Skessuhorn - 02.11.2022, Side 16
MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 202216
Frá bænum Einarsnesi í Borgar-
firði kemur stór systkinahópur en
öll búa þau yfir náðargáfu tónlist-
arinnar. Soffía Björg Óðinsdóttir
er ein þessara átta systkina en hún
starfar í dag sem tónlistarkona.
Soffía hefur komið fram á tónlist-
arhátíðum víða um heim og gefið
út mikið af eigin efni. Nýverið
samdi hún einnig tónlist fyrir leik-
sýningu. Blaðamaður hitti Soffíu
Björg yfir kaffibolla á Kaffi Kyrrð
í Borgarnesi og í notalegu and-
rúmslofti kaffihússins var forvitn-
ast um vegferð hennar í tónlistinni.
„Ég er rosalega mikið náttúrubarn
en ég bý í Einarsnesi hjá foreldrum
mínum til að vinna að tónlistinni.
Ég á sjö systkini en aðeins sex á
lífi. Við höfum öll eitthvað verið
í tónlist en misjafnt hversu mikið
kannski,“ segir Soffía en bróðir
hennar, Jón, féll fyrir eigin hendi
fyrir nokkrum árum. Hann var
fær gítarleikari og kenndi Soffíu á
gítar þegar hún var 25 ára. Gítarinn
fylgir Soffíu nú í hverri framkomu.
Fannst röddin
passa í blús
Soffía byrjaði seint að syngja en hún
var um tvítugt þegar hún fór að læra
söng. Hún tók nokkur ár í að finna
í hvernig tónlist röddin ætti heima.
„Ég var svolítið stressaður krakki
og var frekar mikið inn í mér sem
barn. Ég man t.d. eftir augnabliki
í menntaskóla þar sem ég horfði á
krakka keppa í söngkeppni en ég
sat úti í sal með hjartað í buxunum
fyrir þeirra hönd og ég þekkti jafn-
vel ekki krakkana. Þannig að það
var stór stund í mínu lífi þegar ég
byrja svo í söngnámi 19 ára. Þá fer
ég í Söngskólann í Reykjavík undir
leiðsögn Dagrúnar Hjartardóttur í
klassísku söngnámi. Þar var ég í eitt
og hálft ár en ég fann að þetta var
ekki mín leið, ég var alltaf að reyna
of mikið með röddinni og reyna
að senda hana eitthvert sem hún
átti ekki að fara. Mér leið bara ekki
vel með það þannig að ég skipti og
fór yfir í FÍH. Þar fílaði ég mig í
blús stílnum, röddin mín lá vel þar.
Mér fannst ekkert æðislegt samt að
syngja jazz því ég var alltaf að flýta
mér svo mikið. Ég var bara ennþá
svo stressuð og gat þess vegna
ekki notið mín í því að vera svona
afslöppuð jazz-díva,“ segir Soffía
um vegferð sína út í tónlistina.
Fékk gítar í jólagjöf
Boltinn fór svo að rúlla hjá Soffíu
og tækifærin byrjuðu að birtast í
tónlistarbransanum. Hún spilaði á
tónlistarhátíðinni Iceland Airwa-
ves aðeins nokkrum mánuðum eftir
að hún byrjaði að læra á gítar. „Ég
fékk svo gítar í jólagjöf 2010 en ég
fann alltaf að mig vantaði hljóðfæri.
Ég nennti ekki píanói, ég hafði lært
á það í svona korter sem krakki og
fílaði það ekki af því ég kunni ekki
að lesa nótur, mér fannst það erfitt
og finnst það ennþá erfitt í dag. Jón
bróðir minn heitinn kenndi mér
fyrstu vinnukonugripin og eftir það
byrjuðu lögin bara að flæða út úr
mér. Þetta var fyrsta tólið sem gaf
mér leyfi til að tjá mig hindrunar-
laust. Það opnaðist bara á einhverja
flóðgátt, þarna var ég orðin 25 ára.
