AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1998, Síða 44

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1998, Síða 44
ofan varnargarðs er einnig gert ráð fyrir 13 keilum. Keilurnar eru um 10 m háar. Margar spurningar vakna þegar fekist er á við verkefni af þessari stærðargráðu. Augljóst er að svo stórt mannvirki sem snjóflóðavarnir eru kemur til með að hafa veruleg áhrif á byggðina, ásýnd staðarins mun breytast jafnframt sem mikil röskun verður á gróðri. Fyrir íbúa staðarins getur tilhugsunin um byggingu snjóflóðavarna valdið mismunandi til- finningum. Það að gróinni fjallshlíð verði rutt upp og breytt í „fjall“ rétt ofan við byggðina getur valdið neikvæðum tilfinningum, meðan aðrir upplifa auk- ið öryggi og finnst það vega þyngra en umhverfis- áhrifin. Hins vegar getur mannvirki eins og varnar- garður orðið aðdráttarafl, sem mannvirki í nátt- úrunni. Garðurinn kemur sökum stærðar sinnar til með að verða nýtt kennileiti í byggðinni og mun alltaf vera sýnilegur sökum nálægðar. Þegar horft er til framtíðar og komandi kynslóða er Ijóst að mannvirkið mun verða hluti af ásýnd bæjarins til allrar framtíðar. Yngri kynslóðin mun alast upp með þessa nýju ásýnd staðarins og upplifa varn- armannvirkin sem eðlilegan og sjálfsagðan hluta af bænum. Því er nauðsynlegt að vanda alla vinnu við hönnun og yfirborðsfrágang á svæðinu. 1. Fjárhústótt, „Mangatættur" er á fornleifarskrá. Gert er ráð fyrir opnu svæði, graslendi næst fjár- hústótt. 2. 3. Opið svæði í hlíðum varnargarðs, tengist opnu svæði á Jóns-túni. Möguleiki á sleðabrekku. 4. 5. Gamalt bæjarstæði Þiljuvellir. Bærinn Þilju- vellir fór í snjóflóði 1894. Austan við tótt eru undir- stöður undir brú. Svæðinu umhverfis Þiljuvelli og brú haldið opnu með graslendi. Möguleiki á áning- arstað þar sem vert er að setja upp fróðleiksskilti. 6. 7. Opið svæði í hlíðum varnargarðs. Útsýnis- staður-áningarstaður. 8. 9. Gili við „Dranga“læk haldið opnu. Gil og skorningar eru áberandi einkenni í landslagi í Neskaupstað. 10. 11. Fyrirhugaður íþróttarvöllur, myndar stórt opið rými. 12.13. Opið svæði næst byggðinni. Æfingar- svæði/leiksvæði. 14.15. Snjósöfnunarsvæði. Stærsta opna svæð- ið er það svæði sem myndast ofan við varnar- garðinn og sést aðeins frá fjallshlíðinni. STUTT LÝSING Á SKIPULAGI í tillögunni er svæðið milli byggðar og varnargarðs gert að útivistarsvæði sem tengist núverandi skóg- ræktarsvæði sem og öðrum útivistarmöguleikum á svæðinu. Gert er ráð fyrir að svæðið fái yfirbragð útivistarskógar þar sem trjárækt er skipulögð með það fyrir augum að mynda opin rými og „brjóta" garðinn upp í smærri og fleiri einingar. Þannig má draga úr áhrifum af stærð og ásýnd mannvirkisins, auk þess sem trjárækt mun veita skjól og bæta útivistarmöguleika á svæðinu öllu. Lagt er til að hlíðar snjóvarnargarðsins, er snúa að byggðinni, verði mótaðar á þann hátt að draga megi úr neikvæðum sjónrænum áhrifum jafnframt því sem reynt er að nýta kosti garðsins að svo miklu leyti sem það er hægt. Dregið er úr halla á neðsta hluta varnargarðsins næst byg- gðinni, þar sem pláss leyfir. Um miðbik varnargarðsins er gert ráð fyrir áningar- stað/útsýnisstað í miðjum hlíðum hans þar sem koma mætti fyrir borði/ bekk og upplýsingarkorti af bænum. Lagt er til að aðalgöngustígur, milli byggðar og varnargarðs verði lagður strax við upphaf framkvæmdar og hann nýttur sem þjónustuvegur á framkvæmd- artíma. Stígurinn afmarkar að hluta til svæðið milli vinnusvæðis og „óraskaðs lands“. Stígurinn liggur eftir svæðinu endilöngu og tengir svæðið við núverandi útivistarsvæði, s.s. Hjallaskóg og göngustíg ofan byggðar. Lögð er áhersla á að mynda góð göngu- tengsl milli byggðar og útivistarsvæðis með stíg- um. í tengslum við einstaka ræktunarreiti sem tengjast aðalgöngustíg mætti koma fyrir trjásafni. Einnig er gert ráð fyrir rimmaðstöðu fyrir skokk- hópa og áningarstöðum í tengslum við aðalgöngu- stíg. Áætlaður vinnuvegur ofar í hlíðinni mun ein- nig nýtast sem útivistarstígur síðar og tengjast aðalstíg. 42
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.