AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1998, Side 34
RAGNHILDUR SKARPÉÐINSDÓTTIR, LANDSLAGSARKITEKT
ágúst síöastliönum hittist ööru sinni samstarfs-
hópur, sem skipaður hefur veriö af Evrópu-
bandalaginu, til aö fjalla almennt um borgar-
skógrækt í Evrópu til næstu fimm ára. Verkefni
þetta, sem nefnist á stofnanamáli bandalags-
ins COST ACTION 12 „Urban Forests and
Trees“, má rekja upphaf sitt til áhugasamra
Skandinava viö dönsku rannsóknarmiðstöðina í
skógræktar, og umhverfismálum, sem fannst tími
til komin aö þeirra þekkingu og reynslu sem fyrir-
finnst hjá hinum fjölmörgu geirum þjóöfélagsins
sem starfa að umhverfismálum í hverju landi fyrir
sig, yröi safnað saman eftir mætti í einskonar hug-
mynda- og fræöslubanka. Þannig mætti efla
tengslin milli landanna, skapa ný tækifæri og betri
möguleika til samstarfs í framtíöinni. Um leið
styrktist samkeppnisstaöa Evrópu út á viö, en til
samanburðar má nefna aö Bandaríki Noröur-
Ameríku og Kanada hafa náö töluverðu forskoti í
þessum efnum, enda miklum fjármunum variö í
„markaðsmál umhverfisins".
Undirbúningsfundur verkefnisins var haldinn í
Brussel í september 1997 meö þátttöku 15
Evrópulanda, þar meö talið íslands. Fyrsti vinnu-
fundur fulltrúa landanna var síðan haldinn í
Vínarborg í mars síðastliðnum.
Borgarskógrækt er samvinnuverkefni 20 Evrópuþjóða.
Þessi mynd er tekin á góðri stundu, þegar hópurinn hittist
öðru sinni í Leeds á Englandi í ágúst s.l.
VINNUFUNDIR
Fundurinn í Vínarborg var um margt athyglis-
veröur. Einkum og sér í lagi vegna þess, aö þarna
hittust í fyrsta sinni þeir aöilar, sem starfa eiga
saman næstu árin; menn úr ólíkum áttum meö
mismunandi menntun og bakgrunn. Þarna voru
mættir háskólaprófessorar í vist- og líffræðum;
vísindamenn og kennarar í umhverfismálum;
skógfræöingar og umhverfisstjórar; landslags-
arkitektar, arkitektar og skipulagsfræðingar; blaöa-
menn og ráöuneytismenn umhverfismála; Ijóö-
skáld og kerfiskarlar.
Fulltrúum þátttökulandanna er skipt í þrjá vinnu-
hópa og eru misjafnlega margir frá hverju landi.
Þannig er Grikkland til dæmis meö 6 fulltrúa, en
Frakkland aðeins meö 2 og eiga þar meö ekki, enn
sem komið er, mann í öllum þremur hópunum.
Eins vantar fulltrúa frá ýmsum lykilþjóðum Evrópu,
svo sem frá Póllandi, Eystrasaltslöndunum og
Austur- Evrópu. Veldur þar helst um peningaleysi
heima fyrir og er þaö miður, enda án efa miklar og
merkilegar upplýsingar þar til. Þó svo í upphafi15
þjóöir Evrópu hafi byrjaö þetta samstarf í Brussel
hefur þó bæst í hópinn og voru fulltrúar 20 þjóöa
mættir á annan vinnufundinn sem haldinn var í
Leeds á Englandi, en vinnufundirnir eru haldnir
tvisvar á ári í mismunandi löndum Evrópu.
VINNUHÓPUR 1
tekur á heildaryfirsýninni; hönnun og skipulagi;
landnýtingu og gildismati borgarskógræktar;
stefnumörkun; lögum og reglugerðum; fjárveiting-
um og styrkjum til framkvæmda; pólitískum af-
skiptum; skilgreiningum o.s. frv.
Fulltrúi íslands er Ragnhildur Skarphéöinsdóttir,
landslagsarkitekt.
VINNUHÓPUR 2
hefur öllu þrengra starfssviö. Hér er aöaláhersla
lögö á tegundaval og afbrigöi gróöurs; hvaö hent-
ar best á hvaöa staö; hvernig staðið er aö undir-
búningi; hversu miklu er plantað árlega o.s. frv.
Fulltrúi íslands er Þórarinn E. Benedikz, skógfræö-
ingur hjá Skógrækt ríkisins, Mógilsá, en hann er
jafnframt formaður íslendinga-hópsins og á sæti í
fulltrúaráði COSTACTION 12.