AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1995, Qupperneq 60
miklar landbætur. Markmiðið um minnkandi kol-
díoxíðmengum myndi nást.
Verksmiðjan framleiddi etanól, sem er umhverfisvænt
eldsneyti, lífrænt fóður og lífrænan áburð, sem gæti
verið undirstaða fyrir margskonar búskap, lignin sem
hægt væri að nota til brennslu eða/og efnaiðnaðar
og alkaloída sem hægt væri að nota til margvíslegra
þarfa. Verðmætasköpunin yrði nær 100% innlend.
Tölurnar hér eru mjög grófar og gefa því aðeins
hugmynd um hugsanlegar stærðir.
Verksmiðjan yrði alþjóðlega mjög samkeppnishæf
fyrir hið lága hráefnis- og gufuverð. Hið lága hráefnis-
verð stafar af mjög ódýru landi, afköstum og efna-
fræðilegum eiginleikum lúpínunnar. Framleiðslukostn-
aður á gufu er talinn núna í vestrænum iðnaðarríkjum
vera um $ 12/tonnið en um $ 3/tonnið hér.
Sambærilegt hráefni væri t.d. iðnaðarviður en ekkert
prótein fæst úr viðnum til úrvinnslu og er lúpínan
þannig verðmætari hráefnisgjafi. ■
Helstu heimildir:
1. Ýmsar greinar um etanólframleiöslu sendar af Kinetics
Technology International til Ásgeirs Leifssonar.
2. Greinargerö frá Teiti Gunnarssyni, efnaverkfræöingi Áburö-
arverksmiöju ríkisins, um verðgildi áburðar úr þurrefni lúpínu.
3. Sheep Grazing on Lupine under Humid Northern Condi-
tions. Ólafur Guömundsson, Jóhann Pórsson, Anna Guörún
Þórhallsdóttir.
4. Fóöur og fóðrunargildi belgjurta. Ólafur Guðmundsson.
5. Fjölrit Rala nr. 178. „Líffræði Alaskalúpínu (Lupinus noot-
kaensis). Vöxtur, áhrif sláttar, fræmyndun og efnainnihald.
Borgþór Magnússon ritstjóri. Desember 1994.
6. Óbirtgögn. „Uppskera í lúpínubreiöum." BorgþórMagnús-
son. Rala.
Skórækt ríkisins mun á nýju ári opna viðarlager í húsakynnum Landgræðslusjóðs að
Suðurhlíð 38, Reykjavík.
Þar mun handverksmönnum og öðrum bjóðast fjölbreytt úrval íslenskra viðartegunda í
því formi sem hverjum og einum hentar best.
Hjá viðarlagernum verður hægt að fá ýmsar aðrar skógarafurðir s.s. arinvið,
viðarplatta, viðarkol, reykingarflís og göngustígakurl.
SKOGRÆKT
RÍKISINS
58