Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1945, Qupperneq 15

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1945, Qupperneq 15
Iðnaðarmál. Sjálfstæðisflokkurinn vill vernda þann iðnað, sem fyrir er í landinu, tryggja honum verkefni, reksturs- fé og markað. Flokkurinn vill einnig stuðla að því, að hér rísi nýr iðnaður, sem sýnt er, að eigi erindi hingað og hefir tilveruskilyrði undir góðri stjórn. Sjálfstæðisflokkurinn vill sérstaklega vinna að því í iðnaðarmálum — 1. Að iðja og iðnaður eigi kost á lánsfé til starf- semi sinnar í réttu hlutfalli við aðra atvinnuvegi þjóð- arinnar. 2. Að útlendri iðnaðarframleiðslu verði ekki íviln- að í tollaálögum gagnvart þeirri íslenzku, né veitt aðstaða til ósanngjarnrar samkeppni. 3. Að sett verði löggjöf um iðnskóla, er tryggi þeim svipaða aðstöðu og héraðs- og gagnfræðaskól- um. 4. Að ekki verði dregið úr þeim kröfum um sér- kunnáttu iðnaðarmanna, sem nú gilda, svo að stefnt verði áfram að því að fá sem bezta iðnaðarvinnu og iðnaðarframleiðslu. 5. Að unnið sé að því, að á hverjum tíma sé nægj- anlegt efni og áhöld fyrirliggjandi í landinu til iðju- og iðnaðarstarfa. 6. Að komið verði upp raforkuverum um land allt fyrir sveitir og sjávarþorp, svo að iðnaður, hvar sem er á landinu, eigi kost á nægilegu rafmagni til starfrækslu sinnar. 7. Að hlynnt verði að því, að heimilisiðnaður eflist sem mest og fái sem bezta aðstöðu. 8. Landsfundur Sjálfstæðisflokksins lýsir sig full- komlega samþykkan þeirri stefnu, er síðasta Alþingi 13

x

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Landsfundur Sjálfstæðisflokksins
https://timarit.is/publication/1780

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.