Fréttablaðið - 18.03.2023, Síða 49
Samtök herstöðvaandstæðinga mótmæla við varnarsvæðið árið 1976. MYND/LJÓSMYNDASAFN BYGGÐASAFNS REYKJANESBÆJAR
Dvöl setuliðsins á Íslandi svífur
yfir vötnum á Safnahelgi á Suður-
nesjum. Þar verður kynnt frá-
sagnasöfnun um varnarliðið á
Miðnesheiði auk þess sem stríðs-
minjasýning fer fram í Keflavík.
arnartomas@frettabladid.is
Nú stendur yfir Safnahelgi á Suðurnesj-
um þar sem margvísleg dagskrá fer fram
á sýningum og söfnum á svæðinu. Í Duus
safnahúsi munu þær Eva Kristín Dal,
safnstjóri Byggðasafns Reykjanesbæjar,
og Helga Vollertsen, sérfræðingur þjóð-
hátta við Þjóðminjasafn Íslands, kynna
nýja heimildasöfnum um varnarliðið á
Miðnesheiði og áhrif þess á líf og störf
Íslendinga.
„Við erum að safna þjóðháttum eða
nú-heimildum um veru varnarliðsins
og áhrifin sem hún hafði á íslenskt sam-
félag,“ segir Eva Kristín um verkefnið
sem ber heitið Innan girðingar og utan.
„Varnarliðið var á Miðnesheiði frá 1949
til 2006 þannig að þeir sem muna elstu
tímana og unnu fyrst á vellinum eru
kannski orðnir frekar gamlir svo það fer
hver að verða síðastur að safna þessum
heimildum frá fyrstu tíð.“
Eva Kristín segir þó að líka sé mikill
áhugi á að heyra frá yngra fólki sem
upplifði tímann undir síðari hluta tutt-
ugustu aldar og fram til 2006. Söfnunin
fer fram með fjórum spurningaskrám,
hverri með sínu þema, sem svarað er á
vefnum í gegnum gagnagrunninn Sarp.
„Fjórða skráin er á ensku og heitir
„On and off base“. Þar er markhópurinn
hermenn og fjölskyldur þeirra sem voru
staðsett hér á Miðnesheiði. Við ætlum að
reyna að teygja okkur til Bandaríkjanna
og fá þeirra upplifun af því hvernig lífið
á Íslandi var.“
Með heimildasöfnuninni segir Eva
Kristín að einna helst sé verið að leita
að sögum og frásögnum af upplifun ein-
staklinga.
„Það er til mikið af formlegum sögu-
legum heimildum en við viljum endilega
fá persónulega upplifun fólks.“
Stríðsmunirnir trekkja að
Þá geta þeir sem eru áhugasamir um
sögu og muni frá tímum varnarliðsins
einnig lagt leið sína á stríðsminjasýn-
ingu í Gamla Pakkhúsinu í Keflavík. Þar
sýna safnarar muni úr einkasöfnum og
þrátt fyrir að sýningin sé minni í sniðum
en sú síðasta verður þar mikið af hlutum
sem hafa ekki verið sýndir áður.
„Það komu yfir tvö þúsund manns
hérna síðast þar sem þetta var tals-
vert stærri sýning,“ segir Sigurður Már
Grétarsson safnari. „Við verðum fimm
safnarar með muni hérna núna en það
verður hellingur af f lottum hlutum, til
dæmis frá þeim sem komust ekki á sýn-
inguna núna.“
Sem safnari er Sigurður helst í vopn-
um og skotfærum frá fallbyssum og
skriðdrekum. Þá eru aðrir safnarar hver
með sína sérstöðu.
„Það eru einhverjir sem sérhæfa sig í
skjölum og við erum með einn sem er
sérfræðingur í hjálmum,“ segir hann.
„Þetta skiptist skemmtilega á milli svo
við erum ekki allir með sömu hlutina.“
Þá verða munir frá sprengjudeild
Landhelgisgæslunnar til sýningar.
„Þarna verður til dæmis 57 millimetra
fallbyssa, sprengjueyðingarbúningur
og eitthvað f leira,“ segir Sigurður sem
ítrekar að sýningin sé fjölskylduvæn.
„Við verðum með bás þarna þar sem við
leyfum krökkunum að setja á sig hjálm
og hluta af búningum til að taka myndir
og svona.“
Nánar um dagskrána má finna á
safnahelgi.is. n
Innan girðingar og utan
Það er til mikið af form-
legum sögulegum heim-
ildum en við viljum
endilega fá persónulega
upplifun fólks.
