AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1998, Blaðsíða 39
opna svæöiö í miðborg Reykjavíkur, ef frá eru
skildar Tjörnin og Vatnsmýrin. Þær byggingar, sem
standa á holtinu, gefa því vissulega mikinn og
áberandi svip, en Skólavörðuholtið er jafnframt
ómissandi hlekkur í útivistarkeðju borgarinnar og
það gegnir og mikilvægu hlutverki sem athvarf og
leiksvæði fyrir íbúa nærliggjandi hverfa. Og það
hefur sterka sögulega skírskotun, sem byggist á
nálægð þess við helsta sögusvið þjóðarinnar um
ríflega tveggja alda skeið.
í skipulaginu er þess freistað að taka á þeim fjöl-
mörgu þáttum er tengjast umhverfi og starfsemi á
Skólavörðuholti. Meginmarkmiðin eru, í stuttu
máli, eftirfarandi:
I að styrkja sögulega skírskotun og mikilvægi
Skólavörðuholts
I að treysta Skólavörðuholtið sem þungamiðju í
ásýnd og starfsemi miðbæjarins
I að bæta tengsl þess við önnur opin svæði í
miðborginni
I að búa Hallgrímskirkju verðugt umhverfi
I að skapa nýja möguleika til dagvistar, skóla-
starfs, íþrótta og útivistar í hjarta borgarinnar
I að bæta umferð og aðkomu á Skólavörðuholti
I að tryggja öryggi vegfarenda, einkum aldraðra
og skólabarna
I að styrkja götumyndina á svæðinu með nýbygg-
ingum og landmótun
I að setja fram raunhæfa valkosti í húsnæðismál-
um Iðnskólans
I að skapa Listasafni Einars Jónssonar aukið
sýningarsvæði og bætta aðkomu
I að búa ferðamönnum og öðrum gestum aðlað-
andi aðstöðu
í samræmi við hið nýja skipulag hefur umferðar-
kerfi Skólavörðuholtsins verið endurbætt með það
í huga að tryggja betri yfirsýn ökumanna og auka
öryggi gangandi vegfarenda. Þar vegur þyngst á
metum flutningur gatnamóta Eiríksgötu og Njarð-
argötu, en við þann flutning hefur myndast opið
svæði fyrir framan Listasafn Einars Jónssonar,
með gróðri, bekkjum og rúmgóðri aðkomu fyrir
gesti safnsins, sem hæfir vel safnbyggingunni og
nánasta umhverfi hennar. Tilfærsla gatnamótanna
skapar einnig nýtt sjónarhorn fyrir umferð upp
(norður) Njarðargötu og beinir ásýnd vegfarenda
að kirkjunni, en ekki fram hjá henni, sem áður var.
Hallgrímskirkja er og verður þungamiðja Skóla-
vörðuholts. Allar hugmyndir og skipulag á holtinu
hljóta að taka mið af henni og þeirri augljósu þörf
að skapa henni fastan ramma er undirstrikar mik-
ilvægi hennar og sérstöðu.
Með hinu nýja skipulagi hefur Hallgrímskirkju
verið búin hlutlaus en áhrifarík umgjörð í formi
sporöskjulaga torgs, sem situr á austur-vestur ás
kirkjunnar og mun umlykja hana alla, þegar
framkvæmdum verður að fullu lokið. Útlínur spor-
öskjunnar eru annars vegar afmarkaðar með
mynstraðri hellulögn, en hins vegar með röð Ijósa-
súlna er umlykja hana. Ljósasúlurnar eru óbein
lýsing; þunnir geislar en ekki sterk flóðlýsing, sem
eiga formræn tengsl við stuðlabergssúlur í kirkj-
unni sjálfri. Notkun Ijósasúlna frekar en t.d. gróð-
urs til að skapa lóðrétta afmörkun sporöskjunnar
er æskileg, m.a. vegna viðhalds, árstíðarsveiflna
og vindálags.
37