Skessuhorn - 02.11.2022, Page 31
MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 2022 31
Afturelding úr Mosfellsbæ sem
leikur í Lengjudeildinni hefur
samið við Bjart Bjarma Barkarson
til næstu tveggja ára en hann kemur
til félagsins frá Víkingi Ólafsvík.
Bjartur Bjarmi er tvítugur en hann
hefur á ferlinum bæði leikið sem
kant- og miðjumaður. Í sumar var
Bjartur Bjarmi fyrirliði hjá Víkingi
Ólafsvík þar sem hann skoraði átta
mörk í sextán leikjum í 2. deildinni.
Þrátt fyrir ungan aldur á Bjartur
einnig að baki 47 leiki í næstefstu
deild með Ólafsvíkingum sem og
einn leik í efstu deild. Þá á Bjartur
fimm leiki að baki með yngri lands-
liðum Íslands.
„Mér líst mjög vel á verkefnið
og þetta verður spennandi sumar,“
sagði Bjartur eftir undirskriftina, á
FB síðu Aftureldingar. „Það sem
hefur alltaf heillað mig við Aftur-
eldingu er hvað þeir spila vel, halda
í boltann og taka völdin í leikjum.“
vaks
Knattspyrnufélag ÍA hélt lokahóf
sitt síðasta laugardag þar sem leik-
mönnum félagsins í meistaraflokki
karla og kvenna voru veitt verð-
laun fyrir tímabilið. Í meistara-
flokki kvenna var Bryndís Rún Þór-
ólfsdóttir valin besti leikmaður-
inn og Sunna Rún Sigurðardóttir
valin efnilegust. Karlamegin var
Eyþór Aron Wöhler valinn bestur
og Haukur Andri Haraldsson efni-
legastur.
vaks/ Samsett mynd kfia.
Fjölnir og ÍA mættust á föstu-
dagskvöldið í 1. deild karla í
körfuknattleik og var viðureignin
í Dalhúsum í Grafarvogi. Skaga-
menn byrjuðu af miklum krafti í
leiknum og voru komnir í tólf stiga
forystu eftir rúmar fimm mínútur í
fyrsta leikhluta, 6:18. Fjölnismenn
komu síðan aðeins til baka í seinni
hlutanum og minnkuðu muninn
í sex stig, staðan 16:22 fyrir ÍA.
Um miðjan annan leikhluta hafði
Fjölnir náð að minnka muninn í tvö
stig, 34:36, og þannig hélst staðan
nánast fram að hálfleik, staðan
41:43 ÍA í vil.
Eftir þriggja mínútna leik í þriðja
leikhluta tóku heimamenn öll völd
og skoruðu tólf stig í röð gegn
engu stigi gestanna á aðeins rúmum
tveimur mínútum og staðan allt
í einu 57:51 fyrir Fjölni. Skaga-
menn voru þó snöggir til að jafna
leikinn og staðan hnífjöfn fyrir síð-
asta leikhlutann, 65:65. Baráttan
hélt áfram í fjórða leikhluta, jafnt
nánast á öllum tölum en Skaga-
menn þó með undirtökin og héldu
heimamönnum alltaf aðeins frá
sér. Þegar ein og hálf mínúta var
eftir af leiknum hafði ÍA fjögurra
stiga forskot, 81:85, en Fjölnis-
menn skoruðu næstu fjögur stig og
jafnt þegar Skagamenn tóku leik-
hlé og aðeins fimmtán sekúndur
eftir á klukkunni. Gabriel Ader-
steg var síðan hetja Skagamanna
þegar hann setti niður þriggja stiga
skot á síðustu andartökum leiksins
með flautukörfu og tryggði þeim
glæstan sigur, lokastaðan 85:88
fyrir ÍA og þriðji sigur þeirra í
deildinni staðreynd. ÍA er nú í 4. til
7. sæti í deildinni með sex stig eftir
sex umferðir ásamt Ármanni, Sel-
fossi og Skallagrími.
Lucien Thomas Christofis var
atkvæðamestur hjá ÍA með 30 stig,
Gabriel Adersteg var með 19 stig
og 10 fráköst og Davíð Alexander
Magnússon með 16 stig. Hjá Fjölni
var Kendall Scott með 21 stig og
12 fráköst, Hilmir Arnarson með
19 stig og Karl Ísak Birgisson með
14 stig og 10 fráköst.
Næsti leikur Skagamanna er á
móti Hrunamönnum næsta föstu-
dag á Akranesi og hefst leikurinn
klukkan 19.15.
