Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1945, Side 48
Út á við hafa verkefnin einnig verið mörg. Liggur
það í hlutarins eðli, að á meðan svo standa sakir,
að sala afurða, kaup nauðs^mja, flutningur til lands-
ins og frá því eru að langmestu leyti samningamál
ríkisstjórna milli, er í mörg horn að líta út á við fyrir
þjóð, sem jafnframt hýsir erlend setulið í landi sínu,
en þarf, auk þess, að byggja frá grunni allt skipulag
utanríkismálefna sinna. Skortir án alls efa á, að nægi-
lega vel hafi verið haldið á þeim afar mikilvægu mál-
um. En þó hefir verið leitazt við að hafa þá fram-
sýni, sem takmörkuð þekking og reynsla leyfði, og
sýna, þegar svo bar undir, jafnt kurteisi án fleðu-
háttar sem festu án hroka eða ruddamennsku. Er
nú í undirbúningi ný skipan á umboði Islands erlend-
is, jafnt varðandi sendisveitir sem ræðismennsku, og
verður þeim væntanlega mjög bráðlega hrint í fram-
kvæmd.
Að því er snertir hina afar þýðingarmiklu samn-
inga, er Islendingar hafa nýverið gert við erlendar
þjóðir, tel ég við megum fagna ágætum árangri. I
Svíþjóð höfum við tryggt sölu á mikilli síld fyrir
gott verð og jafnframt tekizt að fá loforð um ýms-
ar þær nauðsynjar, er okkur vanhagar um, þ. á. m.
um skipabyggingar. Eru þeir samningar allir hinir
ánægjulegustu.
Enn stærri og þýðingarmeiri eru þó samningarn-
ir, er gerðir voru við Breta í febrúar og marz síðast-
liðnum, og þá einkum þegar þess er gætt, hversu þau
mál stóðu, er stjórnin tók við í október s. 1. Skal ég að
sönnu eigi rekja það mál, en þó vil ég minna á, að
um þær mundir og allt fram undir samningalok var
það ekki aðeins stjórnarandstaðan íslenzka, imdir
46