Eva Kristín Dal, safnstjóri Byggðasafns
Reykjanesbæjar
Ástkær eiginkona mín, dóttir, móðir,
tengdamóðir og amma,
Gunnhildur Óskarsdóttir
lést á heimili sínu þann 17. mars 2023.
Útförin fer fram frá Hallgrímskirkju
föstudaginn 24. mars kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en
þeim sem vilja minnast hennar er bent á styrktarfélagið
Göngum saman.
Arnór Þórir Sigfússon
Óskar H. Gunnarsson
Óskar Örn Arnórsson Agla Sigríður Egilsdóttir
Ragnhildur Erna Arnórsdóttir
Snorri Már Arnórsson Chanel Björk Sturludóttir
Magnús Óskarsson
Móðir okkar,
tengdamóðir,
amma og
langamma,
Aðalfríður
Dýrfinna
Pálsdóttir
og faðir minn,
Steinn Mikael Sveinsson
létust á hjúkrunarheimilinu Skjóli þann 15. mars
síðastliðinn. Útför þeirra fer fram frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 5. apríl kl. 13.00.
Páll Eyjólfsson Signý Kjartansdóttir
Gaukur Eyjólfsson Birna Jónsdóttir
Stefán Eyjólfsson Bergþóra Tómasdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Hörður Steinsson
Móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma
Guðrún Hólmfríður
Sigurðardóttir
fyrrum talsímakona
á Kópaskeri
er látin.
Sigmar Sigurðsson
Helga Sigfríður Ragnarsdóttir
Árni Páll Ragnarsson Guðrún Ósk Valtýsdóttir
Anna Þuríður Jónsdóttir Manfreð Jóhannsson
Sigurður Ragnarsson Þóra Sigríður Gísladóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Elsku mamma, dóttir,
systir og mágkona,
Nína Karen Grétarsdóttir
tækniteiknari,
lést í faðmi fjölskyldunnar á
Landspítalanum við Hringbraut
síðastliðinn miðvikudag.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju fimmtudaginn
30. mars klukkan 11.
Sigrún Elísa Gylfadóttir
Sandra Jóhannsdóttir
Grétar Þorsteinsson
Hjörtur Þór Grétarsson Anna Kristín Pétursdóttir
Selma Björk Grétarsdóttir Halldór Gunnarsson
Anna Borg Harðardóttir
og fjölskyldur
Helen Gunnarsdóttir Jónsson
fæddist í Bandaríkjunum 18. febrúar
1953. Hún lést á Landspítalanum í
Reykjavík þann 10. mars síðastliðinn
og fór útför hennar fram í kyrrþey.
Við minnumst þín eins og þú varst.
Aðstandendur
Elsku eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Önundur Kristjánsson
skipstjóri og útgerðarmaður,
Aðalbraut 41a, Raufarhöfn,
lést í faðmi fjölskyldu sinnar á
Skógarbrekku á Húsavík, föstudaginn 3. mars.
Útför hans fer fram frá Raufarhafnarkirkju laugardaginn
25. mars klukkan 14.00. Sérstakar þakkir fær starfsfólk
Skógarbrekku fyrir frábæra umönnun og hlýju.
Una Þórdís Elíasdóttir
Gunnþóra H. Önundardóttir Þorkell Ingimarsson
Elva Önundardóttir Páll Karlsson
Freyja Önundardóttir
Kristján Marinó Önundarson Þóra Björg Sigurðardóttir
Sindri Önundarson Ragnhildur Halla Bjarnad.
afabörn og langafabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma, dóttir og systir,
Þuríður Þórðardóttir
Þjóðbraut 1, Akranesi,
lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á
Akranesi, sunnudaginn 5. mars eftir
erfiða baráttu við krabbamein.
Útför hennar fer fram frá Akraneskirkju þriðjudaginn
21. mars kl. 13. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem
vilja minnast hennar er bent á Hollvinasamtök HVE,
Akranesi, eða Sveinusjóð til styrktar Ölveri sumarbúðum
(kt. 540580-0149, banki 0552-14-11000).
Sérstakar þakkir sendum við til starfsfólks
Lyflækningadeildar á Sjúkrahúsinu á Akranesi, fyrir
hlýhug, frábæra umönnun og stuðning.
Þórður Sævarsson Valgerður Jónsdóttir
Benedikt Sævarsson Sunna Lind Ægisdóttir
Lilja Sævarsdóttir
ömmustelpurnar
Sigþóra Karlsdóttir
systkini
FRÉTTABLAÐIÐ TÍMAMÓT 3318. MARS 2023
LAUGARDAGUR