Árið eftir spilaði ég mitt fyrsta gigg
á Rosenberg, eftir það fór ég að spila
með hópi kvenna sem hét Trúbbat-
rixur, við fórum nokkrar saman að
ferðast aðeins og spila, t.d. á Höfn.
Svo nokkrum mánuðum seinna
spilaði ég á Airwaves, þá bara búin
að spila á gítar í nokkra mánuði
en það var svona mitt start,“ segir
Soffía Björg.
Lagasmíðar gripu
áhugann
Soffía útskrifaðist frá Listahá-
skóla Íslands 2014 en þar lærði hún
klassískar tónsmíðar. „Ég hætti svo
í FÍH. Þetta var á sama tíma og
Jón bróðir deyr, það var bæði það
og þarna var ég komin í snertingu
við lagasmíðar. Ég hef alltaf til-
einkað mér það hugarfar að ef eitt-
hvað kveikir áhuga minn og annað
ekki eins mikið þá má það seinna
bara eiga sig. Þannig að ég byrja
þarna í klassískum tónsmíðum við
Listaháskóla Íslands. Það var svo-
lítið magnaður tími. Ég sæki um
og kemst inn með því að senda ein-
hver mjög einföld demó þar sem ég
hafði bara verið að glamra heima
á gítarinn. Ég fæ alveg frábæran
kennara, Tryggva M. Baldursson,
hann er alveg í klassísku tónlistinni
og ég algjörlega í hina áttina. Við
þurftum þess vegna að finna ein-
hvern sameiginlegan grundvöll til
að hittast og það varð tónskáldið
Ennio Morricone. Við unnum út
frá honum því ég elska allt skrítið,
hans tónheimur er svona „spaghetti
vestra“ sem ég elska. Enda, eins og
þú sérð þá er ég kúreki. Það sagði
einhver við mig að ég hefði verið
kúreki í fyrra lífi, þess vegna klæði
ég mig svona,“ segir Soffía og baðar
út höndum í kögurjakkanum sínum.
„En ég var svo mikill fólkpoppari
og átti rosalega erfitt með að fara
eftir reglum í fræðitímunum. Ég
var oft skömmuð fyrir það en mér
fannst bara miklu fallegra að gera
eitthvað annað. Ég upplifi mig sem
algjöran tossa þarna í tvö ár af því að
ég á erfitt með að lesa nótur og mér
finnst hljómfræði ekki skemmti-
leg. Ég held að uppáhalds áfanginn
minn hafi verið valáfangi sem hét
Gagnrýnin hlustun. Í þeim áfanga
átti maður að setja spurningu við
allt, í staðinn fyrir að láta mata
sig á einhverri fræði. En Listahá-
skólinn er að ala upp sjálfstætt lista-
fólk með sjálfstæða hugsun, maður
þarf að vita hverjar reglurnar eru
en líka læra að brjóta þær og fara út
fyrir kassann. Lokaverkefnið mitt
var svo að útsetja lög eftir sjálfa
mig. Ég var með strengjakvartett,
trommur, bassa, gítar, píanó, tré-
blásturshljóðfæri og svo söng ég.
Þetta var grunnurinn að því sem ég
geri svo í minni tónlist í dag.“
Tónlistarútgáfan
Soffía hefur spilað tónlist sína víða
og m.a. komið fram í Hollandi,
Los Angeles og Póllandi. „Ég gaf
út mína fyrstu sólóplötu 2017 en
fyrir þann tíma hafði ég spilað
með svona bluegrass hljómsveit
og gefið út tvær plötur með þeirri
hljómsveit. Sóló ferillinn fer af stað
fyrir alvöru þegar ég gef út fyrstu
plötuna mína og það gekk bara
rosalega vel. Ég fékk mikla athygli
hér heima og frá erlendum miðlum
og var með frábært band með mér.
