Skessuhorn - 02.11.2022, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 2022 13
Alþjóðlega kvikmyndahátíðin
Northern Wave Film Festival
verður haldin hátíðleg í fjórtánda
skipti á Snæfellsnesi helgina 11.-13.
nóvember næstkomandi. Sýndar
verða stuttmyndir hvaðanæva að úr
heiminum auk íslenskra tónlistar-
myndbanda. Nú má finna dagskrá
hátíðarinnar á vefsíðu hennar. Sýn-
ingarnar fara fram í Frystiklefanum
á Rifi annarsvegar og í sundlauginni
í Ólafsvík hinsvegar. Einnig verða
viðtöl tekin við valda leikstjóra eftir
sýningar og boðið verður upp á
„masterclassa“ með Einari Snorra
kvikmyndagerðarmanni.
Í tengslum við hátíðina verður
haldin tveggja daga vinnustofa fyrir
norrænar kvikmyndagerðarkonur,
21 talsins. Löndin sem taka þátt eru
Grænland, Færeyjar, Ísland, Sví-
þjóð, Noregur, Danmörk og Finn-
land og eru tveir þátttakendur frá
hverju landi og einn leiðbeinandi.
Verkefnið gengur út á að fagkonur
leiðbeina þátttakendum að taka sín
fyrstu skref í kvikmyndagerð og
styrkja tengslanetið. Að auki verður
boðið upp á sérstaka dagskrá fyrir
börn þar sem barnamyndir verða
sýndar í sundlauginni, stuttmynda-
námskeið haldið með Þóreyju
Mjallhvíti og hægt verður að
föndra sín eigin kvikmyndaplaköt
alla helgina.
Ekki verður rukkað inn á við-
burði hátíðarinnar, en greiða þarf
hefðbundið gjald í sundlaugina.
Loks er minnt á tónleika Emmsjé
Gauta sem einnig verða í Frysti-
klefanum á laugardagskvöldinu.
Dagskrá hátíðarinnar og nánar um
Norrænar stelpur skjóta má finna á:
https://northernwavefestival.com/
mm
Kennsluaðferðir FSN eru verkefnamiðaðar og námsmatið leiðsagnarmat og því eru
ekki lokapróf í annarlok.
Allar frekari upplýsingar fást hjá námsráðgjafa agnes@fsn.is og aðstoðarskólameistara
solrun@fsn.is og í síma 4308400.
Hrafnhildur Hallvarðsdóttir, skólameistari Fjölbrautaskóla Snæfellinga
hrafnhildur@fsn.is
Dagskóli
Innritun fyrir nám í dagskóla á vorönn
2023 fer fram rafrænt á menntagatt.is
dagana 1. - 30. nóvember.
Fjarnám
„Fjarnám“
Stúdentsbrautir:
• Félags- og hugvísindabraut
• Náttúru- og raunvísindabraut
• Nýsköpunar- og frumkvöðlabraut
• Opin braut til stúdentsprófs
• íþróttabraut
Framhaldsskólabrautir
• Framhaldsskólabraut 1
• Framhaldsskólabraut 2
Starfsbraut
Innritun á vorönn 2023
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
2
Styttist í kvikmyndahátíðina Northern Wave Film festival
Ólafur Darri Ólafsson var heiðursgestur á hátíðinni í fyrra. Dögg Mósesdóttir stýrði verðlaunaafhendingu á síðasta ári.
Í þessum lið leggjum við fyrir tíu
spurningar til íþróttamanna úr
alls konar íþróttum á öllum aldri
á Vesturlandi. Íþróttamaður vik-
unnar að þessu sinni er Stefanía
Klara frá Rifi sem stundar crossfit.
Nafn: Stefanía Klara Jóhanns-
dóttir
Fjölskylduhagir? Ég bý hjá for-
eldrum mínum og ég á eina eldri
systur og tvo yngri bræður.
Hver eru þín helstu áhugamál?
Mín helstu áhugamál eru tónlist,
crossfit og sund.
Hvernig er venjulegur dagur
hjá þér um þessar mundir?
Vakna klukkan hálf sex og fer í
crossfit klukkan sex. Síðan fer ég í
skólann og eftir það annað hvort
á trompetæfingu eða að þjálfa
sund.
Hverjir eru þínir helstu kostir
og gallar? Mínir helstu kostir eru
að ég er bjartsýn og samvisku-
söm. Mínir helstu gallar er að ég
ofhugsa mikið og er gleymin.
Hversu oft æfir þú í viku? Ég
æfi þrisvar til fjórum sinnum á
viku.
Hver er þín fyrirmynd í
íþróttum? Fyrirmyndirnar mínar
í íþróttum eru kennararnir sem
mæta í sex tíma með mér.
Af hverju valdir þú crossfit?
Ég valdi crossfit af því að það var
ekkert annað í boði nema fótbolti
og mér fannst seint að byrja í fót-
bolta í 8. bekk.
Hver er fyndnastur af þeim
sem þú þekkir? Pabbi minn er
fyndnastur af þeim sem ég þekki.
Hvað er skemmtilegast og
leiðinlegast við þína íþrótt? Það
sem mér finnst skemmtilegast við
crossfit er að lyfta og æfingarnar
en það leiðinlegasta eru harð-
sperrurnar.
Leiðinlegastar eru
harðsperrurnar
Íþróttamaður vikunnar