Skessuhorn - 02.11.2022, Qupperneq 20
MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 202220
Setning Vökudaga á Akranesi
fór fram í Tónbergi síðdegis á
fimmtudaginn og fékk bæjarstjór-
inn Sævar Freyr Þráinsson þann
heiður að setja hátíðina. Veittar
voru umhverfisviðurkenningar
og Menningarverðlaun Akraness
afhent, eins og fram kemur í öðrum
fréttum Skessuhorns í dag. Þá
voru tónlistaratriði frá nemendum
Tónlistarskóla Akraness á dagskrá
gestum til skemmtunar.
Að lokinni setningu hófst lista-
gangan þar sem hægt var að kíkja
í heimsókn á vinnustofur ýmissa
listamanna víðs vegar um bæinn.
Blaðamenn og ljósmyndararar
Skessuhorns hafa verið á ferðinni
og fangað stemningu Vökudaga á
síðustu dögum. Lista- og menn-
ingarhátíðin heldur áfram og
stendur fram á næsta sunnudag.
vaks
Vökudagar settir og fjölbreytt
mennningarveisla í gangi
Frá setningu Vökudaga. Ljósm. vaks
Nemendur TOSKA syngja við setningarathöfnina. Ljósm. vaks
Jóhanna Jónsdóttir opnaði í Kirkjuhvoli myndlistarsýninguna
Úr fylgsnum minninganna. Ljósm. ki.
Sýningin Ólík verk Bjarna Þórs var opnuð í galleríi hans
síðastliðinn fimmtudag. Listamaðurinn sjálfur var ekki á
staðnum en eiginkona hans Ásta Salbjörg Alfreðsdóttir tók á
móti gestum. Ljósm. ki.
Eldri hópur úr Skólakór Grundaskóla söng nokkur lög í Kallabakaríi undir stjórn Valgerðar Jónsdóttur. Ljósm. ki.
Þær Kristín Björg, Rebekka Sif, Díana Sjöfn og Sjöfn voru
með upplestur úr bókum sínum á lestrarvöku í Pennanum.
Ljósm. ki.
Margir íbúar flökkuðu milli viðburða og skipulögðu
eigin menningarreisu. Hér eru æskuvinkonurnar Margrét
Gunnarsdóttir, Ásta Ingvarsdóttir og Lísa Valgeirsdóttir.
Ljósm. ki.
Á laugardaginn leiddi Ólafur Páll Gunnarsson listagöngu um Neðri Skagann. Í henni voru nokkur
listaverk á húsveggjum formlega afhent íbúum Akraness. Ljósm. ki.
Í Stúkuhúsinu í Görðum bauð Náttúruminja-
safn Íslands á laugardaginn upp á fræðslu
um jarðfræði, svo sem eldfjöll og jarðskjálfta.
Ljósm. ki.
Síðdegis á föstudaginn var opnuð myndlistarsýn-
ing ýmissa listamanna á Höfða; hjúkrunar- og
dvalarheimili á Akranesi. Boðið var upp á veitingar
við opnun sýningarinnar og var margt um manninn,
bæði íbúar, starfsfólk, listafólkið sjálft og aðrir gestir.
Á meðfylgjandi mynd er Elín Þorvaldsdóttir, Bryndís
Bragadóttir og Guðrún Carstensdóttir. Ljósm. vaks.
Sigurður Mikael Jónsson er einn lista-
mannanna sem sýnir á Höfða.
Ljósm. vaks.
Brynja Jóhannsdóttir sýnir olíumál-
verk á samsýningunni á Höfða.
Ljósm. vaks.