Skessuhorn - 02.11.2022, Page 12
MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 202212
Öll börn í elstu árgöngum leik-
skólanna í Borgarbyggð fengu
síðastliðinn mánudag, með sam-
hentu átaki allra leikskólanna,
tækifæri til að sjá og taka þátt í
draumkenndu sýningunni Bárur.
Sýningin er hluti af Óperu-
dögum 2022. Fyrri sýningin fór
fram í hlýlegum sal á Hnoðrabóli
á Kleppjárnsreykjum og þangað
komu börn frá Andabæ og Hraun-
borg. Seinni sýningin var haldin í
nýuppgerðu Óðali í Borgarnesi
og þangað komu börn frá Kletta-
borg og Uglukletti. Börnin stóðu
sig með mikilli prýði, voru opin,
glöð og þátttökufús, segir í frétt á
heimasíðu Borgarbyggðar.
Niður sjávar og vatns er aðal
þema þessa verks en norræn goða-
fræði svífur einnig yfir vötnum.
Sagan var sögð af tónskáldinu,
Svöfu Þórhallsdóttur, sem söng
og stýrði þátttöku barnanna. Hún
leiddi börnin í ævintýraheim og
notaði viðburði í sögunni til að
skapa aðstæður þar sem börnin
fengu að taka þátt. Með Svöfu
komu fram Eyjólfur Eyjólfsson sem
lék á langspil, Julie Holmegaard
Schade sem lék á harmonikku og
Julius Ditlevsen flautuleikari.
vaks
Í byrjun vikunnar var unnið við
að lesta brotamálm frá Málmu um
borð í Nordford í Akraneshöfn.
Alls munu þetta verða um 2.300
tonn sem fara til endurvinnslu í
Belgíu. Í þessum farmi verða m.a.
bílhræin sem urðu brunanum að
bráð á endurvinnslusvæðinu við
Höfðasel í vikunni sem leið.
mm/ Ljósm. gsv
Reynir Hauksson, flamenco gítar-
leikari, heldur tónleika á Gamla
Kaupfélaginu á Akranesi föstu-
daginn 4. nóvember kl. 21. Reynir
heldur tónleikana ásamt Jeronimo
Maya gítarleikara, Einari Scheving
trommuleikara, Daniel Caballero
dansara og Miguel Jimenez söngv-
ara. „Við erum flamenco hljómsveit
sem samanstendur af Íslendingum
og Spánverjum. Þetta eru strákar
sem ég kynntist úti á Spáni en ég
átti heima þar í mörg ár. Þeir eru
að koma til Íslands í annað skiptið
núna,“ segir Reynir í samtali við
Skessuhorns.
Hafði aldrei séð jafn
magnaðan gítarleik
Hljómsveitin hefur áður haldið
sýningu á Hvanneyri. „Ég kynn-
ist gítarleikaranum í Granada þar
sem ég átti fyrst heima á Spáni,
hann er búsettur í Madrid en kom
til Granada til að spila. Ég sá hann
spila á tónleikum og hafði aldrei
séð eins magnaðan gítarleik. Við
urðum góðir vinir og fórum að
spila reglulega saman þegar hann
kom til Granada. Svo flutti ég til
Madrid í fyrra og við spilum enn
meira saman núna. Ég kynnist svo
söngvaranum og dansaranum í
gegnum hann. Þeir komu allir til
Íslands í júní til að spila, þá héldum
við flamenco sýningar í Reykjavík
og á Hvanneyri og bjuggum okkur
bara til tilefni,“ segir Reynir.
Lærir ekki
flamenco í skóla
Reynir segir mikla kúnst að ná
góðu valdi á flamenco tónlist. „Ég
flutti fyrst til Spánar árið 2016 til að
stúdera flamenco en ef maður vill
læra flamenco verður maður að fara
til Spánar til að upplifa þetta með
fólki sem lifist og hrærist í þessu.
Það er svolítið öðruvísi snið á fla-
menco námi en það er minna um
skóla og meira þannig að þú finnur
bara gítarleikara til að kenna þér.
Það er mikilvægt hvernig maður
spilar, ekki bara hvað maður spilar.
Maður þarf að læra réttu hand-
tökin en svo er líka ákveðin ásetn-
ingur í túlkuninni sem gerir fla-
menco tónlist alvöru. Þetta er eins
og sér hreimur á tungumáli, ef þú
lærir þetta ekki af Spánverjunum þá
hljómar þú eins og útlendingur en
það er mikill og þykkur karakter í
flamenco og hann verður að koma
fram.“
Búa til íslenskt
flamenco
Hljómsveitin hefur útsett þekkt
íslensk lög í flamenco stíl. „Þetta
eru í raun tónleikar og sýn-
ing. Þetta er mjög fjölbreytt og
skemmtilegt prógram, við tökum
hefðbundna flamenco dansa og svo
spilum við eigin tónsmíðar, sem
ég og gítarleikarinn höfum samið
saman. Við fáum svo alveg nýjan
vinkil þegar við blöndum saman
íslenskum lögum við flamenco,
spilum sem sagt íslensk lög í fla-
menco stíl, það alveg svínvirkar.
Flamenco er í raun regnhlífar-
hugtak yfir marga tónlistarstíla
sem eiga uppruna í Andalúsíu á
Suður-Spáni. Við erum svo að
bæta inn nýjum stíl, íslensku fla-
menco. Við notum íslensk þjóð-
og dægurlög, svona sönglög sem
við þekkjum. Við tókum t.d. upp
okkar útgáfu af Vísum Vatnsenda-
-Rósu og gerðum tónlistarmynd-
band við það í vor. Þetta er vel
heppnað prógram hjá okkur og
tónlistarmennirnir sem ég spila
með eru þeir allra færustu í brans-
anum. Þannig það er gaman að
þeir vilji koma til Íslands og spila
með Íslendingi.“
Reynir hljómar óviss þegar hann
er spurður hvort hann sé fluttur
heim til Íslands. „Ég kom til Íslands
í júní og er a.m.k. ennþá ófarinn,
enginn veit sína ævi fyrr en öll er.
Spánn er ekkert búið dæmi hjá mér,
alls ekki en ég var farin að sakna
þess að vera meira á Íslandi. Það
voru líka farin að safnast upp fullt
af tónlistarverkefnum sem ég þurfti
að sinna hér heima. Þannig ég verð
hér allavega út árið,“ segir Reynir
að lokum.
sþ/ Ljósm. Kolla Jóns.
Stáli og
brunnum
bílhræjum
skipað út
Barnaóperusýning fyrir
leikskólabörn í Borgarbyggð
Julius, Svafa, Julie og Eyjólfur. Ljósm. borgarbyggd.is
Þykkur karakter í flamenco tónlist
Þessir fimm knáu flamenco tónlistarmenn halda sýningu og tónleika á Gamla
Kaupfélaginu á föstudaginn.
Flamenco gítarleikararnir Reynir Hauksson og Jeronimo Maya en þeir kynntust í Granada á Spáni.