AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1994, Blaðsíða 64

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1994, Blaðsíða 64
Það kostar tíkall að kíkja! félaginu. Framleiöendur og neytendur verða þá að átta sig á því hvað ákvarðanir þeirra kosta. Vegna þessa hefur OECD lagt til að ástand umhverfis og náttúruauðlinda sé metið við fjárlagagerð hverju sinni. Tvær leiðir eru algengastar til að verðleggja umhverfi og náttúruauðlindir. Sú fyrri byggist á þeirri skoðun að einungis sé hægt að meta umhverfið með tilliti til þeirra nota sem fólk hefur af því og matið eigi því að endurspegla þarfir og óskir fólks. Þessi leið byggist á því að nota gildismat bæði þeirra sem nýta ákveðna náttúruafurð og þeirra sem nýta hana ekki. Við þetta afstæða mat er gerð úrtakskönnun og einstaklingum gert að nefna ákveðna upphæð sem viðkomandi væri tilbúinn að greiðafyrir viðhald náttúruauðlindar eða nefna hvaða upphæð hann væri tilbúinn að þiggja sem skaðabætur fyrir að geta ekki lengur notið umræddrar náttúruauðlindar.Þessi aðferð er umdeild en samt sem áður talin vera með þeim bestu sem völ er á. Hin leiðin til að meta umhverfið byggist á þeirri hug- mynd að umhverfið hafi gildi í sjálfu sér óháð þörfum mannkyns. Umhverfið er þá einungis metið af vist- fræðingum og öðrum sem taldir eru vera í aðstöðu til að meta umhverfið frá hlutlausu sjónarhorni. Þessi nálgun krefst áreiðanlegra vistfræðilegra upplýsinga auk þess sem matið verður að vera „hlutlaust" — en því getur hins vegar reynst erfitt að framfylgja. Við mat á umhverfinu er nauðsynlegt að styðjast við einhvers konar flokkun til þess að kerfisbundinn sam- anburður sé mögulegur. Enn sem komið er, er ekkert samræmi I flokkunaraðferðum. Á meðan svo er, er hætt við að allar tilraunir til að meta og skrásetja um- hverfisþætti verði ómarkvissar. Vegna þess hve aðferðir sem notaðar eru til að meta umhverfið eru ólíkar og gefa mismunandi niðurstöður, hefur verið gagnrýnt að yfirleitt skuli vera reynt að meta umhverf- ið til fjár. Ef mat á umhverfinu verður ekki annað en mat á því sem auðvelt er að mæla, fremur en mat á því sem mikilvægast er, er hætt við að umhverfis- þættir verði vanmetnir við ákvarðanatöku. Vandinn við að meta umhverfið er ekki einungis bundinn við verðlagningu heldur einnig það að skilja og viður- kenna flókið samspil umhverfislegra þátta. Vegna þessa alls kann að vera farsælla að þróa ákveðin viðmið sem notuð væru við ákvarðanatöku, í stað þess að reyna að meta umhverfið til fjár á nær óút- reiknanlegum skala. Þessi viðmið yrðu óhjákvæmi- lega pólitísk. Sem dæmi má nefna að við ákvörðun viðmiða hér á landi yrðu markmið ríkisstjórnarinnar um sjálfbæra þróun höfð til hliðsjónar. Þessi viðmið er síðan hægt að endurskoða en ákjósanlegt væri að þróa þau sem hluta af mati á umhverfisáhrifum. MENGUN OG MÓRALL Þegar tekið er við greiðslu fyrir röskun á umhverfinu er í raun verið að samþykkja röskunina. Þetta er að minnsta kosti álit umhverfissinna sem halda því fram að ef mengun sé á annað borð áhyggjuefni sé ekki hægt að réttlæta hana með greiðslum eða skaða- bótum. Hins vegar hafa umhverfissinnar í raun oft barist gegn umhverfisspjöllum með því að beita hótunum um háar skaðabótakröfur. Greiðslur fyrir umhverfisspjöll snerta jöfnuð milli kyn- slóða. Sem dæmi má taka gamlan mengunarvald sem með nýjum reglum er gert að hefja mengunar- bótagreiðslur. Sá hinn sami mun að öllum líkindum hækka verð á vöru sinni og koma auknum kostnaði þannig áfram yfir á núverandi neytendur eða draga úr umsvifum þannig að laun lækki og atvinna minnki. Fyrri neytendur sem nutu góðs af lægra verði eru hins vegar lausir allra mála. Auk þessa er umdeilanlegt hversu réttlætanlegt er að krefja fyrrum mengunarvald um skaðabótagreiðsl- ur ef hann olli mengun í „fullum rétti" á sínum tíma. Jafnrétti milli svæða tengist einnig umræðunni um 62
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.