í tónlistarskóla heldur spilaði
bara inni í bílskúr. Svo hef ég spilaði
í alls konar hljómsveitum og strák-
arnir í Hassisen Kone eru góðir vinir
mínir.“
The Grump: In Search of an
Escort er þriðja myndin um gaml-
an nöldursegg sem lendir í hinum
ýmsu ævintýrum og hefur myndin
notið mikilla vinsælda víða. „Já,
þessi mynd var á toppnum í Finn-
landi yfir aðsóknarmestu innlendu
myndina, eina myndin sem toppaði
okkur var Top Gun,“ segir Mika.
„Finnar elska þessar myndir og
allir geta tengt við karakterana.
Það gæti vel farið svo að ég myndi
leikstýra fjórðu myndinni um The
Grump,“ segir hann.
„Þetta var í fyrsta skipti sem ég
var bara að leikstýra. Ég hef alltaf
líka verið að framleiða eða skrifa
eða eitthvað slíkt. Þetta var mjög
þægilegt og ég gæti alveg hugsað
mér að gera fjórðu myndina, hún
yrði þá sú síðasta í röðinni,“ segir
Mika að lokum. n
Ég keypti mér hús
undir hendinni á
honum, bara undir
handarkrikanum á
Jesú.
Birna Dröfn
Jónasdóttir
birnadrofn
@frettabladid.is
28 helgin FRÉTTABLAÐIÐ 18. mARs 2023
lAUgARDAgUR