Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.04.1984, Page 26
26
SKIPULAGSMÁL HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS
heimsins sér stað. Á nokkrum ára-
tugum hefur aðalatvinnan í Silicon
Valley, milli Palo Alto og San José,
breyst frá sölu á helmingi allra
þurrkaðra ferskja í heiminum yfir í
sölu á fimmtungi allra rafeindarása.
Úm 1970 fór iðnaðurinn fram úr
landbúnaðinum sem mikilvægasta
atvinnugreinin í Santa Clara
County. Núna starfa nokkur hundr-
uð þúsund manns í dalnum í háþró-
uðum iðnaðarfyrirtækjum. Upphaf-
ið að Kísildalsævintýrinu má rekja
til “Shockley Semiconductor
Laboratory" sem Nóbelsverðlauna-
hafinn William Shockley stofnaði,
en hann var annar uppfinninga-
manna “transistorsins" eða smár-
ans eins og hann er nefndur á ís-
lensku.
Talið er, að þróunin í Kísildalnum
hefði ekki getað átt sér stað án
stuðnings háskóla og tæknimennt-
aðra starfsmanna frá nærliggjandi
háskólum eins og Stanford, San
José State, Santa Clara og Kali-
forníuháskóla í Berkeley. Stanford-
háskóli átti stór landsvæði í Palo
Aalto sem byrjað var að leigja út til
iðnaðarfyrirtækja þegar eftir seinni
heimsstyrjöldina.
Eftirfarandi atriði eru talin mikil-
væg í sambandi við iðnaðarþróun-
ina í Kísildalnum:
1) Eftir að transistorinn hafði verið
uppgötvaður við AT & T Bell rann-
sóknastofnunina 1948, þá fengu
fjölmargir aðilar framleiðsluleyfi á
transistorum.
2) Þróun hálfleiðaraiðnaðarins og
rafeindatækjaiðnaðarins í Banda-
ríkjunum byggist upp að verulegu
leyti vegna áhuga bandarískra
stjórnvalda á honum og stuðnings
þeirra við hann í seinni heimsstyrj-
öldinni.
3) í sambandi við tækjabúnað til
hernaðar þá skiptir kostnaðarhliðin
yfirleitt litlu máli; það er rekstrar-
öryggi og nýir möguleikar tækjanna
sem skipta öllu máli. Þetta getur
gefið mörgum fyrirtækjum á þessu
sviði möguleika á nýjum markaðs
vörum án verulegra útgjalda til
markaðsaðgerða.
4) Hin öra þróun á sviði rafeinda-
iðnaðarins gerði það auðvelt að
stofna ný fyrirtæki.
5) Innkaupaaðilar hersins óskuðu
yfirleitt eftir minnst tveimur fram-
leiðslufyrirtækjum á nýjum búnaði
þannig að upplýsingar um nýjungar
dreifðust mjög fljótt milli fyrir-
tækja.
6) Þróun hergagnaiðnaðar í Kali-
forníu í seinni heimsstyrjöldinni var
m.a. sú að flugvélaiðnaðurinn flutti
til Kaliforníu til að njóta góðs af
veðursældinni í sambandi við
reynsluflug og samsetningu á vélum
utanhúss, t.d. fyrirtækin Litton og
North American Aviation. í þessu
sambandi fékk Stanfordháskóli ver-
ulegar upphæðir frá ríkisstjórninni
til að þróa búnað fyrir herinn.
7) Virkur áhugi Stanford háskóla á
þessum málum kom fram í því m.a.
að stofna Stanford Research Instit-
ute til að efla háþróaðan fólksfrek-
an iðnað í því skyni að skapa ný
atvinnutækifæri til að vega upp á
móti fækkun atvinnutækifæra í
landbúnaði.
8) Kalda stríði, Kóreustyrjöldin og
þróun á eldflaugum og gervitungl-
um meðstuðningi opinberra aðila
til þróunar á rafeindahlutum, og
meðöruggan markað fyrir þá.
9) Fjölmörg starfandi rafeindafyrir-
tæki fluttu á árunum 1940 - 1960
starfsemi sína til Santa Clara fylkis-
ins til að vera sem næst hergagna-
iðnaðinum, t.d. Fairchild, General
Electric, Westinghouse, o.fl. Þá
fluttu nokkur stórfyrirtæki rann-
sóknastarfsemi sína þangað, eins og
Loockheed til Stanford Industrial
Park 1956 og IBM til San José
1952.
10) Stanfordvísindahverfið sem
varð vísindalegt iðnaðarhverfi um
1950, var eitt fyrsta hverfi sinnar
tegundar. Aðeins fyrirtæki á sviði
háþróaðs iðnaðar fengu aðstöðu í
þessu hverfi.
11) í San Fransisco, fjármálaborg
vestursins, var auðvelt að fá
áhættufjármagn.
12) Kaliforníuháskóli í Berkeley og
Stanfordháskóli menntuðu í byrjun
sjötta áratugsins helmingi fleiri
doktora á sviði rafeindatækni held-
ur en MIT. Þar sem flest hálfleið-
arafyrirtæki voru sett á stofn af há-
skóladoktorum sem höfðu áður
unnið í stórfyrirtækjum, þá gaf það
Kísildalnum forskot fram yfir vís-
inda- og iðnaðarsvæðið í Boston.
13) Fjöldi hámenntaðra rafeinda-
verkfræðinga á svæðinu gerði smá-
fyrirtækjum auðvelt að fá vel-
menntaða starfsmenn. Hin nána og
virka samvinna Stanfordháskóla
við rafeindaiðnaðinn hafði mikla
þýðingu fyrir lítil og miðlungsstór
fyrirtæki sem ekki höfðu tök á að
mennta starfslið sitf.
14) í byrjun rafeindaiðnaðarins
keyptu opinberir aðilar um helming
allra rafeindarása. Flug- og eld-
flaugaiðnaðurinn var umtalsverður
í Kaliforníu. Nálægðin við þessa
mikilvægu viðskiptavini hafði mikil
áhrif á þróun rafeindafyrirtækja í
Kísildalnum, eftir því sem rafeinda-
tækin og tölvukerfin urðu flóknari.
Um 1960 þá var hlutur rafeinda-
búnaðar um 15-20% af kostnaðin-
um fyrir flugvélar og um 30% af
kostnaði eldflauga.
í “Silicon Valley“ eru núna fjöl-
mörg þekkt fyrirtæki á sviði raf-
einda- og tölvutækni. Þá eru núna
að vaxa upp ýmiss fyrirtæki í ná-
lægð San Fransisco á sviði líftækni,
eins og GENETECH og CETUS.
ROUTE 128, BOSTON
í Massachusetts og Boston hefur
háþróaður iðnaður byggst upp svip-
að og í “Silicon Valley“.
Fyrir um þrjátíu árum komu upp
mikil vandamál í iðnaði í Massa-
chusetts og atvinnutækifærum
fækkaði vegna minnkandi vefnað-
ariðnaðar. Með því að styðja vel
við ný fyrirtæki sem komu fram
með áhugaverðar vöruhugmyndir í
háþróuðum iðnaði og með góðri
samvinnu milli atvinnulífs og MIT-
háskólans, þá tókst stjórnvöldum í
Massachusetts að snúa þróuninni
við.
Þekktustu tölvufyrirtækin í Massa-
chusetts eru: