Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1945, Blaðsíða 44
unum. Fyrri stjórn hafði skilað í hendur þingsins
fjárlagafrumvarpi, er ekki var í neinu samræmi við
staðreyndirnar. Skorti þar tugi milljóna nýrra tekna
til þess að standast óhjákvæmileg útgjöld. Tókst
stjórnarliðum, undir forystu fjármálaráðherra, að
sættast á leiðir til tekjuöflunar, er námu tugum
milljóna. Var það órækt vitni hins ákveðna ásetnings
og sterka samstarfsvilja, svo mjög sem stjómarliða
greinir innbyrðis á um skoðanir og stefnu í skatta-
málunum.
Þá hefi ég og drepið á bráðabirgðalausn dýrtíðar-
málsins. Var, sem kunnugt er, sætzt á að greiða enn
um skeið, og til næsta hausts, niður vísitöluna. Verð-
ur að stefna að því, að komast sem fyrst út af þeirri
braut, en ekki er það vandkvæðalaust. Hefir Alþingi
leiðst inn á hættulegar brautir, er hinni réttu vísitölu
er leynt með tug milljóna greiðslum úr ríkissjóði,
með þeim afleiðingum, að hún hækkar um 30—40
stig, hvenær sem þær greiðslur falla niður. Er slík
málsmeðferð einn órækasti vottur hættunnar, sem því
fylgir, að enginn telji sig ábyrgan, öllum vanda sé
slegið á frest og allt látið reka á reiðanum.
Verður það nú eitt aðal vandamálið að leysa þá
hnúta, er þá voru hnýttir. En eigi verður unnt að
gera sér grein fyrir málinu svo að hægt sé að bera
fram tillögur um úrlausn, fyrr en séð er, hver áhrif
það hefur, að Evrópustyrjöldinni er lokið og mark-
aðir opnast að nýju fyrir sölu afurða okkar.
Þá þykir mér rétt að geta þess, einnig vegna þrá-
látra tilrauna stjórnarandstöðunnar til að ófrægja
stjórnarliðið í augum bænda, að Alþingi ákvað að
leggja fram í þágu landbúnaðarins á næsta ári nær 13
42