Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1945, Side 45

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1945, Side 45
milljónir króna. Er það yfir tveim milljónum króna meira en fyrrverandi stjórn lagði til, en sem kunnugt er, fór einn af miðstjórnarmönnum Framsóknar- flokksins með landbúnaðarmál í þeirri stjórn. Þingið setti einnig ýmsa merka landbúnaðarlöggjöf, þ. á. m. lög um jarðræktir og húsagerðarsamþykktir i sveitum, lög um tilraunastöðvar í þágu landbúnað- arins, lög um búnaðarmálasjóð o. m. fl. Hefði vitan- lega engin slík löggjöf náð fram að ganga án frum- kvæðis eða beins stuðnings stjórnarliða, er réðu lög- um og lofum á Alþingi eftir stjórnarmyndunina. Vil ég í þessu sambandi taka það fram og leggja sérstaka áherzlu á, hversu áríðandi það er fyrir bændur, að þeir skerist ekki úr leik eða sýni nýsköpunarfyrir- ætlunum stjórnarliða áhugaleysi eða jafnvel óvild. Það hefir verið illa á málum bænda haldið að undan- förnu. Þeir standa í dag höllum fæti. Yfir þeim vofir því mikil hætta, ef ekki er að gert. Forystan verður að koma frá þeim sjálfum. Þeir eiga því jafnvel öll- um öðrum fremur að taka vel á nýsköpuninni, starfa að henni með lífi og sál og fylgja því fast fram, að þeirra hlutur verði eigi látinn eftir liggja. Þá var og myndarlega tekið á málefnum útvegsins. Veitti þingið nær 20 milljónir á fjárlögum næsta árs honum til framdráttar og var það 4 milljónum meira en fyrrverandi stjóm lagði til. Ennfremur samþykkti þingið mörg merk lög varðandi hagsmunamál útvegs- ins, þ. á. m. yfir 20 mismunandi hafnalög, er kalla á 8 milljóna framlög og 13 milljóna ábyrgð ríkissjóðs. Lánsheimild að upphæð 20 milljón krónur til bygg- inga nýrra síldarverksmiðja var samþykkt. Ennfrem- ur 15 milljóna lánsheimild til að greiða fyrir kaupum 43

x

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Landsfundur Sjálfstæðisflokksins
https://timarit.is/publication/1780

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.