AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1998, Page 51

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1998, Page 51
ær blóm o.s.frv., eftir því sem þörf er á. Þó er ráð- gert að halda í, eins og mögulegt er, þá runna og fjölæru jurtir sem fyrir eru og á þeim stöðum sem þau eru. Um þau gerð ákveðin beð og bætt við gróðri þannig að heildstæð mynd skapist. Göngu- stígur úr snöggslegnu grasi tengir reitina saman og býður upp á fjölbreytta upplifun. Miðja garðsins er sú sem lengst hefur verið óbreytt, tvö upphækkuð beð með fjölærum jurtum og trjám, stærra beð við tjörnina með runnum. Stígar beggja vegna. Ofar kemur byrgið (eða hell- irinn) sem hefur ekki lengur neitt þak, sólbaðs- lautin (eða telautin) og tjörnin (eða sundlaugin). Allt þetta er látið halda sér sem mest óhreyft, en ráðgert er að tjörnin verði gerð upp og umhverfi hennar lagað, neðri stígurinn rammaður af með timburköntum og fái malaryfirborð líkt og var í upphafi. Neðsta beðið (næst húsinu) verði alfarið með fjölærum jurtum, síðan komi beð með jurtum og smærri runnum og að lokum hreint runnabeð. Við sólbaðslautina er hóll sem á var fánastöng, ekki er ráðlagt að fara að grafa í hólinn til að setja upp nýja stöng, heldur fái hann að vera í friði og nýrri stöng komið fyrir á grasbalanum við húsið sem einskonar endi á öxlinum í gegnum garðinn. Við hinn enda öxulsins verði komið fyrir trébekk með þéttri bakplöntun til að loka sjónlínu að næsta sumarbústað. Við neðri stíginn er hinsvegar opnun niður að læknum. Meðfram læknum er ráðgerð plöntun með blönduðum trjágróðri en hér var áður þétt greniplöntun. Ný stígtenging er ráðgerð í brekkunni ofan við bústaðinn frá efri grasflötinni. Einnig er ráðgerður stígur upp á melinn sem teng- ir garðinn út í umhverfið, frá brúninni er nokkur yfirsýn yfir garðinn. Þrátt fyrir að snjóflóðið hafi fjarlægt öll stærri tré garðsins og breytt honum þannig í einu vetfangi og mikil eftirsjá sé að stóru - stæðilegu trjánum, þá voru þau jafnframt mjög rúmfrek í þessum smá- gerða garði. Af þessu er dreginn lærdómur, plant- að er á sömu eða svipaða staði og áður, en ekki eins þétt og tegundavalið hefur nokkuð breyst. Ræktunarreitirnir sem komnir voru á kaf í trjá- gróður eru gerðir upp, fá nýja „veggi“ og hugmynd Simsons um uppeldi á þessum stað tekin upp aftur. Reynt var að líta á breytinguna, ekki sem endalok, heldur nýtt upphaf. Tillöguna vann, fyrir hönd FÍLA, Áslaug Trausta- dóttir með dyggri aðstoð Einars E. Sæmundsen, Auðar Sveinsdóttur og fleiri FÍLA félaga. ■ Heimasíða umhverfisráðuneytisins: Upplýsingabrunnur um umhverfismál Komdu í heimsókn! http://www.stjr.is/umh UMHVERFISRÁÐUNEYTIÐ Vonarstrceti 4, 150 Reykjavík 49

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.