Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1945, Blaðsíða 5
Landsfundur Sjálfstæðisflokksins
haldinn í Reykjavík og á
Þingvöllum í júní-
mánuði 1945.
FORMÁLI.
Af sérstökum ástæðum dróst á sínum tíma að gefa út
prentaða landsfundarskýrslu eftir landsfund Sjálfstæðis-
flokksins, er haldinn var í Reykjavík og á Þingvöllum dagana
14.—16. júní 1945. Var að vísu sagt ítarlega frá fundarhaldinu
jafnóðum í blöðum og útvarpi.
En miðstjórnin taldi rétt, þótt síðbúið væri, að láta sér-
prenta þessa skýrslu, sem hér birtist, þar sem að vísu er
sleppt að greina frá einstökum atriðum fundahaldsins, en birt-
ar eru ályktanir fundarins ásamt ræðu formanns flokksins,
Ólafs Thors, forsætisráðherra, við fundarsetninguna.
Með þessu móti geymast ályktanirnar í handhægri heimild
ásamt yfirlitsræðu formanns, en aðrar ræður af sama tagi
finnast í eldri landsfundarskýrslum, sem þannig mynda sam-
fellt yfirlit um stjórnmálin milli landsfunda um áraraðir.
3