Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1945, Page 16
tók í áburðarverksmiðjumálinu. Fagnar fundurinn
því, að Nýbyggingarráð hefir nú einróma falið sér-
fræðingum athugun málsins og treystir því, að rann-
sókn verði hraðað svo sem auðið er, en að því að
eins verði ráðizt í stofnun verksmiðjunnar, að trygt
þyki, að áburðurinn verði eigi dýrari en sambærileg-
ur erlendur áburður. Vítir fundurinn þær tilraunir,
sem gerðar hafa verið til að villa mönnum sýn í máli
þessu og telur, að það eigi að sjálfsögðu að athugast
á fullkomlega hagfræðilegum grundvelli.
Kirkjumál.
Landsfundur Sjálfstæðismanna lýsir yfir eindregn-
um stuðningi sínum við kirkju og kristindóm og tel-
ur það höfuðnauðsyn, að kristileg áhrif aukist með
þjóðinni.
14