AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1995, Síða 48
Teikn .göngubrú.
GRIMSBY, ÓÐINSVÉ OG ÁRÓSAR
Við endurskoðun aðalskipulags getur verið gagnlegt
að skoða aðalskipulag annarra borga, ekki síst borga
sem eru af líkri stærð og Reykjavík. Ég hef áður nefnt
borgir í Bretlandi en þar var stefnan mörkuð af ríkis-
stjórninni og gefin út í mars 1994 af Umhverfis- og
samg'* guráðuneytinu og kallast PPG 13 (Planning
Polic\ .uidance: TRANSPORT). Á sama hátt hefur
danska samgönguráðuneytið markað stefnu í um-
ferðarmálum sem sveitarfélögin hafa að leiðarljósi.
(Regeringens transporthandlingsplan for miljo og
udvikling", maí 1990).
í nýlegu aðalskipulagi Árósa hafa áherslur í umferðar-
málum breyst mjög frá árunum eftir stríð. En þá var
aðaláherslan á einkabílinn með tilheyrandi bílastæð-
um, breikkun gatna og niðurfellingu á hjólastígum
og sþorvögnum. Nú hins vegar er lögð áhersla á að
minnka umferð í íbúðahverfum og í miðborginni. Þar
segir jafnframt að lagt skuli mat á öll stærri umferðar-
mannvirki með tilliti til hávaða- og loftmengunar,
öryggis, sjónmengunar og orkunotkunar. Nýjar vega-
framkvæmdir skuli metnar á forsendum umhverfis-
verndar. Talið er sérstaklega mikilvægt að fækka ferð-
um í einkabíl á milli heimilis og vinnu. Til þess er talið
nauðsynlegt að bæta þjónustu almenningsvagna og
við hjólandi umferð. Ávinningurinn verði sá að um-
ferðarhnútar á annatímum jafnist út og það leiðir ein-
faldlega til þess að hægt er að komast hjá byggingu
rándýrra umferðarmannvirkja. Svipuð áhersluatriði
koma fram í nýlegu skipulagi í Óðinsvéum.
í Grimsby í Bretlandi er eitt af markmiðum f umferðar-
kafla aðalskipulags „að hvetja til jafnvægis á milli
bílanotkunar og annarra tegunda umferðar, þar með
taldar almenningssamgöngur, hjólandi og gang-
andi". (Great Grimsby Local Plan. Deposit Version -
1995).
Hægt væri að taka mörg fleiri dæmi en ég læt þetta
duga. Rétt er að taka fram að engum dettur í hug að
hægt sé að flytja inn umferðarskipulag frá öðrum
borgum óbreytt. Takaverður mið af legu borgaí landi,
veðurfari, efnahagsástandi o.fl.
Hér í Reykjavík þarf að Ijúka við umferðarþátt aðal-
skipulagsins og kynna hann rækilega fyrir sem
flestum svo um hann náist sem víðtækust samstaða.
Þá er kominn grundvöllur fyrir framkvæmdum í sam-
ræmi við markmiðin sem bæta ímynd borgarinnar
okkar og umhverfið. Þá verður einfaldlega betra að
búa í borginni.
GÖNGUGATA
Við þurfum að eiga göngugötu í miðborginni, frekar
tvær en eina, og samfelld göngusvæði fyrir fólk sem
vill versla og sækja þjónustu í miðborgina - bætt
umhverfi þar laðar að fleiri viðskiptavini. Þá verður
líka betra að búa í miðbænum. Tryggja þarf að mið-
borgin sé lifandi og þar sé miðstöð verslunar, þjón-
ustu og menningarstarfsemi. Lifandi miðborg.
GÖNGU - OG HJÓLREIÐASTÍGAR - AÐGENGI
FATLAÐRA
Halda þarf áfram að bæta aðstæður hjólandi vegfar-
enda og um leið fatlaðra en á þessu ári er varið hátt
í 30 milljónum króna til margs konar lagfæringa á
stígum og gangstéttum auk lagningar á nýjum stígum
fyrir gangandi, hjólandi og hreyfihamlaða. Samtök
fatlaðra hafa lagt gatnamálastjóra lið við útfærslu á
þessum framkvæmdum. Verið er að opna greiðari
46