Það varð ljóst um miðjan laugardag
að Skagamenn voru fallnir úr Bestu
deildinni í knattspyrnu og leika á
næsta ári í Lengjudeildinni eftir að
hafa unnið sigur á FH í Kaplakrika í
Hafnarfirði. ÍA hefur síðustu fjögur
ár leikið í efstu deild en þurfa nú
að sætta sig við fall. Í viðtali eftir
leik sagði Jón Þór Hauksson þjálf-
ari Skagamanna að framtíðin væri
björt, nú yrði mikil ábyrgð lögð
á þessa stráka og gríðarleg vinna
framundan. „Nú verður skoðuð
saga félagsins, þetta er ákveðið
mynstur sem er að endurtaka sig og
þá er bara að byrja þessa vinnu.“
En þá að leiknum. Fyrri hálfleikur-
inn var mjög jafn og fyrsta alvöru
færi leiksins kom eftir rúman
korters leik þegar FH-ingurinn
Úlfur Ágúst Björnsson fékk dauða-
færi í teignum en skot hans fór
rétt framhjá. ÍA fékk skyndisókn
á 40. mínútu þegar Gísli Laxdal
Unnarsson fékk boltann í teignum
og kláraði snyrtilega færið fram-
hjá markmanni FH. Jöfnunar-
mark heimamanna kom síðan rétt
fyrir hálfleik þegar Oliver Heiðars-
son átti fyrirgjöf inn á teig þar sem
Úlfur Ágúst lúrði og kom bolt-
anum í markið, hálfleikstölur 1-1.
Í seinni hálfleik voru FH-ingar
sem höfðu tögl og haldir fyrri
hlutann en inn vildi boltinn alls ekki.
Eftir það var leikurinn í jafnvægi og
allt stefndi í jafntefli þar til í upp-
bótatíma. Þá fékk varamaðurinn
Breki Þór Hermannsson boltann rétt
utan teigs og átti hörkuskot að marki
sem markvörður FH varði en boltinn
barst beint fyrir fætur Eyþórs Arons
Wöhler sem potaði boltanum í netið
með síðustu snertingu leiksins. Fyrsti
sigur Skagamanna í Kaplakrika í
meira en 20 ár staðreynd en liðið
vann þar síðast sigur árið 2001 þegar
liðið fagnaði sama ár síðasta Íslands-
meistaratitli.
ÍA lauk tímabilinu í ellefta sæti
deildarinnar með 25 stig eins og
FH en með mun lakari markamun
og féll því í Lengjudeildina. Liðið
vann sex leiki, gerði sjö jafntefli og
tapaði fjórtán leikjum og marka-
talan var 28-66. Markahæstur var
Eyþór Aron með níu mörk, Gísli
Laxdal með fimm mörk og Kaj Leo
Í Bartalstovu með þrjú mörk.
vaks
Skallagrímur tók á móti Hamar í
Fjósinu í Borgarnesi á föstudags-
kvöldið og varð að sætta sig við tap
eftir þrjá sigurleiki í röð í deildinni.
Hamarsmenn komust í tíu stiga
forystu eftir aðeins þriggja mín-
útna leik og heimamenn hálf vank-
aðir í byrjun leiks. Þeir náðu síðan
að girða sig í brók undir lok fyrsta
leikhluta og höfðu náð að minnka
forskot gestanna í fjögur stig, 27:31.
Skallagrímur komst síðan yfir fljót-
lega í öðrum leikhluta en þá sögðu
gestirnir stopp, skoruðu alls tólf
stig í röð og staðan 37:45 Hamar í
vil. Lítið breyttist fram að hálfleik
og 46:54 var staðan á klukkunni
þegar liðin gengu til búningsklefa
til skrafs og ráðagerða.
Illa gekk hjá heimamönnum í
viðleitni þeirra að minnka forskot
gestanna og staðan á svipuðum
nótum um miðjan þriðja leik-
hluta, 54:66. Hamarsmenn héldu
hamrinum á lofti út leikhlutann og
staðan fyrir fjórða og síðasta leik-
hluta ekki góð fyrir heimaliðið,
66:78. Áfram reyndu Skallagríms-
menn að koma sér inn í leikinn en
komust aldrei nálægt að neinu ráði.
Hamar hamraði járnið á meðan það
var heitt allan síðasta leikhlutann
og hitti yfirleitt naglann á höfuðið
og ofan í körfuna einnig, lokatölur
88:101 gestunum í vil.
Keith Jordan Jr. var stigahæstur
í liði Skallagríms með 29 stig og
10 fráköst, Björgvin Hafþór Rík-
harðsson var með 28 stig og Davíð
Guðmundsson með 13 stig. Hjá
Hamar var Jose Aldana með 39
stig og þeir Alfonso Birgir Gomez
og Björn Ásgeir Ásgeirsson með
21 stig hvor.
Næsti leikur Skallagríms í
deildinni er á útivelli gegn taplausu
toppliði Álftaness mánudaginn 7.
nóvember og hefst klukkan 19.15.
vaks
Skallagrímur tapaði á móti Hamar
ÍA vann Fjölni í spennuleik
Skagamenn fallnir eftir sigur á FH
Gísli Laxdal og Eyþór Aron skoruðu mörkin á móti FH.
Ljósm. Lárus Árni Wöhler
Bjartur Bjarmi til
Aftureldingar
Gísli Elvar Halldórsson formaður meistaraflokksráðs, Bjartur Bjarmi og Magnús
Már Einarsson þjálfari Aftureldingar. Ljósm. af FB síðu Aftureldingar
Eyþór Aron og
Bryndís Rún valin best
Skagamenn hafa staðið sig vel í körfunni í vetur. Ljósm. vaks
Björgvin Hafþór var öflugur á móti
Hamar en það dugði ekki til. Ljósm. glh