Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.11.1982, Qupperneq 27
í varastjórn:
Anna Snæbjörnsdóttir Bessa-
staðahreppi, Bernhard Linn
Mosfellssveit, Björn Olafsson
Kópavogi, Bragi Michaelsson
Kópavogi, Guðmundur Einars-
son Seltjarnarnesi, Hilmar Guð-
laugsson Reykjavík, Hilmar Ing-
ólfsson Garðabæ, Jón Olafsson
Kjalarnesi, Sigurður E. Guð-
mundsson Reykjavík.
Endurskoðendur voru kjörnir.
Aðalmenn: Guðni Stefánsson
Kópavogi og Einar Geir Þor-
steinsson Garðabæ.
Varamenn: Hulda Valtýsdóttir
Reykjavík, og Markús A. Einars-
son Hafnarfirði.
A fundinum voru eftirfarandi
tillögur samþykktar samhljóða.
Tillaga I.
„Aðalfundur Samtaka Sveitarfé-
laga á höfuðborgarsvæðinu telur
nauðsynlegt að Samtökin öðlist
viðurkenningu og full réttindi
sem landshlutasamtök og njóti
þar með framlaga úr Byggða-
sjóði og Jöfnunarsjóði sveitarfé-
laga”.
Tillaga II.
„Aðalfundur S.S.H. samþykkir
að árgjöld til samtakanna fyrir
árið 1983 verði kr. 0 30 á hvern
íbúa”.
Tillaga III.
„Aðalfundur S.S.H. leggur
áherslu á mikilvægi þess að
lagningu Reykjanesbrautar
verði hraðað mun meira en nú-
gildandi vegalög gera ráð fyrir”.
Tillaga IV.
„Aðalfundur S.S.H. samþykkir
að skora á Alþingi að gera nauð-
synlegar breytingar á kjördæma-
skipan og kosningarlögum á
þessu þingi til þess að leiðrétta
stöðugt vaxandi misvægi
atkvæða eftir búsetu lands-
manna”.
A fundinum kom fram full
samstaða um að æskilegt væri að
efla Samtök sveitarfélaga á
höfuðborgarsvæðinu.
Salome Þorkelsdóttir alþ.mað-
ur og formaður S.A.S.Í.R. kvaðst
vona að þegar fundinum lyki væri
samruni S.A.S.Í.R. og S.S.H. orð-
inn að raunveruleika og ein
landshlutasamtök starfandi á
þessusvæði.
Kjartan Jóhánnsson alþ.maður
taldi m.a. að umferðamál höfuð-
borgarsvæðisins yrðu algjör
vandræði í framtíðinni og taldi
útilokað að leysa þau mál öðruvísi
en í fullu samstarfi allra aðila á
svæðinu og taldi Skipulagsstofu
höfuðborgarsvæðisins þar vera
æskilegan vettvang.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
form. Skipulagsnefndar í Rcvkja-
vík taldi nauðsynlegt að tekið væri
föstum tökum á málum S.S.H. og
væri Reykjavíkurborg tilbúin til
þess af fullum hug og heilindum.
Félagsmálaráðherra, Svavar
Gestsson, taldi að efla þyrfti
skipulag á svæðinu og sam-
ræmingu á ýmsum sviðum. Hann
vonaði að samstarf á milli samtak-
anna og ráðuneytis yrði meira og
betra í framtíðinni og óskaði sam-
tökunum gæfu og gengis.
A fundinum fluttu Zóphónías
Pálsson, skipulagsstjóri ríkisins,
Sigurður Guðmundsson, áætl-
anafræðingur, Guðrún Jónsdótt-
ir, forstöðumaður Borgarskipu-
lags og Gestur Ólafsson, for-
stöðumaður Skipulagsstofu höf-
uðborgarsvæðisins erindi um
ýmsá þætti skipulagsmála svæðis-
ins.
*
Hlutfallsleg skipting húsnæðis á höfuðborgarsvæðinu samkvæmt rúmmáli 1981
Kjalarnes Mosfellssveit Reykjavík Seltjarnarn. Kópavogur Garðabær Bessastaðahr. Hafnarfjörður
íbúðarhús
og bflskúrar 18.64 52.54 56.53 83.00 67.40 85.78 68.10 49.61
íbúðarhúsá jörðum 22.72 5.42 0.00 0.00 0.00 0.37 8.68 0.08
Verzlunarog Skrifstofuhúsnæði 0.00 1.88 9.70 0.66 4.13 0.69 0.00 3.65
Iðnaðarhúsnæði 0.00 13.70 11.25 7.34 18.97 7.91 1.40 17.97
Vörugeymslur 0.43 1.60 7.60 3.10 1.00 0.64 0.00 2.12
Sérhæfðar byggingar 19.29 13.10 13.90 5.41 5.10 3.53 3.51 24.31
Sumarbústaðir 3.05 3.41 0.00 0.01 0.80 0.04 0.37 0.18
Útihús á jörðum •35.30 7.64 0.00 0.00 0.00 0.87 15.94 0.08
Ön.iurmannvirki 0.57 1.41 1.02 0.48 2.60 0.17 2.00 2.00
100.00% 100.00% 100.00% 100.00% 100.00% 100.00% 100.00% 100.00%
Heimild:
Fasteignamat ríkisins