Það var breskur pródúsent sem
gerði plötuna, þannig að þetta var
alveg stórt verkefni og mikið lagt
í þetta. Svo í millitíðinni á milli
minna tveggja platna fór ég svolítið
í það að hafa það þægilegt og taka
bara að mér gigg sem mér voru rétt.
Í staðinn fyrir að ég væri að skapa
mér tækifæri og búa til mína stefnu
þá var ég bara í flæði að njóta. Svo
kom Covid og ég átta mig á því að
ég er ekki á þeim stað sem ég vil
vera á. Þó ég sé búin að spila alls-
konar gigg hér heima og erlendis.
Ég var þarna nýkomin t.d. frá Sviss
þar sem ég spilaði á frábærri tón-
listarhátíð. Ég fattaði að ég var ekki
að gera það sem ég átti að vera að
gera. Ég á bara að vera að semja
og skapa, bara alltaf. Það var svo
það sem ég gerði í Covid. Ég sagði
þarna upp hlutastarfinu mínu sem
var kennsla hérna í Tónlistarskóla
Borgarfjarðar. Ég kenndi söng og
vildi allt fyrir þessa krakka gera því
ég sá sjálfa mig í hverjum og einum,
þannig að ég setti allt mitt púður í
kennsluna í stað þess að semja og
skapa,“ segir Soffía hlæjandi. „Ég
fór í algjört hýði í 18 mánuði á
meðan ég vann að plötunni en ég
kenndi sjálfri mér að spila á píanó
á þessum tíma og er platan mest
öll samin á píanó,“ segir Soffía en
hún sá um alla tónlistargerð sjálf
á plötunni sem fékk nafnið The
Company You Keep.
Tónlistin er sagnaform
Soffía leggur mikið upp úr góðum
textum. „Innblásturinn í tónlistinni
er í rauninni eitthvað sem hreyfir
við mér. Oft er það eitthvað sem
maður þarf að vinna úr eins og
gömul sambönd, missir eða ástar-
sorg. Stundum sem ég pepplag til
sjálfs míns ef ég þarf á því að halda.
Svo eru lög eins og Play the game
sem er á síðustu plötunni minni,
það er ekki um mig, það er um allt
sem er í ólagi í heiminum en ég
samdi það í Covid,“ segir Soffía og
hlær. „Þá fór ég að hugsa út í það
hvað margt væri í ólagi í heiminum
og hvað margt í lífinu er óréttlátt
eða skrítið. Yfirleitt hugsa ég um
tónlistina sem skemmtilegt sagna-
form. Ég kann svo vel að meta góða
texta, sögur með flottum setn-
ingum og vel völdum orðum. Eins
og Nick Cave og Joni Mitchell, þau
mála bara einhverja ævintýralega
mynd og þú kemst inn í hana um
hæl,“ segir Soffía upprifin.
Ef ég get gert þetta,
þá get ég gert allt
Soffía hefur samið lög við texta
frá öðrum en hún semur sjálf mest
á ensku. „Ég veit ekki af hverju,
enskan kallar bara meira á mig en
ég nota samt líka íslenskuna. Ég hef
líka samið nokkur lög við texta frá
öðrum. Heyholt er til dæmis lag
sem ég samdi fyrir Hallmar Sig-
urðsson við ljóð hans. Hann var
eiginmaður frænku minnar og
dó úr krabbameini fyrir nokkrum
árum. Hann var mikill listamaður,
þegar hann var orðinn veikur sýnir
hann mér ljóðabrot og spyr hvort
ég hefði áhuga á að semja tón-
„Tónlistin er alltaf í fyrsta sæti“
Tónlistarkonan Soffía Björg byrjaði að syngja um tvítugt en
hefur nú skapað sér nafn víða í tónlistarheiminum
Soffía Björg Óðinsdóttir lærði tónsmíðar í Listaháskóla Íslands og er sjáflærð á píanó og gítar. Ljósm. sþ.
Soffía Björg að semja í sveitinni.