Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1945, Blaðsíða 9
framþróun atvinnu- og viðskiptalífsins í landinu, sbr.
póst og síma, hafnir, vita og vegi eða víðtækar raf-
orkuframkvæmdir og annað slíkt, sem við það mið-
ast að hlaupa undir bagga, þar sem bolmagn ein-
staklingsins þrýtur.
Telur fundurinn, að farsæld í atvinnulífinu geti
ekki þróazt nema með góðu samstarfi og gagnkvæm-
um skilningi stéttanna, svo sem verið hefir megin-
sjónarmið Sjálfstæðisflokksins. — Með samstarfi nú-
verandi stjórnarflokka álítur fundurinn, að þetta
sjónarmið hafi hlotið almennari viðurkenningu en
áður, sem hann væntir, að megi til góðs leiða og skapa
aukið öryggi fyrir vinnufriði og bættri afkomu.
Fundurinn bendir á, að heppileg leið til aukins ör-
yggis og jafnvægis í atvinnumálum þjóðarinnar sé
hlutdeildarfyrirkomulag í atvinnurekstrinum, þar
sem því verður við komið, svo að starfsmenn geti
öðlast hlutdeild í arði eða rekstri þeirra fyrirtækja,
sem þeir vinna við.
Fundurinn er því fylgjandi, að sett verði löggjöf
um vinnuvemd, aukið öryggi verkamanna og bættan
aðbúnað, og um vinnutíma í þeim atvinnugreinum, þar
sem því verður við komið.
Fjármál og skattamál.
Jafnvel þótt landsfundurinn telji, að óhjákvæmi-
legt hafi verið, eins og málum var komið, að leggja
á nýja skatta á síðasta Alþingi, er hann þeirrar
skoðunar að keppa beri að því, að færa niður útgjöld
ríkissjóðs, svo að unt verði að létta skattabyrðina
aftur.
7