AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1993, Síða 85
að nyrðri hluta torgsins, þar sem yfirbyggð súlnagöng standa og
veita skjól fyrir veðri og vindum. Þar verða veitingaskálarnir
Hlöllabátar og Dairy Queen.
Framan við súlnagöngin er svið, sem nýtist fyrir útifundi og
samkomur af ýmsu tagi. Við sviðið eru tengingarfyrir hljóðkerfi
borgarinnar, raflagnir og fullkomið ljósakerfi. Við mjög stórar
uppákomur, þegar alls torgsins og nærliggjandi gatna er þörf, er
gert ráð fyrir að svið verði sett upp við suðurenda torgsins, enda
gert ráð fyrir tengingum fyrir hljóð- og myndkerfi á mörgum
stöðum á torginu.
Til að mynda tengingu milli beggja torghlutanna og opna fyrir
Fálkahúsið, er rof myndað í súlnagöngin, og mótuð rauð granítlína
eftir endilöngu torginu sem rís sem göngubraut þvert á tröppurnar
og liggur síðan í gegnum súlnagöngin inn á nyrðri hlutann. Þessi
lögn leiðir að gosbrunni staðsettum á miðju efra torginu, sem
Fálkahús, Geysishús og veitingaskálar sameinast um.
Við báðar hliðar skábrautar eru niðurfelldar tröppur er vatn
fossar um. Vatnið rennur niður tröppumar og endar í vatnsfleti
á torginu.
Til að afmarka torgið og mynda skjól fyrir veðri og umferð eru
hlaðnir veggir meðfram Aðalstræti og Veltusundi. Bekkir em
felldir inn í veggina torgmegin, en götumegin verða stórir hlynir,
sem veita enn betra skjól gegn umferð og vindum. Innfelld
lýsing verður í veggjunum beggja vegna. Gólf torgsins er lagt
finnsku graníti í grábrúnum lit og veggir eru hlaðnir úr íslensku
grágrýti. Sviðið og súlnagöng em klædd grágrænu graníti. Á
torginu standa tveir háir stuðlabergsstólpar úr íslensku blágrýti.
Við steinstólpana tengjast stálrör, sem gufuslæður líða upp úr.
Þetta er skírskotun til öndvegissúlna Ingólfs og nafnargift
Reykjavíkur.
Veigamikill þáttur í hönnun torgsins er að styrkja þá tengingu,
sem þegar er byrjað á frá Ráðhúsinu út að höfn. Gert er ráð fyrir
að byggt verði í skarðið vestan Hótel Víkur og í gegnum það hús
verði göngugata með verslunum til beggja handa. Einnig er gert
ráð fyrir að færa gamla bryggjuhúsið (Álafoss) í upprunalega
mynd með porti í gegn, sem áður fyrr var hlið inn í bæinn.
Umfangsmiklar breytingar verða á bílaumferð í samræmi við
gildandi deiliskipulag Kvosarinnar. Austurstræti verður opið
fyrir seytlandi umferð, en í staðinn fyrir að tengjast Aðalstræti,
beygir umferðin til hægri inn í V eltusund og þaðan aftur til hægri
til austurs eftir Hafnarstræti. Aðalstræti verður opið strætis-
vögnum og leigubflum í báðar áttir, og einkabílum frá suðri til
norðurs. Hugsunin er sú að almenningssamgöngur hafi forgang.
Bílastæði verða við Veltusund og Aðalstræti.
Þegar framkvæmdum lýkur í nóvember n.k. verður torgið ekki
komið í sína endanlegu mynd. Ákveðið hefur verið að ljúka
frágangi í Aðalstræti og nyrsta hluta torgsins fyrir 17. júní á
næsta ári.
Með þessum framkvæmdum, ásamt þeim, sem nú þegar hafa
verið gerðar, vonast arkitektamir til að miðborg Reykjavíkur
megi á ný verða stolt borgarbúa og fá það aðdráttarafl sem hún
áskilið. ■
83