AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1993, Blaðsíða 70
MARSTAR flotaeftirlitskerfi. Tilraunaverkefni í Chile, hönnun Fang hf.
MARSTAR FTS SAMSKIPTA- OG FLOTASTAÐSETN-
INGARKERFIÐ
Hugmynd Fangs hf. er að geta boðið heildarlausn á
samskiptum við veiðiskip. Slíka samræmingaraðila vantar
á markaðinn í dag þar sem kaupendur þurfa í flestum
tilfellum að raða saman búnaði frá mörgum framleiðendum
sem passar misvel saman. Marstar samskipta- og
flotaeftirlitskerfið kemur í endanlegri mynd til með að
samanstanda af hugbúnaði um borð í veiðiskipum til
samskipta gegnum Inmarsat C MES og samskiptabúnaði
í landi sem tekur við og sendir gögn til/frá LES gegnum
almenna símakerfið. Mikið er til þess vinnandi að bjóða
upp á hugbúnað í báðum endum þar sem með því að þjappa
gögnum í sendingu og pakka upp við móttöku og setja upp
stöðluð eyðublöð í tölvu til útfyllingar t.d. á veiði- og
framleiðslu- og viðhaldsskýrslum, þar sem aðeins eru
sendar breytur, má spara allt að helmingi samskipta-
kostnaðar. Auk þess er með því móti hægt að einfalda og
létta mjög vinnu notandans við kerfið, sem er mikilvægt
um borð í veiðiskipi þar sem lítil hefð er fyrir nákvæmri
skýrslugerð.
MARSTAR SAMSKIPTAHUGBÚNAÐUR UM BORÐ
Unnin hefur verið frumgerð að slíkum hugbúnaði í Win-
dows til notkunar um borð í veiðiskipum. Sá búnaður er
enn ekki kominn á framleiðslustig. Helstu kostir slfks
búnaðar eru að staðla notendaviðmót óháð því frá hvaða
framleiðanda MES tækin eru. Auk þess er tengdur venslaður
gagnagrunnur við samskiptabúnaðinn um borð sem gefur
færi á að skrá þar upplýsingar um t.d. veiði og vinnslu um
borð, annaðhvort sjálfvirkt eða handvirkt. Auðvelt á að
vera að laga upplýsingakerfið að þörfum einstakra not-
enda eða tengja það öðrum hugbúnaði um borð. Að síð-
ustu er samþjöppun og upppökkun gagna mikilvæg til að
spara samskiptakostnað.
MARSTAR FTS FLOTASTAÐSETNINGARKERFI
Staðsetningarkerfi til eftirlits með farartækjum, t.d.
veiðiskipum. Farartæki búin Inmarsat C samskiptabúnaði
senda sjálfvirkt með ákveðnu millibili skeyti um stað-
setningu, hraða og stefnu skipsins gegnum Inmarsat C
gervihnött til jarðstöðvar og þaðan gegnum almenna
gagnanetið til landstöðvar. Kostnaður við sendingu hvers
staðsetningarskeytis er um 10 Bandaríkjadalir.
í landi sér Marstar FTS flotastaðsetningarkerfið um
móttöku og úrvinnslu gagnanna. FTS kerfið samanstendur
í grófustu mynd af þremur hugbúnaðareiningum:
Samskiptaeiningu sem sérum öll samskipti viðjarðstöð,
flokkar og raðar og merkir innkomin gögn og leggur niður
í gagnagrunn til geymslu og frekari úrvinnslu auk þess að
sjá um sendingu gagna frá FTS kerfinu til skipa.
Vensluðum gagnagrunni þar sem öll gögn eru flokkuð
og geymd ásamt gögnum sem fengin eru frá öðrum
stöðum, t.d. skipaskrá, tölvusjókort, upplýsingar um
kvótaréttindi skips eða lokuð veiðisvæði.
Grafískum notandahluta, sem birtirog vinnurgögnupp
úr gagnagrunninum og birtir niðurstöður á skjá. Frá grafíska
notendahlutanum er hægt að stýra ákveðnum hlutum MES
68